Bæjarins besta - 31.05.2007, Síða 12
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 200712
Útboð
Tæknideild Bolungarvíkur óskar eftir til-
boðum í verkið „Gluggaskipti á suðurhlið“.
Ofangreindu verki skal vera að fullu lokið
eigi síðar en 10. ágúst 2007. Útboðsgögn
eru til sölu á kr. 3.000.- hjá Bolungarvíkur-
kaupstað, Aðalstræti 10-12, 415 Bolung-
arvík.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 12.
júní nk. kl. 11:00 að viðstöddum þeim
bjóðendum, sem þess óska.
Tæknideild Bolungarvíkur.
Bolungarvíkurkaupstaður
Okkur vantar
lögreglumenn
í lögregluna á
Vestfjörðum
Komdu og kynntu
þér hvað er í boði, því
þetta er gefandi og
skemmtilegt starf,
þetta er fjölbreytt
starf,
þetta er mjög líflegt
starf,
þetta er krefjandi
starf,
hér er góður starfs-
andi.
Kröfur til þín:
Íslenskur ríkisborgari
á aldrinum 20-40 ára,
hafa gott þrek,
kunna að synda,
hafa ökupróf,
þolinmæði.
Upplýsingar gefa
Önundur Jónsson í
síma 450 3737 og Jón
Svanberg Hjartarson í
síma 450 3747.
Fjörutíu stúdentar útskrifaðir
Hæstu einkunn hlaut Edith Guðmundsdóttir
Hansen stúdent af náttúrufræðibraut eða 9,41.
Menntaskólanum á Ísafirði
var slitið í 37. sinn á laugar-
dag. Fjörutíu nemendur voru
útskrifaðir; 28 stúdentar, tveir
sjúkraliðar, einn úr renni-
smíði, tveir af 2. stigi vél-
stjórnar og sjö úr grunnnámi
málmiðngreina. Hæstu eink-
unn hlaut Edith Guðmunds-
dóttir Hansen stúdent af nátt-
úrufræðibraut eða 9,41. Hlaut
hún verðlaun sem Aldaraf-
mælissjóður Ísafjarðarbæjar
gefur þeim nemanda sem hlýt-
ur hæstu meðaleinkunn á stúd-
entsprófi. Einnig hlaut Edith
verðlaun kanadíska sendiráðs-
ins fyrir framúrskarandi ár-
angur í frönsku og ensku, pen-
ingaverðlaun, sem Ragnheið-
ur Hákonardóttir, Guðbjartur
Ásgeirsson og fjölskylda gefa
til minningar um Guðbjart
Guðbjartsson, fyrir framúr-
skarandi árangur í raungrein-
um og verðlaun Stærðfræði-
félagsins fyrir framúrskarandi
árangur í stærðfræði.
Útskriftin fór fram í Ísa-
fjarðarkirkju og fluttu nem-
endur skólans tónlistaratriði.
Anna Birta Tryggvadóttir,
Kristinn Gauti Einarsson,
Halldór Smárason og Brynj-
ólfur Óli Árnason fluttu portú-
galskt sambalag. Helga Mar-
grét Marzelíusardóttur flutti
eigið lag og texta. Dagný Her-
mannsdóttir söng við undir-
leik Beáta Joó. Hulda Braga-
dóttir lék undir fjöldasöng.
,,Ég mun hverfa aftur til
fyrri starfa við Kvennaskólann
í Reykjavík í haust. Ég óska
Jóni Reyni Sigurvinssyni eft-
irmanni mínum velfarnaðar í
embætti skólameistara MÍ.
Skólanum, starfsmönnum
hans og nemendum óska ég
alls hins besta um langa fram-
tíð”, sagði Ingibjörg Guð-
mundsdóttir fráfarandi skóla-
meistari.
,,Mér er ljóst að skólinn er
samfélaginu hér mjög dýr-
mætur. Hann þarf að efla enn
frekar, í menntuðu fólki felast
tækifæri framtíðarinnar, hinn
eftirsótti hagvöxtur. Skóli eins
og MÍ sem einn þjónar stóru
svæði verður að geta boðið
fjölbreytt nám sem höfðar til
áhuga og hæfileika sem flest-
ra, bæði unglinga og þeirra
sem vilja endurmennta sig og
leita nýrra tækifæra. Mitt mat
er að skólinn sé á góðri sigl-
ingu inn í framtíðina hvað
þetta varðar.
Eitt af því sem ég hef lært í
vetur er að bóknám og verk-
nám á góða samleið í skóla. Í
MÍ get ég ekki fundið annað
en öllu námi sé gert jafn hátt
undir höfði og nemendur flæði
eðlilega á milli námsbrauta.
Þetta er gott fyrir þá nemendur
sem hafa fundið sínar sterku
hliðar og áhugasvið. Þeir ættu
að geta fundið í skólanum nám
við hæfi.
Til að auka enn á fjölbreytni
námsins í skólanum hefur ver-
ið gengið til samstarfs við 3X
Tecnology um nám í stálsmíði
til sveinsprófs. Formlegur
samningur milli skólans og
fyrirtækisins er í burðarliðn-
um. Þetta er metnaðarfullt
verkefni og sýnir enn og aftur
í verki þann óvenjulega mikla
stuðning og velvilja sem skól-
inn nýtur frá atvinnulífinu hér.
Ég er viss um að þetta nám
verður í háum gæðaflokki þar
sem fyrirtækið býr mjög vel
að tækjum og búnaði í stál-
smíði. Einnig verður næsta
vetur boðið upp á tveggja ára
grunnnám snyrtigreina sem er
ný námsbraut við skólann.
Viðskipta- og hagfræðibrautin
hefur verið endurvakin. Einn-
ig verður aftur farið af stað
með kennslu í rafvirkjun ef
aðsókn leyfir,”segir í ræðu
skólameistara. – thelma@bb.is
40 nemendur voru útskrifaðir frá MÍ á laugardag.