Bæjarins besta - 31.05.2007, Page 8
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 20078
„Það er algjör fornaldarhugsun að horfa alltaf
til einhverra eiturspúandi skítaverksmiðja.
Þetta eru gamlir draugar fortíðarinnar sem
eru að ásækja okkur með öllu þessu tali um
álbræðslur og olíuhreinsistöðvar.“
Heimastjórnarhöfðinginn og
flugvallarvertinn Jón Fanndal
Jón Fanndal Þórðarson verður seint sakaður um að hafa ekki skoðanir á
málunum. Enn síður verður hann sakaður um að liggja á þeim. Það ætti
að vera refsivert að segja Jón sigla með straumnum. Þegar Jóni mislíkar
eitthvað er hann iðulega búinn að skrifa grein um málið í blöðin um hæl,
kominn í framboð. Þegar honum er misboðið hvað mest, stefnir hann
saman tvö þúsund manns í miðbæ Ísafjarðar til að mótmæla og gera góð-
látlegt grín að því sem hann kallar sjálfur snobbsamkomur ráðamanna.
Já, það er verið að tala um Heimastjórnunarhátíðina frægu. Það er ekki
ólíklegt að flestir sem lesa þessar línur hafi fengið sér kaffibolla eða
kókglas hjá Jóni á Flugvallarbarnum sem hann hefur rekið í mörg ár. Eða
jafnvel fengið sér vatnsglas sem Jón borgar tíkallmeð til að stuðla að
aukinni vatnsdrykkju landans. Nú styttist í að Jón drekki sinn síðasta
kaffibolla á vellinum í bili, hann er að hætta að vinna og hyggst ásamt
konu sinni, Margréti Magnúsdóttur, flytja til Reykjavíkur sumar. Það lá í
augum uppi að fá hann í smá spjall áður en hann er rokinn.
„Ég er fæddur á Laugar-
landi í Ísafjarðardjúpi fyrir 75
árum. Það er merkilegt, þegar
við lítum á stöðu Vestfjarða
og Djúpsins í dag, að langafi
minn í móðurætt fluttist frá
Haukadal í Dalasýslu til Snæ-
fjallastrandar. Og hver var
ástæðan? Jú, gullkistan Ísa-
fjarðardjúpið, þar sem nóg var
af mat og það voru fleiri sem
fluttu úr Dölunum í Djúpið
og jafnvel alla leið í Jökulfirði.
Á Laugarlandi er Steinn Stein-
arr fæddur. Hann var nú ekki
lengi þar, var fluttur hálfgerð-
um hreppaflutningum í Dala-
sýslu en bróðir hans ólst upp
hjá afa mínum á Rauðumýri.
Forfeður mínir eru frá Laugar-
bóli í Ísafjarðardjúpi. Langafi
minn flutti sem smali frá
Hörgshlíð í Mjóafirði. Þetta
var hörkukarl og byggði
meðal annars kirkjuna á Naut-
eyri sem stendur enn, orðin
120 ára gömul. Laugarból var
stórbýli á þessum tíma og ábú-
endum leist vel á strákinn og
vildu að hann giftist heima-
sætunni. Hún var ekkert alltof
hrifin af þessum smaladreng
og hún sagði á brúðkaups-
daginn að það væri best að
skipta um föt og giftast þess-
um Jóni, það var ekki meira
hafarí í kringum það. Jón
langafi tók við Laugarbóli og
rak þar myndarbú auk þess að
vera með útræði frá Bolungar-
vík.
Ég var bara venjulegur
sveitastrákur á Laugarlandi og
gekk í skóla í Reykjanesi. Fyrst
þennan venjulega barnaskóla
og svo tveggja ára framhalds-
deild. Þegar ég var 17 ára gam-
all fór ég í Garðyrkjuskólann
í Hveragerði.“
–Hvað dregur þig í garð-
yrkjuna?
„Ég veit það ekki. Það var
bara einhver áhugi á grösum
og gróðri. Svo vissi ég að það
var gott að vera í Hveragerði.
Að loknu tveggja ára námi,
en þetta var heilsársnám, ver
ég kominn með próf upp á
vasann fór ég til Bandaríkj-
anna í verklegt framhaldsnám.
Ég vann á mjög stórri garð-
yrkjustöð í Ithaca í New York
fylki. Ithaca er mikil háskóla-
borg, meðal annars er í borg-
inni hinn frægi Cornell há-
skóli. Það var margt sem kom
mjög á óvart, eitt af því fyrsta
sem ég sá í New York var
sofandi svertingi á gangstétt-
inni, það þótti mér mjög
skrýtið. Þetta var árið 1952
og samgöngurnar bágbornari
en þær eru í dag. Flug til New
York tók 14 tíma með milli-
lendingum með Fjarkanum
sem kallaður var. Þetta var á
McCarthy tímanum og tíma
mikilla breytinga í Bandaríkj-
unum. En þetta voru að mörgu
leyti gömlu góðu Bandaríkin.
Það skemmtilegasta við dvöl-
ina var að ég ferðaðist mikið
um landið. Eftir eina viku í land-
inu var ég kominn til Chicago
sem var ein alræmdasta glæpa-
borg heims í þá daga. Mafíu-
starfsemin í algleymi. Ég fór
með tveimur Íslendingum
þangað. Þeir þekktu sænsk-
ættaðan strák þar og hann
sýndi okkur borgina. Okkur
var ráðlegt að yfirgefa ekki
bílinn í miðborginni. Fyrir
sveitastrák úr Djúpinu var
þetta mjög sérstakt. En mig
langaði mjög að fara eitthvað
til útlanda. Sem dæmi um
hvað tækninni fleygði fram á
þessum tíma þá tók það mig
ekki nema 10 tíma að fljúga
til baka. Einungis ári síðar.“
Gróðrarstöð sett
upp í Djúpinu
„Þegar ég kem heim veit ég
ekki alveg hvað ég á að gera
en ég sé auglýsingu frá Veður-
stofunni. Ég sótti um og fékk
starfið og var aðstoðarmaður
veðurfræðinga á Keflavíkur-
flugvelli. Veðurstofa Íslands
og ameríski herinn ráku sam-
eiginlega veðurstofu sem sá
um flugveðurspár á N-Atl-
antshafi. Eftir fjögur góð ár á
vellinum þá fæ ég fiðring í
puttana og vil komast í garð-
yrkjuna. Það lá beinast við að
fara á mínar heimaslóðir í
Djúpinu. Á Laugarlandi er
heitt vatn og því var það rakið
dæmi að flytja heim og stofna
gróðrarstöð. Það framleiddi ég
fyrst og fremst tómata, gúrkur
og blóm. Ég sá öllum Vest-
fjörðum fyrir grænmeti á þess-
um árum. Þetta voru öðruvísi
tímar og ekki eins auðvelt með
samgöngur og því gekk það
upp að framleiða einungis fyr-
ir heimamarkað. Ég var með
gróðrastöðina í tuttugu og
fimm ár. Ég var kominn með
það mikla framleiðslu að ég
var byrjaður að senda græn-
meti til Snæfellsness. Þá fór
ég eina ferð í viku til Búðar-
dals með mínar afurðir og þar
tók mjólkurbíllinn við þeim
og fór með þær á Snæfells-
nesið. Ég er svolítið montinn
af þessu, þetta var útrás þess
tíma.
Árin í Djúpinu voru mjög
góð, við ólum okkar börn upp
þarna og við eigum öll yndis-
legar minningar frá þessum
tíma. Ég var í fullu starfi við
gróðrarstöðina, var ekkert í
hefðbundnum búskap. Ég
byggði nýbýli þarna innfrá
sem heitir Laugarás sem
gróðrarstöðin var kennd við.
Byggði meira að segja sund-
laug og ég veit ekki hvað. Ég
byggði þetta allt með hönd-
unum, maður var svo ruglaður
á þessum tíma. Hvað maður
gat unnið, ég hreinlega skil
þetta ekki. Ég varð fyrir ýms-
um skakkaföllum, það hrundu
hjá mér gróðurhús vegna snjó-
þyngsla en þá var bara byggt
aftur. En þrátt fyrir þessi
skakkaföll þá var þetta ekkert
basl eins og sagt er. Þetta var
fyrst og fremst mjög skemmti-
legur tími og gekk alveg ágæt-
lega þótt ég hefði ekki safnað
neinum auði. Svo er líka gam-
an að því að hafa rekið nyrstu
gróðrarstöð í heimi. En við
vorum með meiri rekstur inn-
frá.
Við hjónin settum á fót
saumastofu á Laugarási. Hún
kallaðist Saumastofa Margrét-
ar og við saumuðum frysti-
húsasloppa fyrir frystihúsin á
norðanverðum Vestfjörðum.
Við keyptum okkur tæki til
að sníða, og við sniðum sjálf
og svo fengum við komurnar
í sveitinni til að sauma fyrir
okkur og var þá borgað per
slopp. Við vorum í mörg í
saumaskapnum. Þegar ég kem
aftur í Djúpið er svokölluð
Inn-Djúps áætlun í fullum
gangi. Halldór Pálsson, þáver-
andi búnaðarmálastjóri, sagði
áætlunina vera 90% vitleysu.
Þetta fólst í stækkun túna og
búa og það var mikil gróska
innfrá á þessum tíma. Mikill
samhugur í fólki og margt
ungt fólk í sveitinni að byggja
upp sín bú.
Skrúðgarðyrkja
í Reykjavík
„Árið 1984 voru breyttir
tímar í grænmetisframleiðslu,
garðyrkjustöðvarnar voru
orðnar stærri, samgöngur betri
og enginn grundvöllur fyrir
þessu lengur. Þannig að við
hættum rekstri og flytjum til
Reykjavíkur. Ég gerist verk-
stjóri hjá Skrúðgörðum Reyk-
javíkur. Það er allt annars eðlis
en að vera í tómötum og gúrk-
um en skrúðgarðyrkju. Ég
hafði ekkert verið í þessu
nema þá fyrir sjálfan mig. Ég
stofnaði líka fyrirtæki sjálfur
sem hér JF Garðyrkja og ég
tók að mér að sjá um garða
fyrir fólk og fyrirtæki. Mér
fannst mjög fínt að vera í
Reykjavík en það blundaði
alltaf í mér að fara aftur á
Vestfirðina go eftir tíu ár í
höfuðborginni lét ég það eftir
mér að fara vestur. Ég byrjaði
í sjoppurekstri í Brúarnesti
sem flestir muna nú eftir, en
er núna búið að rífa. Fljótlega
fer ég á flugvöllinn og hef
verið þar síðan. Ég er þar sem
verktaki, er húsvörður auk
þess sem ég er með veitinga-
reksturinn. Það er litið á það
sem sjálfsagða þjónustu að
það sé veitingarekstur á flug-
völlum. Nú hef ég verið á vell-
inum í rúman áratug og það
styttist í að ég hætti, enda orð-
inn 75 ára gamall.
Háskóli Vestfjarða
er lífsnauðsyn
–Hefurðu alltaf skipt þér
mikið af þjóðfélagsmálum?
„Ég hef alltaf haft áhuga á
mínu umhverfi og stjórnmál-
um og ég fór að skrifa mikið í
blöðin og skipta mér af hlutun-
um þegar stóriðjuuppbygg-
ingin var að hefjast fyrir aust-
an. Ég ætla ekkert að níða af
þeim skóinn en mér fannst,
og finnst reyndar enn, að við
ættum að fá eitthvað líka. Við
eigum að fá okkar skerf þó
það verði kannski í öðru formi.
Við höfum enga möguleika á
álveri eða öðrum orkufrekum
iðnaði. Það sem ég lít fyrst og
fremst til núna er stofnun há-
skóla. Það er númer eitt, tvö
og þrjú og býður upp á ótæm-
andi möguleika sé rétt að því
staðið. Það eru einhverjir úr-
tölumenn sem segja, hvar ætl-
ið þið að fá nemendur? Það
munu koma nemendur frá öll-
um landshornum sem og frá
útlöndum, ég hef ekki nokkrar
áhyggjur af því. Það er engin
smáræðis umsvif sem fylgja
einum háskóla, bæði nemend-
ur, kennarar og annað starfs-
fólk. Svo er alltaf möguleiki á
að út frá háskóla myndist aðrar
atvinnugreinar.
Stærsta baráttumál okkar í
dag er háskólinn, ekki nokkur
spurning. Svo barðist ég með
kjafti og klóm gegn því að
Orkubúið yrði selt. Ég fer enn-
þá fram á að því verði skilað
aftur.Ég vildi að ég gæti sagst
vera bjartsýnn á að við fáum
það aftur en horfur eru því
miður dökkar. Orkubúið er eitt
blómlegasta fyrirtækið á Vest-
fjörðum og afar grátlegt að
missa það úr höndunum á okk-
ur. Á sama tíma hefur ríkið
verið að selja orkufyrirtæki
meðan það kaupir af okkur.
Mönnum var náttúrulega stillt
upp við vegg hálfpartinn
skikkaðir til að selja. En við
áttum bara að segja nei, láta
þá bara taka það eignarnámi.
Það voru skuldir sveitarfélag-
anna við Íbúðalánasjóð sem
olli því að okkur var skipað
að selja. Páll Pétursson, þáver-
andi félagsmálaráðherra, sem
sagði einfaldlega: Seljið bara
Orkubúið. Sveitarfélögin fóru
þá að leita logandi ljósi að
einhverju sem þau gátu selt.
Orkubúið var að skila ríflega
200 milljóna króna hagnaði á
síðasta ári meðan bæjarsjóður
rambar á barmi gjaldþrots.
Ekki bara hér á Ísafirði heldur
um allt land.
Þegar grunnskólarnir voru
sendir yfir á sveitarfélögin þá
fylgdi því ekki nægilegt fjár-
magn frá ríkinu. Enda hver
getur sagt með nægilegri vissu
hvað það kostar að reka einn
grunnskóla. Sveitarfélögun-
um voru afhentar einhver lús
og þeim sagt, dugir þetta?
Þessir peningar duga aldrei
og stjórnendur sveitarfélag-
anna viðurkenna að við fáum
ekki nógu stóran bita af kök-
unni.“
Heimastjórn-
arhátíðin
–Hvað varð til þess að þú
hélst Heimastjórnarhátið?
„Það var ekkert annað en
uppreisnarandinn sem rak mig
út í að halda Heimastjórnarhá-
tíðina. Ég gat ekki sætt mig
við að þessi stóra og mikla
hátíð yrði eingöngu ætluð lok-
uðum hóp manna. Það var
haldin hérna einhver snobb-
samkoma, komið fyrir minn-
isvarða og ég segi ekki annað
en að þetta var minningu
Hannesar Hafsteins til háð-
ungar. Í framhjáhlaupi, af því
að Hannes Hafstein kemur
upp í hugann, má koma því að
í sambandi við fyrirhugaða