Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.2007, Blaðsíða 14

Bæjarins besta - 21.06.2007, Blaðsíða 14
FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 200714 Sýning á verkum myndlist- armannsins Kristins E. Hrafns- sonar var opnuð í sal Lista- safns Ísafjarðar í Gamla sjúk- rahúsinu á Ísafirði á laugar- dag. Ferðalagið og áttirnar eru þráður í gegnum sýninguna, og þá sér í lagi drottning átt- anna, sjálft norðrið og hægt að segj að norður sé yfirskrift sýningarinnar. Það er óhjá- kvæmilegt að sigla, segir í ljóði eftir Sigurð Pálsson og þá ljóðlínu notar Kristinn í eitt verkanna. Hann segir ljóð- línuna lýsa vel að mannskepn- an eigi alltaf að vera leitandi og setningin gangi upp bæði í eiginlegri sem óeiginlegri merkingu. Sýningin var sett upp í gall- erý I8 í Reykjavík í vetur og er þetta í fyrsta skipti sem Kristinn setur sömu sýning- una upp á tveimur stöðum. Hann segir sýninguna að mörgu leyti eiga betur heima á Ísafirði en í Reykjavík. Þetta er í fjórða skiptið sem Kristinn sýnir á Ísafirði. Kristinn E. Hrafnsson er einna þekktastur fyrir verk sín á opinberum vettvangi, útiverk og skúlp- túra sem unnir eru inn í um- hverfið. Kristinn stundaði nám við Myndlista- og handíða- skóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í Münc- hen í Þýskalandi. Verk hans er að finna á öllum helstu lista- söfnum á Íslandi. – smari@bb.is Kristinn stillti sér upp fyrir ljósmyndara þegar hann var að setja sýninguna upp. Myndlistarsýning í Gamla sjúkrahúsinu Hópur barna og unglinga sækir nú námskeið hjá Golfklúbbi Ísafjarðar en að sögn Rögnvalds Magnússonar leiðbeinanda hefur aðsóknin verið mjög góð. „Það eru um 20 börn í yngri hópnum sem er fyrir 9-12 ára og svo eru 8 í hópnum fyrir 13-16 ára. Það virðist því vera mikill áhugi krökkunum og námskeiðin hafa gengið mjög vel“, segir Rögnvaldur en hann er nýkominn aftur á íslenska grund eftir að hafa verið að læra golf í lýðháskóla í Dan- mörku frá áramótum. Meðfylgjandi mynd er af nokkrum ungum og efnilegum kylfingum ásamt Rögnvaldi Magnússyni á Tungudalsvelli á fimmtudag. – thelma@bb.is Ungir kylfingar á Ísafirði Mikil áhugi virðist vera hjá yngri kynslóðinni á golfi á Ísafirði. Þorskafli dregst saman milli ára Þorskaflinn á Vestfjörðum í maí dróst saman um tæplega 700 tonn ef miðað er við sama mánuð síðasta árs. Alls var 1.919 tonnum af þorski landað á Vestfjörðum í maí, á móti 2.596 árið 2006. Er þetta samkvæmt tölum Hagstofunnar. Mest var landað af þorski af öllum afla, en næstmest af ýsu, eða 1.095 tonnum. 435 tonn voru veidd af steinbít og er það töluvert minna en veitt var í maí 2006, en þá voru 747 tonnum af steinbít landað á Vestfjörðum. Athygli vert er að 104 tonnum af rækju var landað, en ekkert var af rækju í sama mánuði í fyrra. Aðeins var veitt meira af rækju á Vesturlandi nú í maí, eða 274 tonn. Bein útsending frá Við Djúpið Rás eitt verður með beina útsendingu frá tónleikum tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið, sem haldnir verða á Ísafirði á laugardag. Á tónleikunum, sem hafa hlotið nafnið Rás eitt við Djúpið, koma margir kennara hátíðarinnar fram, m.a. sellóleikarinn Erling Blöndal Bengtsson, sem flytur verk eftir Bach, Evan Ziporyn sem mun spila á gamelan og Tinna Þorsteinsdóttir, en hún mun flytja nýtt verk Jónasar Tómassonar. „Okkur fannst þetta mjög spennandi tónlistarhátíð,“ segir Elísabet Ragnarsdóttir hjá Ríkisútvarpinu. Alþjóðlegir leikarar í tæknilegri sýningu Æfingar á uppsetningu leik- félagsins Hallvarðar Súganda á Suðureyri á Galdrakarlinum í Oz eru nú í fullum gangi en frumsýning verður 13. júlí. „Þetta er stórt og viðamikið verkefni og margir sem koma að því. Við spilum þetta mikið eftir hendinni og munum nota lýsingu og tæknibrellur með leikmyndinni, þetta er svolítið tæknilega flókin sýning“, seg- ir Rúnar Guðbrandsson, leik- stjóri. Leikritið, sem byggt er á klassískri sögu L. Franks Baum, verður Sæluhelgarleik- ritið í ár. Segja má að því standi alþjóðlegt leikaralið en fuglahræðuna leikur ung- verskur vatnsaflsfræðingur og þýsk kona leikur nornina. Það verkur athygli þó að fugla- hræðan kunni ekki stakt orð í íslensku þegar hún tók við hlutverkinu. „Hann er að læra íslensku í gegnum æfingarnar og er fljótur að læra. Fugla- hræðan mun þó tala með hreim en hver veit fyrir víst hvernig fuglahræður tala hvort eð er“, segir Rúnar. Samhliða æfingunum er verið að gera heimildarmynd um starfsemi Hallvarðar Súg- anda. „Kvikmyndagerðar- maður hefur verið að vinna að heimildarmynd sem mun gefa svipmynd af þessari upp- setningu okkar og bæjarlífinu í kring.“ Leikfélagið Hallvarður súg- andi var stofnað árið 1982 en hafði fyrir þann tíma starfað innan íþróttafélagsins Stefnis á Suðureyri. Árið 1989 lagðist starfsemi félagsins niður og var ekki virkt þar til það var endurvakið árið 1998 af áhuga- sömu fólki um leiklist. Síðan þá hefur leikfélagið sett upp að minnsta kosti eina sýningu á ári sem markar upphaf Sælu- helgarinnar. – thelma@bb.is Suðureyri við Súgandafjörð. Siglinganámskeið Sæ- fara á Ísafirði hafa farið vel af stað, en þetta er fjórða árið í röð sem sigl- ingaklúbburinn heldur námskeið fyrir börn og unglinga. Kennarar eru Haraldur Tryggvason og Rúnar H. Haraldsson. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 9-14 ára. Þátttakendur eru margir hverjir að koma í annað sinn enda ríkir al- menn ánægja með nám- skeiðin. Ekki eru bara kenndar siglingar heldur fá krakkarnir einnig að fræðast um lífríkið í fjörunni og eru fengnir sérfróðir gestakennara til þess. – thelma@bb.is Ánægja með siglinga- námskeið Sæfara Þátttakendur eru margir hverjir að koma í annað sinn enda ríkir almenn ánægja með námskeiðin.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.