Bæjarins besta - 31.05.2007, Síða 2
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 20072
Þennan dag árið1973 hittust Richard Nixon Bandaríkja-
forseti og Georges Pompidou Frakklandsforseti í Reykja-
vík og héldu fundi um heimsmálin á Kjarvalsstöðum. Með
í för voru m.a. Henry Kissinger og Giscard D' Estaing.
Dagurinn í dag
31. maí 2007 – 151. dagur ársins
Eiríkur Finnur áfram hjá sparisjóðnum
Eiríkur Finnur Greipsson, aðstoðarsparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestfirðinga
hefur ákveðið að halda áfram störfum fyrir sjóðinn. Á fundi stjórnar sjóðs-
ins sem haldinn var á Patreksfirði í síðustu viku, kom fram sú eindregna ósk
frá stjórn sjóðsins að Eiríkur Finnur endurskoðaði þá ákvörðun sína að óska
eftir starfslokum hjá sjóðnum og varð hann við þeirri beiðni. Eiríkur Finnur
hefur starfað við Sparisjóð Vestfirðinga frá stofnun hans en þar áður
starfaði hann hjá Sparisjóði Önundarfjarðar, eða frá árinu 1996.
Snjóflóðavarnir
í Bolungarvík
Mat á umhverfisáhrifum –
athugun Skipulagsstofnunar
Bolungarvíkurkaupstaður hefur tilkynnt
til athugunar Skipulagsstofnunar, frummats-
skýrslu um snjóflóðavarnir í Bolungarvík.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum henn-
ar liggur frammi til kynningar frá 25. maí til
9. júlí 2007 á eftirtöldum stöðum: Á bóka-
safninu í Bolungarvík og á skrifstofu Bol-
ungarvíkurkaupstaðar. Einnig í Þjóðarbók-
hlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frum-
matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu
Náttúrustofu Vestfjarða; www.nave.is.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmd-
ina og leggja fram athugasemdir. Athuga-
semdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 9. júlí 2007 til Skipulagsstofnunar,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást
ennfremur nánari upplýsingar um mat á
umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverf-
isáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.
Skipulagsstofnun.
Edinborgarhúsið á Ísafirði
verður opnað með pompi og
prakt n.k. sunnudag. Edin-
borgarhúsið er eitt þriggja
menningarhúsa á Ísafirði, hin
eru Gamla sjúkrahúsið og tón-
leikasalurinn Hamrar. Húsið
er byggt árið 1907 fyrir Edin-
borgarverslunina og var afar
mikil völundarsmíð á þeim
tíma. Lengst af ævi hússins
var það pakk- og frystihús.
Það var teiknað af Rögnvaldi
Ólafssyni sem nefndur hefur
verið fyrsti íslenski arkitekt-
inn. Í upphafi tíunda áratugar
síðustu aldar var húsið keypt
af Edinborgarhúsinu ehf. en
félagið er eign helstu menn-
ingarsamtaka bæjarins.
Framtíðarsýn þeirra sem
fóru af stað með það verkefni
var að hýsa undir einu þaki
sem flesta þætti menningar-
starfsemi bæjarins. Eftir nokk-
urra ára vinnu sjálfboðaliða
við að endurbyggja húsið,
með tilheyrandi blóði, svita
og tárum, birti til er kynntar
voru hugmyndir um menning-
arhús á landsbyggðinni. Bæði
ríki og sveitarfélög koma að
því verkefni. Ásamt því að
hýsa menningartengda starf-
semi er húsið hjarta ferða-
mennsku á Vestfjörðum, en
bæði Vesturferðir og upplýs-
ingamiðstöð ferðamála eru til
húsa í Edinborg. Þá hefur
Listaskóli Rögnvaldar Ólafs-
sonar kennt í húsinu í allmörg
ár og svo verður áfram. Þá er
einnig veitingastaður í húsinu
sem opnar á sunnudaginn. Jón
Sigurpálsson, einn þeirra sem
hefur verið viðloðandi Edin-
borgarhúsið frá því að fyrstu
hugmyndir komu fram um
nýtt hlutverk þess, segir að
n.k. sunnudagur verði mikill
áfangi í sögu hússins, þó svo
að eitthvað verði eftir af fram-
kvæmdum. Húsið er opið milli
kl. 14 og 18 á sunnudag.
Mikil og vegleg hátíðardag-
skrá verður í boði. Sýndur
verður dans, Stórsveit Vestf-
jarða spilar, nemendur Lista-
skólans koma fram, leikarar
frá Litla leikklúbbnum og
margt fleira. Vestfirðingar eru
hvattir til að mæta og fagna
þessum merka áfanga í menn-
ingarsögu Vestfjarða.
Formleg opnun Edinborgarhússins
Kröfur í þrotabú Ágústs
og Flosa ehf. á Ísafirði nema
rúmlega 270 milljónum.
Stærstu kröfuhafarnir eru
Sýslumaðurinn á Ísafirði
sem gerir 38 millj. kröfu í
búið, Lífeyrissjóður Vest-
firðinga með tæplega 20
millj. kröfu og Landsbank-
inn með 30 millj. kröfu.
Stærstu kröfuna gerir Guð-
mundur St. Björgmundsson
fyrir hönd Dalshúsa ehf. og
hljóðar hún upp á 70 millj.
króna. Skiptafundur í þrota-
bú byggingarfyrirtækisins
Ágústs og Flosa fór fram
þann 4. apríl.
Skiptastjóri er skipaður
Sigmundur Guðmundsson,
héraðsdómslögmaður á Ak-
ureyri. Sigmundur segir að
líklegast náist ekki nema
upp í veðkröfur í búið þar
sem eignir fyrirtækisins
voru ekki miklar. Ekki er
búið að ráðstafa eignum fyr-
irtækisins, en fasteignir
þess, vélar og tæki voru
auglýst til sölu og hafa bólar
þess verið seldir. Einhver
tilboð hafa borist í eignirnar
en ekki er búið að taka af-
stöðu til þeirra. Gengið
verður frá málinu á næstu
dögum.
Ágúst og Flosi ehf. var
lýst gjaldþrota í byrjun árs
en það var gert að beiðni
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga.
Hjá fyrirtækinu störfuðu 20
manns og var það í meiri-
hlutaeigu Björgmundar Guð-
mundssonar. – smari@bb.is
270 milljóna króna
kröfur í þrotabú
Ágústs og Flosa ehf
Snjóflóðavarnir í Bol-
ungarvík boðnar út
Nú styttist í að snjóflóða-
varnir í Bolungarvík verði
boðnar út. Grímur Atlason,
bæjarstjóri Bolungarvíkur,
segir að breytingar á aðal-
skipulagi hafi verið auglýstar
á föstudag. Sex vikna frestur
er gefinn til að komar fram
athugasemdum við skipulagið
á framfæri sem og að kæra
það. Grímur segist vona að
verkið fari í útboð í framhaldi
af því og ættu framkvæmdir
jafnvel að geta byrjað síðsum-
ars eða í haust. Vonir stóðu til
að framkvæmdir gætu hafist
fyrr en Grímur segir að svona
stór verk geti alltaf tafist í
kerfinu enda þurfa margar
stofnanir að gefa álit sitt og
samþykki. Hann hefði viljað
að þetta tæki styttri tíma en
tekur fram að það borgi sig að
vanda til verka í eins umsvifa-
miklu verki og snjóflóðavarn-
irnar í Bolungarvík eru.
Varnargarðurinn í Bolung-
arvík á að vera um 18-22 metra
hár og 700 metra langur þver-
garður, staðsettur þar sem Dís-
arland er nú. Auk þess verða
8 keilur ofar í fjallinu. Áætlað
er að í varnarvirkin fari um
400 þúsund rúmmetrar af fyll-
ingarefni sem reiknað er með
að fáist innan framkvæmda-
svæðisins. Áætlaður heildar-
kostnaður við byggingu varn-
arvirkjanna er 750 milljón
krónur en endanlegur kostn-
aður ræðst þó af þeim tilboð-
um sem berast í verkið. Gert
er ráð fyrir að bygging varn-
anna taki um 2-3 ár.
Bifreið á leið frá Bolungarvík til Ísafjarðar fór út af veginum um Óshlíð á föstudag. Ein kona var í bílnum og þurfti að
beita klippum til að ná henni úr bílnum. Hún var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði, en er ekki talin alvarlega
slösuð. Bíllinn valt upp fyrir veg, sem hlýtur að teljast lán í óláni, enda hlíðin snarbrött fyrir neðan veginn.