Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.04.2008, Síða 2

Bæjarins besta - 03.04.2008, Síða 2
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 20082 Bolungarvík með næst mesta fjöldann Bolungarvík hafnaði í öðru sæti yfir þátttöku miðað við heildarfólksfjölda í Lífshlaupinu. Þátttakendur voru í 67 af 79 sveitarfélögum landsins. Flestir tóku þátt í Grímsnes- og Grafningshrepp, sem var með 20% þátttöku af sínum sveitung- um, og í þriðja sæti var sveitarfélagið Hornafjörður. Fram kemur á vef Lífshlaupsins að sú tegund hreyfingar sem var vinsælust meðal þátttakenda var ganga með 22,85%, líkamsrækt var með 15,62%, skíði með 3,66% og hlaup með 3,39%. Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni á vegum Íþróttasambands Íslands sem byrjaði þann 4. mars og snýst um að fá fólk til þess að huga að daglegri hreyfingu. Markmiðið með átakinu var m.a. að fá fólk til að gera hreyf- ingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, við heimilisstörfin, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta. Atvinnulaus- um fækkar Vestfirðingum á skrá yfir atvinnulausa hjá Vinnu- málastofnun hefur fækkað um 11 á rúmum hálfum mánuði. Í dag eru 17 skráðir atvinnulausir, sjö karlmenn og tíu konur, en um miðjan mánuðinn voru það 28 manns. Guðrún Stella Giss- urardóttir, forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar á Vestfjörðum, segir stofnun- ina ekki hafa neinar skýr- ingar á þessari fækkun en tölunum verði að taka með fyrirvara. „Nokkrir skráðu sig ekki á tímabilinu 20.- 25. mars og eru því afskráð- ir. Við höfum ekki skýring- ar, ef til vill eru einhverjir farnir til vinnu en hugsan- legt er að einhver hafi gleymt að skrá sig og komi því inn að nýju eftir mán- aðamót þegar fólk áttar sig á að það er afskráð“, segir Guðrún Stella. Þess má geta að atvinnu- leysi var minnst á landinu í febrúar eða 0,6% af áætluð- um mannafla samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Meðalfjöldi atvinnulausra á Vestfjörðum var 21 í febr- úar eða sami fjöldi og í jan- úar. Atvinnuleysi kvenna var 0,9% í febrúar og at- vinnuleysi karla var 0,4%. Atvinnulausir karlar voru átta í febrúar en sjö í janúar en atvinnulausar konur voru þrettán í febrúar en fjórtán í upphafi árs. – thelma@bb.is Fiskvinnslan Vísir hf. hef- ur ákveðið að fresta vinnslu- stöðvun á Þingeyri um einn mánuð en fyrirtækið hafði tilkynnt um fimm mánaða vinnslustopp, frá 1. maí til 1 október. „Við fengum nýtt verkefni sem við sáum ekki fyrir í vetur. Vinnslustopp- inu verður því frestað um einn mánuð til að byrja með en ef vel gengur gæti úr orðið að það yrði stytt um mánuð og jafnvel enn meira“, segir Viðar Friðgeirsson, rekstrarstjóri hjá Vísi á Þing- eyri. Aðspurður segir hann starfsfólkið vera ánægt með fréttirnar og það sé bjartsýnt á framhaldið. „Það þýðir ekkert annað, svartsýnin dugar nú skammt.“ Vísir hf. er með starfsstöðv- ar á fjórum stöðum á land- inu en höfuðstöðvarnar eru í Grindavík. Tilkynnt var einnig um vinnslustöðvun á Húsavík í fimm mánuði. Að sögn Viðars er þokka- lega nóg að gera á Þingeyri. „Þetta svona lafir í því. Hráefnisöflunin hefur verið erfið og þá aðallega vegna brælu og svo tekur tíma að komast í gang eftir páskana. Við áttum von á bíl í morg- un (þriðjudag) með fisk en hann sat fastur á Steingríms- fjarðarheiði í nótt. Ökumað- urinn reyndi að brjótast fyrir heiðina en svo fór sem fór og hann varð að bíða mokst- urstæki sem fóru frekar seint af stað í morgun þar sem óveður og hávetur er þarna.“ – thelma@bb.is Vinnslustöðvun á Þingeyri frestað Þingeyri. Ljósm: Mats Wibe Lund. Húsið er óaðskiljanlegur hluti byggðarinnar í Miðkaupstað að mati Húsafriðunarnefndar ríkisins. Húsafriðunarnefnd leggst ein- dregið gegn niðurrifi Straums Húsafriðunarnefnd ríkisins leggst eindregið gegn því að Silfurgata 5, ýmist nefnt Norska bakaríið eð Straumur, verði rifið. Ísafjarðarbær keypti húsið til niðurrifs og átti lóðin að nýtast undir skólalóð. Nikulás Úlfar Másson, for- stöðumaður Húsafriðunar- nefndar, skoðaði húsið og fyrr í vetur og fundaði með bæjar- fulltrúum og embættismönn- um bæjarins. Halldór Hall- dórsson, bæjarstjóri Ísafjarð- arbæjar, spurði nefndina í tölvupósti þann 23. nóvember 2007 hvort nefndin myndi skyndifriða húsið ef bærinn gæfi út leyfi til niðurrifs. Svar nefndarinnar er svohljóðandi: „Sérstaða Ísafjarðar er mikil í byggingarsögu þjóðarinnar. Felst hún aðallega í því að varðveist hefur heildstæð byggð frá uppgangsárum bæjarins, tímabilsins milli 1880 og 1910. Byggðin í Mið- og Hæst- a-kaupstað ber þessu sérlega gott vitni og á hún sér fáa líka á Íslandi. Húsafriðunarnefnd mælist til þess að Ísafjarðar- bær láti fullvinna húsakönnun á eyrinni, að Túngötu, sem hafin var á árunum 1992-3. Sú vinna taldist vera skyndi- könnun, byrjun á verki sem e.t.v. yrði hægt að vinna meira ofan í kjölinn í nánustu fram- tíð, eins og segir í greinargerð með húsakönnuninni. Húsa- friðunarnefnd hefur samþykkt að styrkja gerð húsakönnunar á Ísafirði með kr. 550.000. Niðurstöður húsakönnunar- innar verði síðan notaðar til að meta byggðina á ofantöld- um svæðum í heild sinni til varðveislu. Þannig yrði um- rædd byggð varðveitt til fram- tíðar sem mikilvægur þáttur í bæjarmynd Ísafjarðar. Húsið að Silfurgötu 5, sem hér er til umfjöllunar, er óað- skiljanlegur hluti byggðar- innar í Miðkaupstað, elsta þéttbýliskjarna Ísafjarðar. Húsafriðunarnefnd mælist því eindregið til þess að húsið verði ekki rifið heldur verði því fundið nýtt hlutverk og ytra byrði þess fært nær upp- runalegri mynd. Húsafrið- unarnefnd lýsir hér með vilja sínum til að koma að þessu verkefni, bæði með beinu fjár- framlagi og ráðgjöf, “ segir í svari nefndarinnar. – smari@bb.is Bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur samþykkt að taka lán vegna framkvæmda við fé- lagsheimili bæjarins. Fjórir bæjarfulltrúar samþykktu af- greiðsluna, tveir voru á móti og einn sat hjá. Við þetta tilefni lét Anna G. Edvardsdóttir bóka fyrir hönd meirihluta bæjarstjórnar: „Meirihluti bæjarstjórnar Bolungarvíkur lýsir yfir furðu sinni vegna afstöðu Elínar Jónsdóttur til framkvæmda við Félagsheim- ili Bolungavíkur, sérstaklega í ljósi þess að hún samþykkti framkvæmda- og fjármögn- unaráætlun þessarar fram- kvæmdar.“ Elín Jónsdóttir, sem sat fund- inn í fjarveru Elíasar Jónatans- sonar, lagði á móti fram eftir- farandi bókun: „Í ljósi þess hve fjármögnun verksins er kostnaðarsöm tel ég að eðli- legra hefði verið að staldra við og leita hagkvæmari leiða til fjármögnunar verksins.“ Um er að ræða óverðtryggt framkvæmdalán Sparisjóðs Bolungarvíkur með breytileg- um vöxtum sem eru 18,85%. Tekist á um fjármögnun framkvæmda Víkurbær, félagsheimili Bolvíkinga.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.