Bæjarins besta - 03.05.2007, Síða 12
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 200712
Laufey hættir hjá SVest
Laufey Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra
á Vestfjörðum lætur af störfum 30. júní nk. Laufey hefur verið ráðin
framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Suðurlands og hefur störf þar 1.
júlí. „Laufey hefur starfað hjá Svæðisskrifstofu Vestfjarða í 16 ár og á
þeim tíma hefur mikið og framsýnt starf verið unnið, meðal annars í
búsetu málum fatlaðra, atvinnuþróun, í málefnum geðfatlaðra svo fátt
eitt sé nefnt“, segir í frétt á vef Svæðisskrifstofunnar.
Reynir Torfa sýnir í Einarshúsi
Reynir Torfason opnaði sýningu á um 30 verkum í Einarshúsi í Bolungarvík á verka-
lýðsdaginn 1. maí nk. Málverkin eru máluð með akrýl og olíu á striga. „Reynir byrjaði að
mála um fimmtugsaldur en hefur alla tíð rissað myndir og teiknað og man hann ekki eftir
sér öðruvísi en síteiknandi. Reynir er sjálfmenntaður og málar eftir eigin innsæi en hefur
þó orðið fyrir áhrifum frá hinum og þessum og segist áhrifagjarn og hrífast af mörgu“,
segir í frétt á vikari.is. Þetta er 14 einkasýning Reynis en hann hefur tekið þátt í 12
samsýningum hér vestra. Sýningin mun standa fram yfir sjómannadag.
Aðalskipulagi Þingeyrar breytt
Tillaga að breyttu aðal-
skipulagi Þingeyrar fyrir
árin 1985-2005 hefur verið
auglýst með áorðnum breyt-
ingum. Tillagan tekur til
breytinga á svæði norðvest-
an við enda Hlíðargötu og
ofan við miðbæ Þingeyrar.
Svæðið breytist úr svæði fyrir
íbúðabyggð í svæði fyrir
verslunar- og þjónustusvæði.
Megin markmið með breyt-
ingu á aðalskipulaginu er að
skapa svæði fyrir útleiguhús
nálægt hafnarsvæðinu. Sam-
tímis breytingu á aðalskipu-
lagi er auglýst deiliskipulags-
tillaga sem gerir ráð fyrir leng-
ingu á Hlíðargötu um 25 metra
til norðvesturs og lóðum fyrir
10 útleiguhús.
Þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta er hér með gef-
inn kostur á að gera athuga-
semdir við aðalskipulags-
breytingartillöguna og deili-
skipulagstillöguna. Frestur til
að skila inn athugasemdum er
til þriðjudagsins 5. júní 2007.
Skriflegum athugasemdum
skal skila á bæjarskrifstofur
Ísafjarðarbæjar, Stjórnsýslu-
húsinu Hafnarstræti 1, Ísa-
firði. Þeir sem ekki gera at-
hugasemdir við breytingartil-
löguna fyrir tilskilinn frest
teljast samþykkir henni.
Tillagan verður til sýnis í
Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði til
þriðjudagsins 22. maí 2007.
Tillögur að breyttu
aðalskipulagi Þingeyrar
hefur verið auglýst.
STAÐA SÉRKENNSLUSTJÓRA VIÐ
LEIKSKÓLANN SÓLBORG Á ÍSAFIRÐI
Leikskólinn Sólborg auglýsir lausa
stöðu sérkennslustjóra við leikskól-
ann. Um er að ræða 87,5% starf.
Sólborg er fjögurra deilda skóli með
börn á aldrinum 1-6 ára.
Nánari upplýsingar veitir Helga Björk
Jóhannsdóttir, leikskólastjóri í síma
456 3185, netf: solborg@isafjordur.is.
Rekstrartekjur Súðavíkur-
hrepps og stofnana hans voru
141,6 milljónir króna á síðasta
ári. Þetta kemur fram í árs-
reikningum hreppsins og
stofnana hans sem afgreiddir
voru til fyrri umræðu hrepps-
nefndar í gær. Rekstrargjöld
voru 143.2 milljónir og rekstr-
arniðurstaða var neikvæð um
1,6 milljónir.
Afskriftir A og B hluta voru
kr. 9,9 milljónir og fjármagns-
tekjur umfram fjármagnsgjöld
voru samtals 6,3 milljónir.
Rekstrarniðurstaða A og B
hluta var því neikvæð um kr.
5,2 milljónir. Eigið fé sveitar-
félagsins í árslok 2006 nam
611,3 milljónum., en eigið fé
A hluta var kr. 630,3 milljónir.
Tillaga um að vísa ásreikningi
fyrir árið 2006 til seinni um-
ræðu var samþykkt sam-
hljóða.
– thelma@bb.is Súðavík.
Rekstrartekjur Súðavík-
urhrepps 141,6 milljónir
Kaffihús og
sögusýning
opna í Súðavík
Vilborg Arnarsdóttir við eitt smáhýsanna.
Til stendur að opna kaffihús
ásamt sögusýningu í sam-
komuhúsinu í Súðavík. Súða-
víkurhreppur skrifaði á dög-
unum undir samning á leigu á
samkomuhúsinu í sumar, en
húsið var nýverið gert upp og
þykir hið glæsilegasta. Það er
Rúna Esradóttir sem mun reka
kaffihúsið. „Ég var að fá senda
kaffivél frá Kaffitári, en ég
leigi hana af þeim. Ég leigi
líka kvörn til að mala kaffi og
fæ kaffi hjá þeim. Mig hefur
alltaf dreymt um að gera eitt-
hvað svona, og fannst tími til
að hætta að tala um draumana
og fara að framkvæma þá,“
sagði Rúna í samtali við blað-
ið.
Hún stefnir að því að opna
kaffihúsið um miðjan maí, og
hafa opið alla daga í sumar.
Rúna segist vilja að yfirskrift
kaffihússins verði Gamalt og
íslenskt, en fyrir utan úrvals-
kaffi stefnir Rúna að því að
bjóða upp á heimalagað bakk-
elsi, döðlubrauð og lummur.
Rúna tekur fram að kaffihúsið
sé ekki síst hugsað fyrir ferða-
langa sem geta komið við á
leiðinni inn Djúpið og gripið
með sér kaffi í götumáli.
Sögusýning í eigu Súðavík-
urhrepps verður einnig sett
upp í félagsheimilinu í sumar.
Á sýningunni verður eitt og
annað sem sýnir sögu byggðar
í Álftafirði. Í vetur var t.d.
rætt við alla íbúa Súðavíkur
og fleiri sem hafa yfir gömlum
myndum að ráða, sem tengjast
búsetu og atvinnulífi í Súða-
vík á árum áður. Afrit var tek-
ið af um 1000 myndum og
fyrirhugað er að vera með sér-
stakar myndasýningar á kaffi-
húsinu í sumar. Einnig hefur
athafnakonan Vilborg Arn-
arsdóttir unnið að endurgerð
tíu smáhýsa sem eru nákvæm-
ar eftirlíkingar af löngu horfn-
um húsum úr Súðavík. Húsin
voru smíðuð af Auðuni Árna-
syni á árunum 1970-1990, en
afkomendur hans gáfu Ragga-
garði húsin haustið 2005.
Þeim húsum verður komið
upp í samkomuhúsinu til sýn-
is.
– tinna@bb.is
Rúna Esradóttir fær lyklana að samkomuhúsinu afhenta.