Bæjarins besta - 03.05.2007, Side 17
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 17
Eignarhlutur til sölu
Til sölu er eignarhlutur í Blómaturninum
á Ísafirði. Um er að ræða 16,67% hlut.
Upplýsingar gefur Jónína í síma 456 5199.
Mótorhjólaökuréttindi
Fyrirhugað er að halda námskeið á Ísa-
firði til að öðlast réttindi til að aka mótor-
hjóli, ef næg þátttaka fæst.
Upplýsingar og skráning er til 15. maí
hjá Davíð S. Ólafssyni í síma 893 7181 og
dso@simnet.is eða Marzellíusi Sveinbjörns-
syni í síma 860 2122.
Ársfundur 2007
Ársfundur Lífeyrissjóðs Vestfirðinga 2007
verður haldinn á Hótel Ísafirði fimmtudag-
inn 17. maí nk. kl. 14:00.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur ársins 2006.
3. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri
úttekt.
4. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu
sjóðsins.
5. Kosning á hluta stjórnar og vara-
manna.
6. Kynntar tilnefningar Samtaka atvinnu-
lífsins á mönnum í stjórn sjóðsins.
7. Lagðar fram tillögur um breytingar á
samþykktum sjóðsins.
8. Önnur mál.
Allir sjóðsfélagar, jafnt greiðandi sem líf-
eyrisþegar, eiga rétt á fundarsetu á árs-
fundi með málfrelsi og tillögurétti. Sjóðs-
félagar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn
og mæta á ársfund sjóðsins, en eru beðn-
ir að staðfesta þátttöku sína við skrifstofu
sjóðsins í síðasta lagi 16. maí 2007.
Sérstakt fulltrúaráð að jöfnu skipað full-
trúum stéttarfélaga og samtaka atvinnu-
rekenda sem að sjóðnum standa fer með
atkvæði á ársfundinum.
Stjórn Lífeyrissjóðs Vestfirðinga.
Jónas Guðmundsson sýslu-
maður í Bolungarvík, hefur
sent bæjaryfirvöldum tillögu
þess efnis að hugað verði að
gerð göngustígs umhverfis
Syðridalsvatn í Bolungarvík í
tengslum við væntanlega jarð-
gangagerð milli Bolungar-
víkur og Hnífsdals. „Ætla má
að mikið efni leggist til sem
nota mætti í gerð stígsins og í
raun sýnist einstakt tækifæri
gefast til að fá gott efni, sem
nýst gæti við stígagerðina án
mikils tilkostnaðar“, segir í
bréfi Jónasar. Við vatnið er
náttúrufegurð einstök og má
gera ráð fyrir að margir gengju
eða hjóluðu eftir stíg á þessum
slóðum til að njóta þar útiveru,
jafnt heimamenn sem að-
komumenn.
Nýlega var lagður göngu-
stígur frá íþróttamiðstöðinni
Árbæ og langleiðina að vatn-
inu norðanverðu sem er tölu-
vert mikið notaður. Telur Jón-
as upplagt að leggja nýjan stíg
umhverfis vatnið í beinum
framhaldi af þeim stíg, þó
þyrfti sá göngustígur ekki að
vera eins mikið uppbyggður
eða malbikaður. Telur hann
æskilegt að undirbúningur að
hugsanlegri gerð hans gæti
hafist sem fyrst til að nýta
megi væntanlegan útgröft úr
göngunum beint í göngustíg-
inn.
Verið er að vinna að nýju
aðalskipulagi fyrir Bolungar-
víkurkaupstað sem er í vinnslu
hjá Teiknistofunni Eik ehf og
telur Jónas mikilvægt að gert
verði ráð fyrir þessari fram-
kvæmd í nýju aðalskipulagi
fyrir Bolungarvíkurkaupstað.
– thelma@bb.is
Vill göngustíg umhverfis Syðridalsvatn
Heildarrekstrartekjur Ísafjarð-
arbæjar 2.240 milljónir króna
Ársreikningur bæjarsjóðs
Ísafjarðarbæjar og stofnana
hans fyrir árið 2006 var lagður
fram til fyrri umræðu á fundi
bæjarstjórnar í síðustu viku.
Niðurstöður ársreikningsins
eru að heildarrekstrartekjur
bæjarsjóðs og stofnana hans
voru 2.240 milljónir króna,
samanborið við 1.971 milljón
krónur árið 2005. Rekstrar-
gjöld voru 2.588 milljónir
króna. Rekstrarniðurstaða var
því neikvæð um 348 milljónir
króna borið saman við 252
milljónir króna samkvæmt
fjárhagsáætlun ársins.
Ástæðan er hækkun lífeyr-
isskuldbindinga og mikil
hækkun verðbóta vegna verð-
bólgu ársins 2006. Veltufé frá
rekstri nam 78 milljónum króna
og handbært fé frá rekstri 98
milljónir króna. Reksturinn
skilar þessu fjármagni í bæjar-
sjóð þrátt fyrir taprekstur enda
eru stórir reiknaðir liðir í út-
gjöldum á borð við afskriftir,
lífeyrisskuldbindingar og
hækkun verðbóta.
Meðal helstu framkvæmda
sveitarfélagsins má nefna
framkvæmdir við nýtt skóla-
húsnæði Grunnskólans á Ísa-
firði. Þá var lokið við nýjar
götur og lóðir á Tunguskeiði,
lokið við fyrsta áfanga endur-
gerðar Hlíðarvegs á Ísafirði
og nýr sparkvöllur í Holta-
hverfi gerður. Ný slökkvibif-
reið var keypt og tölvubún-
aður bæjarskrifstofu endur-
nýjaður, auk ýmissa hafnar-
og vatnsveituframkvæmda og
kaup annarra véla og búnaðar.
Þessar almennu fjárfestingar
námu alls 306 milljónum
króna.
Skatttekjur sveitarfélagsins
urðu 1.521 millj.kr. eða 51
millj.kr. hærri en áætlað var.
Laun voru 1.188 millj.kr., al-
mennur rekstrarkostnaður 852
millj.kr., áfallnar lífeyris-
skuldbindingar og afskriftir
voru 264 millj.kr. Nettó fjár-
magnskostnaður nam 284
millj.kr. Þeir málaflokkar sem
mest tóku til sín voru fræðslu-
mál með 762 millj.kr., æsku-
lýðs- og íþróttamál 206 millj.kr.,
sameiginlegur kostnaður var
147 millj.kr., umferðar og
samgöngumál 113 millj.kr. og
félagsþjónusta 73 millj.kr.
Heildarskuldir bæjarsjóðs
og stofnana hans án lífeyris-
skuldbindinga námu 3.227
millj.kr. í árslok 2006, borið
saman við 3.026 millj.kr. í
árslok 2005 og hækkuðu því
skuldir um 201 millj.kr. á milli
ára. Heildar veltufjármunir í
árslok 2006 voru 669 millj.kr.
að frádregnum kröfum á eigin
fyrirtæki. Heildar fastafjár-
munir voru 4.204 millj.kr.
Áfallnar lífeyrisskyldbinding-
ar voru 736 millj.kr. og eigið
fé 911 millj.kr.
Ársreikningurinn ber það
með sér að niðurstaða reksturs
varð lakari en gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun ársins.
Tekjur urðu 6 millj.kr. lægri
og útgjöld 90 millj.kr. hærri.
Frávikið skýrist aðallega af
meiri hækkun áfallinna lífeyr-
isskuldbindinga en áætlað var,
svo og vegna verðbóta á löng
lán, en ennfremur af sérstök-
um launahækkunum til tekju-
lægstu launþegahópanna.
Síðari umræða um reikn-
inga bæjarsjóðs og stofnana
hans í dag, fimmtudaginn 3.
maí.
– tinna@bb.is
Útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtækið Jakob Valgeir ehf.,
í Bolungarvík hefur keypt yfir
50% í útgerðarfélaginu Reka-
vík ehf. í Bolungarvík sem
gerir út bátana Guðmund Ein-
arsson ÍS, Hrólf Einarsson ÍS
og Einar Hálfdánsson, en með
þeim fylgja 1.500 þorskígild-
istonn. Rækju- og bolfisk-
vinnslan Bakkavík var stærsti
hluthafi Rekavíkur. Jakob
Valgeir hyggst gera Guðmund
og Hrólf áfram út frá Bolung-
arvík en flytja kvótann af Ein-
ari yfir á beitningavélabátinn
Þorlák ÍS sem er í eigu Jakobs
Valgeirs ehf., og selja Einar
Hálfdánsson kvótalausan.
Jakob Valgeir Flosason,
framkvæmdastjóri Jakobs
Valgeirs, segir að auka eigi
fiskvinnslu í landi hjá fyrir-
tækinu. Jakob Valgeir og
tengd félög ráða eftir kaupin
yfir 4.500 þorskígildistonnum
sem er stórt hlutfall aflaheim-
ilda í Bolungarvík.
Jakob Valgeir kaupir
stóran hlut í Rekavík
Bolungarvík.