Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.2007, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 21.06.2007, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 200712 Námsstyrkur til vestfirskra kvenna Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Minningarsjóði Gyðu Maríasdóttur. Tilgang- ur sjóðsins er að veita vestfirskum konum námsstyrki. Sjóðurinn styrkir nám á sviði menningar og lista hérlendis sem erlendis. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2007. Umsóknum ásamt námsvottorðum, stað- festingu og upplýsingum um fyrirhugað nám sendist til undirritaðra. Sigrún Guðmundsdóttir Hjallavegi 23, 400 Ísafjörður Netfang: sigrunogbiggi@simnet.is Jón Reynir Sigurvinsson, Menntaskólanum á Ísafirði Pósthólf 97, 400 Ísafjörður Netfang: jon@misa.is Ræstingar Hjá Heilbrigðisstofnuninni Ísafjarðarbæ er laus 100% staða starfsmanns við ræst- ingar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi VerkVest og stofnanasamningi HSÍ. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Fjórð- ungssjúkrahússins á Ísafirði. Öllum um- sóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Frekari upplýsingar gefur Guðrún Krist- jánsdóttir, ræstingarstjóri í síma 450 4500. Umsóknarfrestur er til 30. júní 2007. Hugað að skógrækt sunnan Tunguár Sumarstarf Skógræktarfélags Ísafjarðar er hafið og verður plantað á svæði sem félagið fékk úthlutað, sunnan Tunguár. „Til stendur að Jón Heimir Hreinsson planti fyrir okkur í sumar, en ekki verða starfsmenn í því að setja niður tré fyrir félagið,“ segir Sigríður Steinunn Axelsdóttir, sem er í skógrækt- arfélaginu. Önnur hefðbundin sumarstörf félagsins er tiltekt í Simsongarði í Tungudal. Undanfarin ár hefur skógræktin verið að gróðursetja um 8-10 þúsund plöntum, að megninu til birki, sitkagreni og fura. Skógræktarfélag Ísafjarðar var stofnað árið 1945 af áhugafólki um verndun skógarleifa og ræktun nýrra skóga. Magdalena Sigurðardóttir hefur verið formaður félagsins frá árinu 1977. Meðalfjöldi atvinnulausra á Vestfjörðum var 29 í maí, eða 0,7% af áætluðum mannafla svæðisins. Þetta eru svipaðar tölur og í apríl, en atvinnu- lausum fjölgaði um einn milli mánaða. 1,3% vestfirskra kvenna voru atvinnulausar í maí samkvæmt tölum Vinnu- málastofnunar, en í apríl voru það 1,4%. Atvinnulausir karl- ar á Vestfjörðum voru 0,3% áætlaðs mannafla í maí, en voru 0,4% í apríl. Ef miðað er við maí 2006 minnkar at- vinnuleysið á Vestfjörðum um 0,9%, og er meðaltal atvinnu- lausra síðasta árs 32, eða 0,8%. Atvinnuleysi á landinu öllu í maí var 1,1%. Flestir voru atvinnulausir í Ísafjarðarbæ, Vesturbyggð og Bolungarvíkurkaupstað, eða sjö í hverju sveitarfélagi. Þrír voru skráðir atvinnulausir í Strandabyggð, tveir í Tálkna- fjarðarhreppi og einn í Kaldr- ananeshreppi. Engir eru skráð- ir atvinnulausir í öðrum sveit- arfélögum Vestfjarða. Laus- um störfum fækkaði töluvert á Vestfjörðum milli apríl og maí, fóru úr 36 í 22. Það eru hinsvegar fleiri störf en voru í boði í maí á síðasta ári, en þá voru 20 laus störf. 0,7% atvinnuleysi á Vestfjörðum Hlaupið af stað. Nýfæddar og níræðar saman í kvennahlaupi 270 konur á öllum aldri tóku þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ, sem haldið var á Ísafirði á laugar- dag. Þetta er lítilsháttar aukn- ing frá síðasta ári, þegar þátt- takendur voru 260 talsins. Elsti keppandinn sem skráði sig til leiks í ár er 90 ára gömul, og yngstu þátttakendurnir enn í barnavögnum. Að vanda var skipulagning hlaupsins í hönd- um blakliðsins Skellanna, en þetta var í 18. sinn sem Kvennahlaupið fer fram á Ísafirði. „Stemmningin var frábær,“ segir Margrét Eyjólfsdóttir í Skellunum. „Veðrið var æðis- legt, 12 stiga hiti, blankalogn og örfáir regndropar duttu á okkur í lokin, en þetta var ekta hlaupaveður. Gæti ekki verið betra.“ Konurnar byrj- uðu á að hita upp við íþrótta- húsið á Torfnesi áður en þær spruttu úr spori, eða gengu af Þátttakendur fóru hver á sínum hraða. stað, allt eftir getu hverrar og einnar. Hægt var að velja um þrjár vegalengdir, þrjá, fimm eða sjö kílómetra. Um 16.000 konur tóku þátt í Kvennahlaupinu sem haldið var á 90 stöðum um allt land. Þá gátu íslenskar konur hlaup- ið á um 18 stöðum víðs vegar um heim. Kvennahlaupið er útbreiddasti og fjölmennasti íþróttaviðburðurinn hér á landi en stærstu hlaupin eru í Garðabæ, Mosfellsbæ, á Ak- ureyri og á Ísafirði. Yfirskrift hlaupsins að þessu sinni var „Hreyfing er hjartans mál“, en hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna og draga fleiri konur til dauða en allar tegundir krabbameins samanlagt. Kon- ur sem hreyfa sig daglega geta minnkað áhættuna á krans- æðastíflu um 30%. – tinna@bb.isAllir þátttakendur fengu verðlaunapening að hlaupi loknu.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.