Bæjarins besta - 31.05.2007, Page 4
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 20074
Staður til að seðja
hugann jafnt og magann
Helga Vala Helgadóttir,
bæjarstjórafrú og lögfræði-
nemi í Bolungarvík, hefur tek-
ið að sér rekstur nýs veitinga-
húss í Edinborgarhúsinu á Ísa-
firði. Í húsinu sem nú er verið
að ljúka við að gera upp verður
100 sæta veitingasalur auk
leiksals. Edinborgarhúsið var
byggt árið 1907 og er eitt stær-
sta timburgrindarhús sem
byggt hefur verið á Íslandi.
Unnið hefur verið að því und-
anfarin ár að gera Edinborgar-
húsið upp. Það var teiknað af
Rögnvaldi Á. Ólafssyni sem
nefndur hefur verið fyrsti
íslenski arkitektinn.
Fjölbreytt starfsemi hefur
farið fram í Edinborgarhúsinu
í gegnum tíðina m.a. saltfisk-
verkun og rækjuvinnsla. Í
rúman áratug hafa ýmis fé-
lagasamtök unnið að upp-
byggingu þess sem menning-
armiðstöðvar og hefur þar far-
ið fram blómleg starfsemi síð-
ustu ár. Má þá nefna að þar er
til húsa Listaskóli Rögnvaldar
Ólafssonar auk þess sem Litli
leikklúbburinn hefur þar að-
setur. Að auki hefur þar farið
fram fjöldi menningarvið-
burða enda er Edinborgar-
húsið eitt þriggja menningar-
húsa á Vestfjörðum sam-
kvæmt samningi mennta-
málaráðuneytisins og Ísa-
fjarðarbæjar.
Veitingahúsið verður opnað
á sjómannadag og af því tilefni
sló Bæjarins besta á þráðinn
hjá Helgu Völu til að forvitn-
ast um það hvað væri í vænd-
um á hinum nýja stað.
„Þetta verður ekki búlla, við
ætlum að hafa þetta fallegt
hús sem gott er að koma inn í
þar sem boðið verður upp á
skemmtilega létta rétti, uppá-
komur og veislur. Það verður
einnig möguleiki á að panta
sal undir veislur með veiting-
um frá okkur. Við erum opin
fyrir öllu.
Þetta verður kaffihús og
veitingahús í bland. Það verð-
ur opið frá í kringum 11 á
morgnana og fram yfir mið-
nætti. Við ætlum að gera út á
gott kaffi, ekki Bragakaffi, og
spennandi exótíska rétti. Við
erum að stíla inn á að þetta
verði svolítið fullorðins, sem
sagt fyrir fullorðið fólk sem
vill dekra við sig. Staður þar
sem maður getur horfst í augu
við elskuna sína, notið þess
að vera á trúnó með vinkonum
sínum og líka haldið upp á
afmælið sitt. Þetta verður ekki
endilega kaffihús í venjuleg-
um skilningi. Ég veit ekki
alveg hvað væri rétta orðið
yfir það, en þetta verður svona
staður þar sem maður getur
satt hugann sem og magann.“
Vel heppnað
menningarhús
– Þrátt fyrir að vera með
elstu húsunum á Ísafirði
verður að finna ýmis þægindi
nútímans í Edinborgarhúsinu.
„Það verður heitur reitur á
staðnum og því geta gestir
komið með fartölvurnar sínar
og vafrað um á netinu á meðan
það fær sér gott kaffi. Einnig
verður þarna að finna nýjustu
blöðin.“
– Nú eru þið staðsett í húsi
með mikla sögu sem telst af
mörgum vera eitt fallegasta
húsi Ísafjarðar.
„Já þetta er eitt fallegasta
húsið í bænum, það er alveg rétt.
Og það verður enn fallegra
með hverjum deginum nú
þegar úrbótunum er að ljúka.
Ég hef heimsótt mörg hús af
svipuðu tagi úti í heimi og
Edinborgarhúsið minnir mig
á afar vel heppnaða endur-
byggingu sem er á Norður-
bryggju, gríðarstórt pakkhús
sem nú er kúltúrhús í Kaup-
mannahöfn. Dásamlega fagurt
hús sem svipar til Edinborg-
arhússins, það hefur sömu
bjálkana og hér er að finna.
Mér finnst vel staðið að end-
urbyggingunni í Edinborginni
og allt er vel ígrundað. Til að
mynda hefur verið hugað að
hljóðeinangruninni og mörgu
öðru sem þarf að hugsa um
þegar verið er að byggja hús
sem á að rúma leiksýningar
og veitingahús undir einu þaki.“
Bjartsýn á sumarið
Nú er stórt ferðamannasum-
ar framundan, eru þið að stíla
inn á það með opnun hússins?
„Já við gerum það. Við
erum mjög bjartsýn á sumarið.
En við stólum líka á Vestfirð-
ingana sem vilja standa upp
frá hverdeginum og læðast út.
Auðvitað verða ferðamenn-
Unnið að lokafrágangi í Edinborgarhúsinu.
irnir hérna líka.
Það eru margir fínir staðir á
Ísafirði, en þetta verður pínu-
lítið öðruvísi staður og skem-
mtileg viðbót við flóruna
hérna.
Við erum opin fyrir þeim
möguleika að hafa lifandi
tónlistarflutning á staðnum
þegar ekki er eitthvað um að
vera í sölunum. Einnig væri
gaman að vera með myndlist-
arsýningar og bara alls konar
viðburði. Við erum því að leita
að dúndrandi talentum í söng
og leik til að koma og stíga á
stokk hjá okkur“, segir Helga
Vala og er blaðamaður kveður
hana snýr hún sér aftur að því
að undirbúa nýja veitingahús-
ið. Helga Vala Helgadóttir fyrir fram Edinborgarhúsið.
Nánari upplýsingar um starfið veita Stefán T. Sigurðsson í síma 660 2665 og Þorleifur
Einarsson í síma 660 2510.
Umsóknir berist til starfsmannaþjónustu Vífilfells, Stuðlahálsi 1, 110 Reykjavík eða
rafrænt á stefant@vifilfell.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Vífilfell auglýsir eftir
svæðisstjóra á Vestfjörðum
Vífilfell hf., er framsækið fyrirtæki á drykkjarvörumarkaði. Vífilfell hefur sterka stöðu á
mörkuðum fyrir gosdrykki-, vatn, bjór- og safa, auk þess sem það hefur haslað sér völl
á vínmarkaði.
Vífilfell er rótgróið og traust fyrirtæki með metnaðarfulla og skýra framtíðarsýn. Svæðis-
stjóri á Vestfjörðum er mikilvægur hluti af öflugri liðsheild okkar.
Starf svæðisstjóra á Vestfjörðum felst aðallega í sölu og þjónustu við viðskiptavini
Vífilfells á svæðinu. Við leitum að einstaklingi sem á gott með að vinna sjálfstætt, getur
unnið með fólki og hefur mikla þjónustulund. Viðkomandi þarf að hafa metnað,
frumkvæði og vilja til að takast á við krefjandi starf.