Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2007 11 Bílstjórar óskast Óskum eftir góðum og þjónustuliprum bifreiðastjórum með rútupróf. Bæði er um að ræða fasta vinnu og sumarafleysingar. Upplýsingar í síma 894 2010 eða á net- fanginu einar@gtyrfingsson.is Hópferðabílar Guðmundar Tyrfingssonar Hefur búið í sama húsinu í tæpa öld Herdís Albertsdóttir á Ísafirði setur líklega heimsmet á hverjum degi, en Herdís hefur búið í sama húsinu, að Sundstræti 33, alla ævi. Herdís verður 99 ára í haust, en hún fæddist í húsinu í nóvember 1908 og hefur búið þar alla tíð síðan. Herdís hefur alla tíð verið heilsuhraust, og aðeins einu sinni þurft að leggjast inn á sjúkrahús, en það var nú í vetur. Þegar hún var útskrifuð af sjúkrahúsinu, 98 ára að aldri, var haft á orði að hún væri líklega elsti sjúklingurinn sem hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsinu á Ísafirði og þó víðar væri leitað. Því má allt eins gera ráð fyrir að Herdís eigi tvö heimsmet. Fagnar tillögum Vestfjarðanefndar Atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar fagnar útgáfu skýrslu Vest- fjarðanefndar þar sem tillögur eru settar fram um möguleg verkefni til að fjölga opinberum störfum á Vestfjörðum. Í nefnd- inni sátu fulltrúar iðnaðarráðuneytis, Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, Ísafjarðarbæjar og forsætisráðuneytis. Atvinnumála- nefnd fagnar framkomnum tillögum og að nefndin mun hafa vakandi auga með framgangi tillagnanna. Veiðar við austurströnd Grænlands eru á uppleið og samkvæmt samtölum sem Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar, átti við útgerðarfyrirtæki í Fær- eyjum, er Ísafjörður inni í myndinni þegar kemur að þjónustu við skip sem væntan- lega munu stunda veiðar á sundinu í náinni framtíð. Þetta kom fram á íssiglingarráð- stefnu sem hafnarstjórinn sótti í lok mars á Akureyri. Atvinnumálanefnd Ísafjarð- arbæjar fjallaði um málið fyrir stuttu og kom þar fram að vandamálið er að á Ísafirði er engin þjónusta með svartolíu sem mörg umrædd skipa nota. Þar mun ekki verða breyting á fyrr en ný olíubirgðarstöð á Mávagarði kemst í gagnið. Varðandi íssiglingar, var það niðurstaða ráðstefnunnar að þessar siglingar hefjist ekki að neinu marki fyrr en í fyrsta lagi fyrr en eftir 15-20 ár. „Þegar og ef þær hefjast af alvöru, þá er líklegt að þjón- usta og umskipunarhafnir verði annarsvegar vestanhafs og hinsvegar í nálægð við helstu dreifingarleiðir um Evr- ópu. Samt er mikilvægt að fylgjast með þeirri umræðu sem fara mun fram um þessi mál í framtíðinni“, segir í fundarbókun atvinnumála- nefndar. Þess má geta að í febrúar samþykkti bæjarstjórn að ýta sem fyrst úr vör starfi atvinnumálanefndar og hafn- arstjórnar til að styrkja og efla Ísafjarðarhöfn sem þjónustu- miðstöð fyrir Austur Græn- land. – thelma@bb.is Skoða Ísafjörð fyrir þjónustu skipa við A-Grænlandsveiðar Olíuhreinsistöðin: Mikil und- irbúningsvinna framundan Mikil undibúningsvinna er framundan áður en hægt er að taka afstöðu til olíuhreinsun- arstöðvar á Vestfjörðum, segir Aðalsteinn Óskarsson, fram- kvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Vestfjarða. Samband- inu hefur verið falið stýra und- irbúningsvinnunni sem farið verður í á næstu mánuðum. Kynningarfundur um olíu- hreinsistöð á Vestfjörðum var haldinn í Þróunarsetrinu á Ísa- firði í síðustu viku. Aðalsteinn segir að nefnd verði skipuð af sveitarfélögunum, Fjárfest- ingarstofu og hugsanlega iðn- aðarráðuneytinu og mun nefnd- in gera staðarvalsathugun og samfélagsgreiningu og segir hann að þessi verk geti unnist nokkuð hratt. „Í samfélags- greiningu er verið að athuga hvort samfélagið geti tekið við verkefni af þessari stærðar- gráðu. Bæði fjölda starfa, samsetningu þeirra og tekur greiningin einnig til sam- göngumála. Það er verið að kanna innviði samfélagsins og hvort það geti tekið við þessu.“ Aðalsteinn segir að for- svarsmenn Íslensks hátækni- iðnaðar hafi tekið fram að þeir eru fyrst og fremst að horfa til staðsetningar í Arnarfirði og Dýrafirði. „Í byrjun stóð valið á milli Austfjarða og Vest- fjarða en það er mat þeirra að ekki sé ráðlegt að fara með svona verksmiðju austur vegna uppbyggingu álversins þar.“ Bent hefur verið á að hugs- anlega sprengi svona verk- smiðja alla mengunarkvóta og standist ekki Kyoto-bókunina. Aðspurður segir Aðalsteinn að það sé eitt af þeim atriðum sem þurfi að skoða. Miðað við stöð eins og kynnt hafi verið á fundinum muni hún sleppa út 300 þúsund tonnum af mengunarefnum á ári. Inn í stöðina komi 8 milljónir tonna af hráefni og út fari 7,7 millj- ónir tonna. „Þeir þrýsta á okk- ur að gefa svar á næstu mán- uðum um hvort við viljum svona verksmiðju. Þeir vilja nota sumarið og haustið til að fara í umhverfismat. Kostn- aður við umhverfismat er á bilinu 70 til 150 milljóna króna og fjárfestar eru ekki til í að borga það nema þeir hafi jákvæða afstöðu til málsins.“ Aðalsteinn segir að þetta sé tíu ára gamalt verkefni. Þá hafi átt að reisa olíuhreinsunarstöð á Reyðarfirði. Við það var hætt þar sem áherslan var lögð á að selja orku, en olíuhreinsi- stöðvar eru ekki mjög orku- frekar. Verkefnið var þá fært til Skagafjarðar. – smari@bb.is 48 milljónir boðnar í Núp Hæsta tilboðið sem barst í fasteignir gamla héraðs- skólans að Núpi er rúmum 20 milljónum undir fast- eignamati, sem var rúmar 72 milljónir króna. Á annan tug tilboða bárust í eignina, en það hæsta var frá Karli Jónatanssyni, og hljóðaði upp á 48.100.000 kr. Það voru Ríkiskaup sem sáu um að bjóða fast- eignina út og taka við tilboðum, en þar fengust þær upplýsingar að ekkert hafi legið fyrir frá viðkomandi ráðuneytum um lágmarkstilboð í húsnæðið. Það er þó ljóst að hæsta tilboðið er heldur lágt, en eins og áður sagði er fasteignamat rúmar 72 milljónir króna, og brunabótamatið er tæpar 566 milljónir króna. Tilboðum hefur verið komið til viðeigandi ráðu- neyta, menntamála- og fjármálaráðuneyti, þar sem tekin verður ákvörðun um framtíð Núps. Líti ráðu- neytin svo á að ekkert tilboðanna sem bárust sé viðunandi ber þeim ekki skylda til að taka neinu þeirra. Fasteignir ríkisins á Núpi telja heimavistarskóla- húsnæði, kennslustofur, mötuneyti, sjö íbúðir, sundlaug, íþróttahús og geymslur. Heildar flatarmál eignanna er 4.404,5 fermetrar. Stærð lóðar er um 6 ha og er eignarland. Innbú, bæði í mötuneyti og heimavist, fylgir með, en munir sem tengjast sögu skólans eru undanskildir. – tinna@bb.is Héraðsskólinn á Núpi.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.