Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 10

Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 200710 STAKKUR SKRIFAR Frá Þingvöllum Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Ísfirðingar – Vestfirðingar! Flughræðslunámskeið 3. júní kl. 13-17 og 4. júní kl. 9-13. Nánar á www.tilfinningatamning.is Rúnar Guðbjartsson sálfr. og fyrrverandi flugstjóri Skráning og uppl. í síma 849 6480 – runargu@simnet.is Nú er ljóst að sögulegar sættir hafa orðið á Þingvöllum. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking náðu saman um frjálslynda umbótasinnaða ríkisstjórn, sem líkleg er til góðra verka á því kjörtímabili sem er nýhafið. Velferð er lykil- orðið og þá vonandi fyrir alla. Velferð er undirstaða sanngjarns samfélags. En margs er að gæta. Efnahagur er lykilatriði og grundvöllur velferðar. Það hefur leiðtogum ríkisstjórnarinnar tekist að ná saman um. Fróðlegt verður að sjá hvernig vinnst úr málum. Byrjunin lofar góðu. Um aldir kom boð- skapur til þjóðarinnar frá Þingvöllum. Sá boðskapur reyndist misjafnlega, en nú binda margir vonir við ríkisstjórn sem hefur að baki stóran og öflugan þingmeirhluta og að sama skapi afar stóran hóp kjósenda. Ljóst er að ekki eru allir sammála um núverandi ríkis- stjórn. En sé grannt skoðað verður að líta svo á að hagsmunir heildarinnar hafi orðið leiðarljós hennar. Fróðlegt verður að sjá hvernig gengur að vinna úr stefnu varðandi náttúruvernd. Þar hafa orðið pólitísk skil, ekki síst ef litið er til baka síðustu kjörtímabil. Sáttatónn er áberandi varðandi stóriðju og náttúruvernd. Vonandi tekst til eins til er stofnað. Það hefur verið sett fram áður að kjósendur beggja flokka ríkisstjórnarinnar séu af sömu rót runnir, með nokkrum undantekningum þó. Vinstri grænir skerptu línur þegar sá flokkur kom fram á sjónarsviðið. Löng seta VG utan ríkisstjórnar hefur ekki orðið til að mýkja ásýndina nægilega til að ná hylli fjöldans. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og VG hefði orðið dæmi um raun- verulegar sögulegar sættir. En með hörku í málflutningi og stefnu sem er ósveigjanleg var leiðin ógreið í ríkisstjórn. Hófsemi er nauðsyn í landi sam- steypustjórna. Tónninn úr herbúðum Vinstri grænna er enn harðari nú eftir að ljóst varð að þeim nýttist ekki fylgisaukningin. Kannski er það skaði. Óneitanlega hefði orðið forvitnilegt að sjá hvernig reynslan af ríkisstjórnar- setu þeirra hefði þróast. Kannski var þjóðinni best að láta ekki á það reyna. Framsóknarflokkur galt afhroð í kosningunum og spilaði klaufalega úr þeirri stöðu að vera í ríkisstjórn sem hélt velli. Sennilega er Jón Sigurðsson fyrrverandi formaður hinn mætasti maður, en tókst ekki að skjótast inn á pólitíska sviðið og ná árangri á þeim stutta tíma sem til þess gafst. Nú fær Guðni Ágústsson tækifærið sem hann átti að grípa við brottför Halldórs Ásgrímssonar. Að grípa það ekki strax kann að hafa bundið endi á pólitískan feril hans. Frjálslyndir eiga eyðimerkurgöngu fyrir höndum. Formanni þeirra er all nokkur vorkunn að búa við slíkt hlutskipti. Við Vestfirðingar bíðum eftir að Þingvallaboðskapur varðandi atvinnumál Vestfjarða komi fram. Þau eru á slíku stigi að brýnt er að ríkisstjórn velferðar líti til okkar með velþóknun. Ásel fær stór verkefni á Patreksfirði Tilboði verktakafyrirtækisins Ásels á Ísafirði í frágang lóðar við Patreksskóla og íþróttamiðstöðina Bröttuhlíð var tekið á fundi bæjarstjórnar Vesturbyggðar fyrir stuttu. Ásel átti tvö lægstu tilboðin í verkið, það lægra var frávikstilboð. Alls bárust fimm tilboð í framkvæmdirnar, öll yfir kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 59.491. 000 kr., nema frávikstilboð Ásels. Tilboði Ásels sem var tekið hljóðar upp á 62. 954.731 kr. Önnur tilboð sem bárust voru frá Lási ehf., Bíldudal, Öllu í járnum ehf., Tálknafirði og Íslandsgörðum ehf., Kópavogi. Stjörnubílar seldir Rútufyrirtækið Stjörnubílar á Ísafirði hefur verið selt Keran Stueland Ólason sem rekur ferðaþjónustuna Breiðuvík í Vest- ur-Barðastrandarsýslu. Reksturinn verður með óbreyttu sniði og verður öll starfsemi sem og bílaflotinn áfram á svæðinu. Auk þess mun fyrirtækið standa við þær skuldbindingar sem Stjörnubílar höfðu lofað sér í fyrir kaupin. Trausti Ágústsson, fyrrum eigandi, mun starfa áfram hjá fyrirtækinu. Kynningarfundur um olíu- hreinsunarstöð á Vestfjörðum var haldinn á Ísafirði í síðustu viku. Á fundinum var verk- efnið kynnt fyrir sveitarstjórn- armönnum auk þess sem hald- in voru erindi um öryggi sigl- ingarleiðarinnar og hagræn og samfélagsleg áhrif stórfram- kvæmda. Íslenskur hátækni- iðnaður, fyrirtæki sem nokkrir Íslendingar eiga hlut að auk annarra, setti fyrr á þessu ári fram hugmyndir um að reisa olíuhreinsistöð á Vestfjörð- um. Fyrirtækið hefur augastað á svæðum í Arnarfirði annars vegar og Dýrafirði hins vegar. Samþykki sveitarfélögin verk- efnið, með öllum þeim skil- yrðum sem því kunna að fylgja, mætti búast við að fjög- ur til fimm ár liðu þar til starf- semin kæmist í gagnið. Ólafur Egilsson, einn forsvarsmanna verkefnisins, segir að fundur- inn hafi verið gagnlegur og ákveðið hafi verið að halda áfram vinnu við verkefnið og mun Fjórðungssamband Vest- fjarða stýra því. Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri Ísafjarðarbæjar, segir að margt hafi komið fram á fund- inum sem hann hafi ekki vitað um olíuhreinsistöðvar en segir að hann sjálfur hafi ekki tekið afstöðu í málinu og telur hann heppilegast að Vestfirðingar kjósi um málið þegar að því kemur. „Það er ekki gott að taka ákvarðanir í atvinnumál- um undir pressu eins og staðan er núna. Næsta skref er að skoða olíuhreinsistöðvar og það verður gert í júní og svo þurfum við að ákveða hvort við viljum þetta fyrir haustið.“ Ragnar Jörundsson, bæjar- stjóri Vesturbyggðar, segir fundinn hafa verið mjög fróð- legan og býst við að sveitar- stjórnarmenn hugsi verulega um þessi mál í kjölfar fundar- ins. „Það verður að skoða út í hörgul. Ef þær forsendur sem þeir gefa okkur, og þá forsend- ur í mengunar- og umhverfis- málum, eru réttar þá er það mín persónulega skoðun að þetta ætti að geta gengið.“ Bæjarstjórn Vesturbyggðar sendi frá sér yfirlýsingu fyrir stuttu um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. „Þá vorum við fagna þessari hugmynd og hvetja menn til að kasta henni ekki út af borðinu eins og þetta væri eitthvað ljótt. Hvað er að gerast á Flateyri? Hvað gerðist á Bíldudal? Við verðum að hafa fleiri möguleika til að lifa. Það sýnir sig að sjávarút- vegurinn er fallvaltur og ekki auðvelt að treysta á hann.“ Fundurinn var að mestu lokaður fjölmiðlamönnum og var gefin sú ástæða að hann væri fyrst og fremst fyrir sveit- arstjórnarmenn og embættis- menn á Vestfjörðum og halda ætti opna kynningarfundi síð- ar. Það vakti athygli blaða- manns að margir aðrir en þeir sem koma munu að ákvörðun málsins sátu fundinn vekur það því undrun að hann hafi ekki verið opinn fjölmiðla- mönnum. – smari@bb.is Ákvörðun um olíuhreinsistöð tekin í haust Tónlistarfélagið fær 17 milljón- ir til framkvæmda við Austurveg Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að greiða Tónlistarfélagi Ísafjarð- ar 17 milljónir króna vegna framkvæmda við fyrirhugaðar endurbætur á hús- næði Tónlistarskólans á Ísafirði, að Austurvegi 11. Ísafjarðarbæ var úthlutað fjárhæðinni frá menntamálaráðuneytinu, samkvæmt samningi sem þáverandi menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar skrifuðu undir um endurbyggingu menningarhúsa á lands- byggðinni, í apríl 2003. Samkvæmt samningi Tónlistarfélagsins við Ísafjarðarbæ átti að greiða tónlistarfélaginu ákveðna fjárhæð eftir því sem framkvæmdum miðaði. Nú hefur félagið látið gera útboðslýsingu á fyrirhuguðum breytingum á ytra út- liti hússins. „Það hefur verið afar vel að breytingunum staðið, en þær hafa dregist lítillega,“ segir Jón Páll Hreinsson, formaður Tónlistarfélagsins. Framkvæmdir við Austurveg voru fyrirhugaðar sumarið 2007, en stjórn Tón- listarfélagsins leggur áherslu á að vandað verði til verksins og meiri tími notaður til undirbúnings. Stefnt er að því að bjóða verkið út í kringum áramót. Framkvæmdir við hús TÍ verða boðnar út í kringum næstu áramót.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.