Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2007 3
Staða útibússtjóra
er laus til umsóknar
Staða útibússtjóra útibús Fiskistofu á
Ísafirði er laus til umsóknar. Við útibúið
starfa tveir eftirlitsmenn auk útibússtjóra.
Helstu verkefni útibúsins eru almennt veiði-
eftirlit til sjós og lands, eftirlit með út- og
innflutningi sjávarafurða, eftirlit með eldi
nytjastofna sjávar og verkefni er varðar
tómstundaveiðar. Starf útibússtjórans fel-
ur auk þess í sér skyldur á sviði bakreikn-
inga.
Æskilegt er að viðkomandi hafi háskóla-
menntun, búi yfir þekkingu á veiðum og
vinnslu sjávarafla og hafi staðgóða bók-
haldsþekkingu og tölvukunnáttu.
Leitað er að einstaklingi sem er sjálfstæð-
ur, faglegur og nákvæmur í vinnubrögðum
og býr yfir færni í mannlegum samskiptum.
Viðkomandi einstaklingur þarf að vera
ákveðinn, sanngjarn og háttvís. Æskilegt
er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar
Fiskistofu merktrar „Útibússtjóri á Ísafirði“
fyrir 9. júní 2007. Einnig er hægt að senda
umsóknir til fiskistofa@fiskistofa.is.
Upplýsingar um starfið veitir Eyþór Björns-
son, forstöðumaður veiðieftirlitssviðs í
síma 569 7900.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Fiskistofu
við ráðningar. Umsóknir sem berast að
umsóknarfresti loknum verða ekki teknar
til greina. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin. Upplýsingar um Fiskistofu má finna
á heimasíðu: http://www.fiskistofa.is.
Hafnarfjörður, 24. maí 2007,
Fiskistofa – www.fiskistofa.is
Dalshrauni 1 – 220 Hafnarfjörður
Sími 569 7900 – Fax 569 7991
Hjartalæknir
Sigurpáll Scheving hjartalæknir verður
með móttöku á Ísafirði dagana 6.-8. júní.
Tímapantanir í síma 450 4500 á milli kl.
08:00 og 16:00 alla virka daga.
Falið að fylgjast með þróun mála á Flateyri
Einari K. Guðfinnssyni, sjávarútvegsráðherra, og Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra, var á fyrsta
ríkisstjórnarfundi nýrrar ríkisstjórnar falið að fylgjast með þróun mála á Flateyri þar sem Kambur,
stærsta sjávarútvegsryrirtækið á staðnum, er að hætta starfsemi. Einar sagði við Útvarpið að staðan ætti
eftir að skýrast og í ljós kæmi hvað yrði um aflaheimildir Kambs. Ekki er ljóst hvenær málin skýrast
frekar, segir Einar, málið er á forræði eigenda Kambs. Hann viðurkennir þó að þó aflaheimildir verði
áfram á Flateyri muni það ekki leysa allan vanda. Í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
segir að ríkja eigi sem mestur stöðugleiki í sjávarútvegi. Frá þessu segir á ruv.is.
Þörf á stórátaki til að gera
fyrirtæki samkeppnishæf
Verkalýðsfélag Vestfirð-
inga telur að ráðamenn þjóð-
arinnar þurfi að gera stórátak
til að gera fyrirtæki á Vest-
fjörðum betur samkeppnishæf
með hagræðingu á flutnings-
kostnaði. Í hugleiðingu sem
birt er á vef félagsins varðandi
atvinnulíf í fjórðunginum
segir að öll umræða um lækk-
un á flutningskostnaði á fundi
Vestfjarðarnefndar hafi verið
svæfð. Þar segir einnig að töp-
uð störf verða ekki eingöngu
bætt með opinberum stöðum.
„Það var ekki annað að
heyra á orðum nefndarmanna
að á félagssvæði Verk - Vest
eigi að fylla upp í þau störf
sem þegar hafa tapast, jafnt
frá grunnatvinnuvegunum
sem öðrum, með opinberum
störfum. Mjög er rætt um að
koma þurfi til viðhorfsbreyt-
inga sem skýtur þó skökku
við, þar sem ekki á að hefja
vinnuna við tilfærslu starfa á
Vestfjörðum heldur á höfuð-
borgarsvæðinu.
Mjög ber á þeirri hugsun að
þessi störf geri kröfu um sér-
fræðimenntun eða þá mjög
sérhæfða þekkingu þar sem
krafa verði gerð um æðri
menntun. Ekkert var rætt um
möguleika á vexti sprotafyrir-
tækja eða um hvatningu einka-
framtaks.
Lítið var talað um afleidd
störf eða störf tengd öðru en
opinberum lausnum, og var
nokkuð undarlegt að heyra að
nefndin virðist ekki taka til
umfjöllunar hugmyndir nema
þær væru fullunnar og vel rök-
studdar, bæði um hvernig þær
ætti að framkvæma og eins
varðandi framtíðaráform, eins
og t.d. hugmyndin um olíu-
hreinsunarstöðina.
Þá var öll umræða um
lækkun eða hagræði á flutn-
ingskostnaði til og frá Vest-
fjörðum svæfð eða eytt með
tali um breytt hugarfar. Ekki
fengust svör um strandsigl-
ingar þrátt fyrir nokkuð ítrek-
aðar fyrirspurnir fundarmanna.
Lítið var rætt um þau störf
sem þegar hafa horfið af svæð-
inu, hvorki þau opinberu né í
framleiðslugreinum okkar, en
meira var talað um þau 80
opinberu störf sem væru rétt
handan við hornið fyrir Vest-
firðinga.
Í ljósi nýliðinna atburða á
Flateyri – Kambur -, Bolung-
arvík – Bakkavík - og á Ísafirði
-Marel - hljóta ráðamenn
þjóðarinnar að sjá að ekki
verður fyllt upp í þau störf
sem tapast hafa í framleiðslu-
greinum Vestfirðinga með því
að bjóða eingöngu upp á op-
inber störf. Þó eru nokkrir ljós-
ir punktar í umræðunni eins
og uppbyggingin sem er í
gangi á Bíldudal og það að
hluti aflaheimilda Kambs
virðast ætla að enda hjá fyrir-
tækjum hér á Vestfjörðum.
Mikill þungi var í orðum
nefndarinnar um breytingu á
hugarfari, en þá þarf sú breyt-
ing að verða á báða bóga. Það
verður að auðvelda þeim
framleiðslufyrirtækjum sem
hér eru í rekstri við að koma
framleiðsluvörum á markað
án þess að til komi óheyrilegur
flutningskostnaður. Þar þurfa
ráðamenn þjóðarinnar að gera
stórátak til að gera fyrirtæki á
Vestfjörðum betur samkeppn-
ishæf. Sömuleiðis verður að
gera stórátak til að tryggja að
sem mest af sjávarafurðum
okkar Íslendinga komi til
vinnslu í landi en verði ekki
fluttar erlendis til fullvinnslu
þar. En með því kerfi sem er í
gangi í sjávarútvegi lands-
manna er verið að kippa stoð-
unum undan landvinnslu sjáv-
arafurða á Íslandi,“ segir á vef
Verkalýðsfélags Vestfirðinga.
– thelma@bb.is
Samkomulag er um að tveir
bátar í eigu Kambs á Flateyri
verði seldir til nærliggjandi
plássa á Vestfjörðum. Þeir
taka ríflega helming kvótans
sem Kambur hafði til umráða.
Bæjarstjórn Ísafjarðar ætlar að
gera úttekt á því hvort hægt sé
að stofna félag sem gæti keypt
aflaheimildir í þeim tilgangi
að halda fiskvinnslu á staðn-
um.
Allar eigur Kambs ehf. á
Flateyri hafa verið til sölu frá
því fiskvinnslan var nýlega
lögð niður. Í eigu félagsins
voru fimm línubátar með hátt
í 2700 þorskígildistonn og
fiskvinnsluhúsið. Hinrik Krist-
jánsson framkvæmdastjóri
Kambs segir að samkomulag
hafi verið gert um að tveir
línubátar með um 1600 þorsk-
ígildistonn verði seldir til Ísa-
fjarðar og Bolungarvíkur.
Þriðji báturinn var seldur til
Dalvíkur en ekki hefur borist
tilboð í fiskvinnsluhúsið.
Hinrik segir að verið sé að
ganga frá sölu síðustu tveggja
bátanna til annarra staða á
landinu. Miklar áhyggjur eru
af atvinnuástandinu á Flateyri
eftir að 120 starfsmönnum
Kambs var sagt upp störfum.
Nýlega var samþykkt á bæjar-
stjórnarfundi á Ísafirði að gera
úttekt á því hvort bæjayfirvöld
gætu stofnað almennings-
hlutafélag sem keypti afla-
heimildir til að halda fisk-
vinnslunni á staðnum. Halldór
Halldórsson bæjarstjóri á Ísa-
firði segist hlynntur því að
gerð verði úttekt en staðreynd-
in sé sú að tiltölulega lítill afli
fáist fyrir mikið fé.
Bæjarstjórinn segir einnig
að kanna verði hvort skyn-
samlegra sé að stuðla að at-
vinnuuppbyggingu á Vest-
fjörðum fremur en að bæjar-
yfirvöld kaupi kvóta.
Einar K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegs og landbúnaðarráð-
herra sagðist í hádegisviðtali
á RÚV hafa fulla trú á að það
takist að bjarga atvinnulífinu
á Flateyri.
– smari@bb.is
Bátar í eigu Kambs seldir