Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.2007, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 21.06.2007, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 20078 STAKKUR SKRIFAR Menntaskólinn á Ísafirði Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Jón Hættir sem íþróttafulltrúi Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Ísafjarðarbæjar hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. júní. Jón tók við starfinu haustið 2005 af Birni Helgasyni sem sinnt hafði starfinu í áratugi. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar þakkaði honum fyrir vel unnin störf hjá Ísafjarðarbæ og óskaði honum velfarnaðar í framtíðinni. Jón sinnti stöðu forstöðumanns Félagsmiðstöðvarinnar á Ísafirði um árabil áður en hann tók við sem íþrótta- og tómstundafulltrúi. Jón starfar sem landvörður á Hornströndum og hefur gert það undanfarin ár. Landaður afli dregst saman Afli fyrri hluta árs á Vestfjörðum er tæpum 2.600 tonnum minni en á sama tímabili í fyrra. Fyrstu fimm mánuði ársins 2007 var landaður afli á Vestfjörðum 20.323 tonn en á sama tímabili í fyrra komu á land 22.906 tonn og er munurinn tæp þrjú þúsund tonn. Mestu munaði um tæplega 2.000 tonna samdrátt í lönduðum þorskafla og 740 tonna samdrátt í steinbít. Aukning varð í löndunum á tinda- skötu, keilu, löngu, gulllaxi, rækju, ufsa og grálúðu. Einn aðstoðarskólastjóri í stað tveggja Gera á breytingar á stjórnun Grunnskóla Ísafjarðar þannig að þar starfi einn aðstoðar- skólastjóri í stað tveggja. Í fjárhagsáætlun 2007 kemur fram að þetta sé í samræmi við skipulag flestra annarra skóla landsins og stuðlar bæði að hagræðingu og markviss- ara stjórnkerfi. Eðlilegt þykir að starf þess aðstoðarskóla- stjóra sem hefur verið skemur í starfi verði lagt niður. Skarp- héðinn Jónsson, skólastjóri GÍ hefur sett fram drög að nýju skipulagi sem gerir ráð fyrir að í stað aðstoðarskólastjóra II, verði deildarstjóri ungl- ingastigs sem starfi náið með námsráðgjafa vegna valgreina og fleiri verkefna þess stigs. Aðstoðarskólastjóri hafi um- sjón með kennslu yngri stiga, sérkennslu, sérdeild og stuðn- ingsfulltrúa. Í stað aðstoðar- skólastjóra tvö gerir skóla- stjóri einnig ráð fyrir að náms- ráðgjafi fái aukin hlutverk og verði hluti af stjórnunarteymi skólans, með skólastjóra, að- stoðarskólastjóra og deildar- stjóra. Rætt hefur verið við þann aðstoðarskólastjóra sem verið hefur skemur í starfi og honum gerð grein fyrir stöðu mála. Hann hefur óskað eftir að ákvörðun um framhaldið verði tekin sem fyrst, til að hann gæti gert viðeigandi ráð- stafanir. Jafnframt hafnaði hann stöðu deildarstjóra við skólann af þeirri ástæðu að hann ætti erfitt með að draga sig út úr verkum sínum sem stjórnandi við skólann ef hann héldi áfram að starfa þar. Skóla- og fjölskylduskrif- stofa Ísafjarðarbæjar hefur óskað eftir því að ákvörðun verði tekin um það hvort leggja beri niður yngri stöðu aðstoðarskólastjóra við GÍ. Bæjarráð hefur vísað erindinu til afgreiðslu í bæjarstjórn. Grunnskólinn á Ísafirði. Vegagerð um Arnkötludal miðar vel Unnið er af krafti í vegagerð- inni um Arnkötludal. Unnið er í Gautsdal og er hægt að aka dágóðan spöl eftir nýja veginum. Að sögn verktakans, Ingileifs Jónssonar, er einungis unnið í Gautsdal sem stendur og verður svo áfram. Það mun svo ráðast hver framvindan verður. Verktakafyrirtækið Ingileifur Jónsson ehf. var lægstbjóðandi í vegagerðina. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki haustið 2009 en útlögn á neðra burðarlagi á að vera lokið 1. desember 2008 og frágangur þannig að hægt verði að heimila umferð um veginn þann vetur. Með veginum styttist vegalengdin milli suðvestur- hornsins og norðanverðra Vest- fjarða um ríflega 40 km. – smari@bb.is Stórvirkar vinnuvélar á veginum í Gautsdal. Mynd: Björn Halldórsson. Margt bjátar á hjá Vestfirðingum þessi misserin. Uppnám ríkir í atvinnu- málum og kvótaskerðing vofir yfir. En marga ljósa punkta er að finna í samfélaginu. Í síðasta eintaki BB var einkar athyglisvert viðtal við Ingibjörgu S. Guðmundsdóttur, sem stýrt hefur Menntaskólanum á Ísafirði á því skóla- ári sem senn er liðið. Það er eftirtektarvert hve jákvæð Ingibjörg er og einn- ig að hún sér mörg tækifæri til að sækja fram á við í starfi skólans. Hún hvet- ur íbúa til að standa saman um hag skólans og tekur reyndar fram að áhuga og umhyggju sé að finna frá samfélaginu. Hér talar kona með reynslu af skólastjórnun, en hún hefur lengi verið við stjórnvöl Kvennaskólans í Reykjavík. Ekki hefur farið mikið fyrir henni, en augljóst er að hún ann starfi sínu og er trú því sem henni er falið. Það er markverður og góður kostur stjórnanda hverju starfi sem hann kann að gegna, ekki síst ef um er að ræða skóla. Menntaskólinn á Ísafirði er samfé- laginu mun verðmætari en margir gera sér grein fyrir. Það er gagnlegt að heyra hve mikils skólameistarinn metur þá umhyggju sem fyrirtæki í sam- félaginu sýna skólanum með ýmsum hætti, einkum stuðningi við verknám. Máltækið segir: Glöggt er gests augað. Stundum greina aðkomnir, sem ekki hafa lagast samfélaginu um of, betur kosti og galla þess. Við hin, sem erum orðin órofa þáttur þess, eigum stundum erfiðara með að hefja okkur upp fyrir dægurþrasið. Því miður ríktu deilur um skólann áður en Ingibjörg kom til tímabundinna starfa. Ekki hefur borið á óeiningu á liðnum vetri. Skal tekið undir með Ingibjörgu að skólinn sé í góðum höndum þeirra sem stjórna munu honum á næsta ári. Jafnframt er sú ósk sett fram að kennarar, nemendur og íbúar standi með þeim í vandasömum störfum. Jóni Reyni Sigurvinssyni er vel treystandi fyrir skólanum eins og Ingibjörg segir. En að læðist sú hugsun að hér vestra gildi sú kenning að enginn sé spámaður í sínu föðurlandi. Þegar að kreppir í samfélaginu er íbúum nauðsynlegt að standa saman um hagsmuni sína. Góður framhaldsskóli er ómetanlegur. Allir hafa hagsmuma að gæta af því að vel takist til. Nemendur eiga mest undir því að skóli fái frið og ekki ríki deilur um starf hans og stjórnendur. Foreldrar nemenda eiga talsverðra hagsmuna að gæta einnig. Það er dýrt að senda börn í burtu. Auk þess minnka líkur umtalsvert á því að þeir sem leita í framhaldsskóla annars staðar skili sér aftur heim. En allt samfélagið á Vestfjörðum hefur hagsmuni af því að hér sé og verði starfræktur góður framhaldsskóli. Honum fylgja störf menntaðs fólks, kennara og stjórnenda. Skóli hefur áhrif langt út fyrir veggi sína. Takist vel til verða þau uppbyggileg fyrir samfélagið. Stöndum vörð um Menntaskólann á Ísafirði.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.