Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 16

Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 16
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn Vestfirðir fá rúmlega 30% byggðakvótans Sjávarpláss á Vestfjörð- um fá samtals 1.362 þorsk- ígildistonnum úthlutað af byggðakvóta sem Fiskistofa hefur úthlutað. Í ár er 4385 þorskígildistonnum skipt á milli sjávarbyggða, sem hafa lent í vanda vegna samdrátt- ar í afla, aflaheimildum og afla til vinnslu á botnfiski. Ísafjarðarbær fær mestu út- hlutað af öllum sveitarfélög- um á landinu, en Hnífsdalur, Þingeyri, Suðureyri og Ísa- fjörður fá samtals 454 þorsk- ígildistonnum úthlutað, eða rúmlega 10% heildarúthlutun- ar. Patreksfjörður, Bíldudalur og Brjánslækur í Vesturbyggð fá samtals 349 þorskígildis- tonn, og er þetta þriðja stærsta úthlutunin á eftir Ísafjarðarbæ og Norðurþingi. Súðavíkur- hreppur fær 204 tonn, Tálkna- fjarðarhreppur fær 87 og Bol- ungarvík 68. Af sveitarfélög- um á Ströndum fær Árnes- hreppur 15 tonnum úthlutað, Kaldrananeshreppur fær 48 tonn og Strandabyggð 137 tonn. – tinna@bb.is Frá höfninni á Flateyri. Komið hefur upp sú hug- mynd að stofna almennings- hlutafélag sem keypti afla- heimildir til Vestfjarða til að bregðast við ástandinu sem komið er upp á Flateyri við yfirvofandi lokun fiskvinnsl- unnar Kambs. „Við vitum náttúrulega ekki ennþá hvern- ig spilast út með sölu afla- heimilda,“ segir Halldór Hall- dórsson, bæjarstjóri Ísafjarð- arbæjar, þegar hann er spurður hvernig brugðist verður við ástandinu á Flateyri, „en með- al hugmyndanna sem komið hafa upp er að stofnað verði almenningshlutafélag, í eigu margra aðila á norðanverðum Vestfjörðum, sem stæði fyrir kaupum á aflaheimildum til svæðisins. Þá verður skipaður sérstakur teymishópur til að vernda hagsmuni starfsfólks- ins missi það vinnuna.“ Í hópnum er áætlað að verði fulltrúar frá sveitarfélögum svæðisins, skóla- og fjöl- skylduskrifstofu Ísafjarðar- bæjar, Íbúasamtökum Önund- arfjarðar, Rauða kross deild Önundarfjarðar, svæðisvinnu- miðlun, fjölmenningarsetri, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Kambi, Fræðslumiðstöð Vest- fjarða og Atvinnuþróunarfé- lagi Vestfjarða. Lagt hefur verið til að ráðinn verði sér- stakur verkefnisstjóri sem vinnur með hópnum, og verið er að leita að manneskju í það. Halldór segir að næstu daga verði vel fylgst með þróun málsins. „Atburðarrásin hefur verið afar hröð en við vitum ekkert hvernig málið endar. Auðvitað er vonast til að út- gerðarmenn hér á svæðinu kaupi sem mest af aflaheim- ildunum en ef það gengur ekki eftir þarf að skoða hvort mögu- leiki sé á úthlutun byggða- kvóta, eins og gert var á Þing- eyri. Þar fékkst sérstakur byggðakvóti í gegnum Byggða- stofnun og var honum úthlut- að til 5 ára, gegn því að útgerð tvöfaldaði kvótann með eigin framlagi og allt væri unnið á staðnum.“ Halldór segir það ljóst að til að takast á við þetta mál þurfi sem allra flestir að stilla saman sína strengi og vinna að lausn á vandanum.Halldór Halldórsson. Almenningshlutafélag til bjargar? Helga Vala Helgadóttir, bæjarstjórafrú og lögfræði- nemi í Bolungarvík, hefur tek- ið að sér rekstur veitingahúss í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Í húsinu, sem nú er verið að ljúka við að gera upp, verður 100 sæta veitingasalur auk leiksals. Helga Vala segist afar bjartsýn á framtíð hússins. „Þetta verður kaffihús og veitingahús í bland. Þetta verður ekki búlla, við ætlum að hafa þetta fallegt hús sem gott er að koma inn í og þar sem boðið verður upp á skemmtilega létta rétti, uppá- komur og veislur“, sagði Helga Vala í samtali við blaðið. Edinborgarhúsið var byggt árið 1907 og er eitt stærsta timburgrindarhús sem byggt hefur verið á Íslandi. Unnið hefur verið að því undanfarin ár að gera Edinborgarhúsið upp. Það var teiknað af Rögn- valdi Á. Ólafssyni sem nefnd- ur hefur verið fyrsti íslenski arkitektinn. Eins og greint hefur verið frá er stefnt að því að húsið verði opnað á sjó- mannadag. Fjölbreytt starfsemi hefur farið fram í Edinborgarhúsinu í gegnum tíðina m.a. saltfisk- verkun og rækjuvinnsla. Í rúman áratug hafa ýmis fé- lagasamtök unnið að upp- byggingu þess sem menning- armiðstöðvar. Edinborgarhús- ið er eitt þriggja menningar- húsa á Vestfjörðum samkvæmt samningi menntamálaráðu- neytisins og Ísafjarðarbæjar. Helga Vala tekur að sér rekstur veitingahúss Edinborgarhússins Helga Vala Helgadóttir með Edinborgarhúsið í baksýn. Gunnbjörn ÍS, áður Fram- nes, landaði í síðustu viku rúmum 30 tonnum af út- hafsrækju, eftir sex sólar- hringa á veiðum. Aflinn fór í vinnslu hjá Miðfelli á Ísa- firði. Þetta er þriðja rækju- löndun Gunnbjarnar eftir að skipið hóf rækjuveiðar á ný í byrjun mánaðarins. Fersk- ri rækju hafði þá ekki verið landað á Ísafirði frá því Framnesinu lagt fyrir einu og hálfu ári. Jón Guðbjartsson, útgerð- armaður hjá Birni ehf. segir að um tilraun sé að ræða, það muni koma í ljós hvort áframhald verði á veiðun- um, aflabrögð og afurða- verð ráði því. Ekki hefur verið bjart yfir rækjuútgerð og -iðnaði í mörg ár. Verð lág og aflabrögð léleg. Var það ástæðan fyrir því að Hraðfrystihúsið – Gunnvör sá sig knúið til að hættu veiðum og vinnslu á rækju. Skipstjóri í veiðiferðinni var Jón Steingrímsson og fékkst rækjan norður af Djúpinu og er þetta ágæt rækja. Tvö önnur skip frá Ísafirði eru á rækjuveiðum, Óli Hall HU og Strákur SK. Þau eru á veiðum vestur af landinu og landa á Snæfells- nesi og er aflanum keyrt til Ísafjarðar til vinnslu hjá Mið- felli. – smari@bb.is Birtir til í rækjuiðnaði Gunnbjörn ÍS.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.