Bæjarins besta - 03.05.2007, Page 19
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 19
Atvinnufrelsið endurreisir Vestfirði
Ísfirðingar héldu fjöl-
mennan og kröftugan borg-
arafund fyrir skömmu og
gerði þingmönnum og öðr-
um frambjóðendum kjör-
dæmisins grein fyrir því
hvernig þeir litu á alvarlega
búsetuþróun á Vestfjörðum.
Farið var fram á að þeir
íhuguðu skilaboðin og kæmu
svo með sín svör þegar nær
drægi kosningum.
Fækkun starfa um 500 og
fækkun íbúa um 21% á að-
eins 12 árum er meira en
alvarleg þróun. Lækkun
meðalatvinnutekna um lík-
lega fjórðung í samanburði
við höfuðborgarsvæðið til
viðbótar hinum atriðunum
lýsir ört hnignandi byggð.
Þessar kennitölur útskýra
hvers vegna borgarafund-
urinn var haldinn. Fólk sæk-
ist eftir góðum lífskjörum
og flytur þangað sem þau
eru best. Störfin sem áður
drógu fólk vestur eru orðin
færri og ekki lengur hátt laun-
uð á landsvísu.
Úrræðin verða að skila vel-
launuðum og fleiri störfum
og fyrirtækjum sem eflast af
starfsemi sinni. Aðgerðir í at-
vinnumálum eru lykillinn að
því að snúa við þróuninni. Þær
eiga að snerta sem flestar at-
vinnugreinar, en aðeins ein
þeirra hefur það umfang og
stærð í efnahagslífi fjórðungs-
ins að þar verður hægt að
sækja fram á skömmum tíma
svo um munar. Það er sjávar-
útvegurinn. Sé ekki vilji til
þess að hreyfa við neinu þar
þá mun áfram verða sama
íbúaþróun í mörg ár jafnvel
þótt ýmislegt gott verði gert í
öðrum atvinnugreinum. Því
lengur sem undanhaldið varir
þeim mun erfiðara verður að
snúa við. Tíminn skiptir máli,
við getum ekki beðið.
Það á að opna sjávarútveg-
inn aftur og innleiða atvinnu-
frelsið. Atvinnufrelsið færir
Vestfirðingum aðgang að
fiskimiðunum og möguleika
nýrra athafnamanna til þess
að hasla sér völl í atvinnu-
greininni. Atvinnufrelsið er
varið í stjórnarskránni og er
virt í atvinnulífinu nema í sjáv-
arútvegi. Þar ríkir lokað sér-
hagsmunafyrirkomulag. Því
ástandi verður hrundið fyrr
eða síðar, ef ekki af Alþingi
þá af dómstólum.
Svar Frjálslynda flokksins
er uppbygging á mörgum
sviðum sem miðar að því að
efla getu íbúanna til að sækja
fram á eigin forsendum, fjölga
störfum, auka fjölbreytni
þeirra og hækka launin og gera
fjórðunginn þannig jafnálit-
legan kost til búsetu og önnur
svæði landsins. Meiri iðn- og
verkmenntun og stofnun sjálf-
stæðs háskóla strax eru grund-
vallaratriði. Stórstígar fram-
farir í samgöngum og fjar-
skiptum á næstu 4-6 árum
verða að eiga sér stað. Þetta
þýðir tvenn jarðgöng, ljúka
uppbyggingu vega um Barða-
strandarsýslu og Srandasýslu
og tengingu milli norður og
suðursvæðis Vestfjarða á
þessum tíma , auk gsm-sam-
bandi og almennilegri net-
væðingu í þéttbýli og dreif-
býli, svo það helsta sé nefnt.
En aðalatriðið er að færa
Vestfirðingum aftur atvinnu-
frelsið í sjávarútveginum. Til-
lögur okkar afmarka núver-
andi kvótakerfi við það magn
í þorski sem útgerðarmenn
hafa að jafnaði haft til ráð-
stöfunar síðastliðin 15 ár. Það
eru um 170 þúsund tonn. Það
fá núverandi handhafar að
nýta áfram án nokkurra af-
skipta, svo lengi sem þeir
vilja, meðan þeir nýta heim-
ildirnar til þess að veiða. Eng-
inn fyrning aflaheimilda og
þeir þurfa ekki að borga neina
leigu. En ætli þeir að leiga
heimildirnar eða selja fá þeir
ekki nema hluta af tekjunum í
sinn vasa og fara verður eftir
lögum sem sett verða um leigu
og sölu heimilda.
Settur verður jafnstöðuafli
220 þúsund tonn á ári. Mis-
munurinn er 50 þúsund tonn
sem verður leigður og hluti
þess eða 20 þúsund tonn
sérstaklega merkt sjávar-
plássum sem hafa búið við
samdrátt á tímum framsals-
ins borið saman við önnur
byggðarlög. Settar verða
leikreglur um ráðstöfun
aflaheimildanna sem mið-
ast við víðtækari hagsmuni
en útvegsmanna einna og
færa byggðarlögunum meiri
festu en nú er og sveitarfé-
lögunum tekjur af viðskipt-
um með aflaheimildir. Með
tímanum mun hluti núver-
andi kvótahafa fara minnk-
andi eftir því sem þeir selja
frá sér kvótann sem verður
þá á hendi ríkisins og leigu-
hlutur aflaheimildanna mun
fara vaxandi.
Svarið er: atvinnufrelsið
aftur í sjávarútveginn.
– Kristinn H. Gunnars-
son. Höfundur er í 2. sæti
á lista Frjálslynda
flokksins í NV-kjördæmi.
Kristinn H. Gunnarsson.
legu bæjarhátíð og stóðum
fyrir námskeiðum sem báru
yfirskriftina „Mósaík fyrir
mæðgur“ og öðru sem bar yf-
irskriftina „Lego fyrir feðga“.
Fullbókað var á bæði nám-
skeiðin og ánægjulegt að sjá
mæðgur og feðga vinna sam-
an. Það var ótrúlegt en á full-
bókuðu feðganámskeiðinu
mátti heyra saumnál detta, ein-
beitingin var þvílík og stoltið
skein úr hverju andliti. Svona
á að virkja.
Oft er það nú þannig að við
leitum langt yfir skammt. Eitt
að því sem Íslandshreyfingin
vill virkja er mannauðurinn,
að virkja hvert og eitt okkar
sem byggjum þetta land. Við
viljum blása til sóknar í að
„virkja“ fólkið, að „klasa-
tengja“ mannauðinn í smærri
og/eða stærri hópa til að leggj-
ast saman á árar um hugmynd-
ir að atvinnuskapandi verk-
efnum. Að við sjálf tökum
málin í okkar hendur. Iðn-
tæknistofnun, Impra og Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands hafa
verið m.a. í fararbroddi í þann-
ig verkefnum. Íslandshreyf-
ingin vill að blásið verði til
sóknar um atvinnuskapandi
verkefni meðal almennings í
hverju kjördæmi fyrir sig.
Með samkeppni sem miðar
að 3 til 5 störfum, smærri ein-
ingar sem oft eru ekki jafn
fallvaltar og þær stærri. Ríkið,
ráðuneytin gætu komið að
með fjármagn og/eða fyrir-
tæki. Eftir því yrði tekið. Mál-
tækið góða segir, margt smátt
gerir eitt stórt og það á sann-
arlega við í þessu.
Hugur minn hefur verið
upptekinn af umræðunni um
olíuhreinistöð í NV- kjör-
dæmi, nánar tiltekið á Vest-
fjörðum, eftir nýjasta útspilið.
Ekkert höfum við í Íslands-
hreyfingunni á móti störfun-
um, við viljum að sjálfsögðu
að allir geti séð sér farborða
og 500 störf hljóma vel. En
spurningin er alltaf hvað skal
virkja? Við viljum frekar sjá
störf í sjávarútvegi, í ferða-
þjónustunni í landbúnaði svo
eitthvað sé nefnt. Í þessu tilliti
kemur upp í huga mér texti
sem Vilhjálmur Vilhjálmsson
sá mæti söngvari söng og
hljóðar svo: „Ég held við ætt-
um stundum að hlusta aðeins
betur á hugrenningar þeirra
sem erfa skulu land því kann-
ski er næsta kynslóð, kynslóð-
in sem getur, komið fram með
svörin þar sem sigldum við í
strand.“ Höfum trú á eigin
getu. Setjum ekki Ísland á
útsölu. Við stöndum fyrir allt
annað.
– Pálína Vagnsdóttir. Höf-
undur skipar 1. sæti Íslands-
hreyfingarinnar í NV-kjördæmi.
Ólík öfl
Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn eru ólík
stjórnmálaöfl. Þeir hafa nú
þrátt fyrir ólík stefnumið starf-
að saman um árabil í mjög
athafnasömu og árangursríku
stjórnarsamstarfi. Sameigin-
legar úrlausnir mála hafa yfir-
leitt verið fundnar án þess að
skoðanamunur - eða jafnvel
ágreiningur - væri borinn í
fjölmiðla. Mismun Framsókn-
arflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins má sjá af mörgum
málaflokkum, en aðeins nokk-
ur dæmi skulu nefnd.
Sjálfstæðismenn taka einka-
rekstur ævinlega fram yfir fé-
lagslegt framtak eða samfé-
lagsrekstur. Þetta kemur vel
fram í afstöðu manna til Íbúða-
lánasjóðs. Viðskiptabankarnir
ruddust fílefldir inn á íbúða-
lánamarkaðinn haustið 2004
og verðbólguþensla magnað-
ist verulega. Andstæðingar
samfélagsþjónustu kenndu
Íbúðalánasjóði um þessa nýju
stefnu bankanna.
Sama gerist nú um þessar
mundir, að þessir aðilar kenna
Íbúðalánasjóði um verðlags-
þróun húsnæðis þessa mán-
uðina, enda þótt bankarnir
yfirbjóði sjóðinn eins og þeim
sýnist og styrki aðila til að
„liggja með“ húsnæði á mark-
aðinum til að halda verði uppi.
Annað dæmi er afstaðan til
samfélagsreksturs á sviði
orkumála. Landsfundur Sjálf-
stæðismanna samþykkti að
stefna skyldi að einkavæðingu
á þessu sviði. Framsóknar-
menn telja að aðstæður hér-
lendis og hagsmunir almenn-
ings valdi því að rétt sé að
Landsvirkjun verði að öllu
leyti í þjóðareigu.
Þriðja dæmið er afstaða til
byggðamála. Í þessum mála-
flokki skiptast Sjálfstæðis-
menn í tvo flokka. Meirihlut-
inn hefur engan áhuga á bygg-
ðamálum og vill draga úr
framlögum á þessu sviði. Hins
vegar skiptir flokkurinn sér -
á pólitískt hentugan hátt - á
milli kjördæmanna í þessum
málum. Allir framsóknar-
menn leggja megináherslu á
öfluga byggðastefnu.
Fjórða dæmið er afstaða til
einkavæðingar samfélags-
þjónustu í velferðarkerfinu,
t.d. heilbrigðis- og mennta-
kerfum landsmanna. Margir
sjálfstæðismenn vilja róttæka
einkavæðingarstefnu á þess-
um sviðum, en aðrir fara sér
hægara. Framsóknarmenn
leggja áherslu á sameiginlega
alhliða velferðarstefnu og að
ríkisvaldinu beri að veita for-
ystu og bera ábyrgð á þessum
málum. En þeir viðurkenna
framlag mismunandi rekstrar-
forma eftir aðstæðum í hverju
atviki samkvæmt samningum.
Þessi dæmi sýna hvernig
þjóðleg félagshyggja fram-
sóknarmanna greinir sig í
nokkrum mikilvægum mála-
flokkum frá hægrisinnaðri
sérhyggju sjálfstæðismanna.
Svipuð dæmi má nefna af öðr-
um sviðum. Þessir tveir stjórn-
málaflokkar hafa náð góðum
árangri í samstarfi, en hug-
sjónir þeirra eru mjög ólíkar.
– Valdimar Sigurjónsson.
Höfundur skipar þriðja sæti
á lista Framsóknarflokksins
í NV-kjördæmi.
Valdimar Sigurjónsson.
Ertu orðin(n)
áskrifandi?
Síminn er
456 4560
Fíkniefnabrotum í um-
dæmi lögreglunnar á Ísa-
firði fækkar á milli ára mið-
að við mánuðina janúar og
febrúar. Í fyrra fjölgaði
fíkniefnabrotum töluvert
frá árinu 2005. Hegningar-
lagabrotum fækkar í janúar
og febrúar árin 2005-2007.
Umferðarlagabrotum fjölg-
ar frá janúar og febrúar á
síðasta ári. Þetta kemur
fram í mánaðarskýrslum
ríkislögreglustjóra, en þar
eru birtar upplýsingar um
skráð brot hjá öllum lög-
regluembættum á landinu í
ár, auk þess sem tölur síðustu
tveggja ára fylgja með. Í
janúar og febrúar árið 2005
voru framin 48 hegningar-
lagabrot, 80 umferðarlagabrot
og 3 fíkniefnabrot. Sömu
mánuði árið 2006 voru framin
22 hegningarlagabrot, 45
umferðarlagabrot og 18 fíkni-
efnabrot. Í janúar og febrúar á
þessu ári voru framin 16
hegningarlagabrot, 74 umferð-
arlagabrot og 1 fíkniefnabrot.
Í skýrslunni eru birtar upp-
lýsingar um stöðu brota eins
og þau voru í málaskrá lög-
reglu þann 15. febrúar 2007.
Það er tekið fram að tölur
fyrir árin 2006 og 2007 eru
bráðabirgðatölur.
Í skýrslunni segir að við
samantekt tölulegra upplýs-
inga eru tilgreind öll brot
sem voru tilkynnt lögregl-
unni að frátöldum þeim sem
reynast við nánari athugun
ekki vera brot. Hafa ber í
huga að eitt atvik getur falið
í sér fleiri en eitt brot. Til
dæmis getur maður sem er
stöðvaður vegna umferðar-
lagabrots fengið í sama máli
kæru fyrir fíkniefni sem
fundust í fórum hans.
Fíkniefnabrotum fækkar
Í mánaðarskýrslum ríkislögreglustjóra kemur fram að fíkni-
efnabrotum í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði fækkar milli ára.