Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.04.2008, Side 6

Bæjarins besta - 03.04.2008, Side 6
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 20086 Vonbrigði Ritstjórnargrein Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is · Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, símar 456 4694 og 863 7655, halfdan@bb.is og Smári Karlsson, sími 866 7604, smari@bb.is. Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 300 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. · Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X Kveikt á GSM-sendi við Bjarkalund Kveikt var á nýjum GSM-sendi frá Vodafone við Bjarkalund í Reykhólasveit sem dregur 30 kílómetra á föstudag. Sendinum var komið upp til bráðabirgða við Bjarkalund, en vonir standa til að varanlegur sendir verði á Hofstaðahálsi við Þorskafjörð og nái þá að miðla yfir stærra svæði. Uppsetning þessa sendis er hluti af uppbyggingu á GSM-sambandi á stofnvegum sem Fjar- skiptasjóður stendur fyrir. Fram hefur komið hjá Árna Sigurpálssyni hótelhaldara á Bjarkalundi að skortur á GSM-sambandi hafi haft mjög neikvæð áhrif á gistinguna. Hann hefur hins vegar góða ástæðu til að fagna í dag, því nýverið fékk hann einnig ADSL-tengingu á svæðið. Sextíu fiskar á land í dorgveiði Dorgað var í gegnum ís á Hólmavatni í Dýrafirði á páskadag. 61 fiskur kom á land og var meðalþyngdin 0.6 kg á fisk. Mest var veitt af fallegri bleikju. Stærsti fiskurinn vóg rúmlega þrjú pund, eða 1.54 kg. Fjöldi manna mætti á svæðið, þótt ekki væru allir að veiða og veðrið var eins og best verður á kosið, sól og logn. Hólmavatn er vinsæll veiðistaður en eldisfiski er sleppt í vatnið og er veiði þar nokkuð örugg. A-sveit Ísafjarðar sigraði í boðgöngu kvenna. Sveitina skipuðu þær Stella Hjaltadóttir, Guðbjörg Rós Sigurðardóttir og Sólveig G. Guðmundsdóttir. Í öðru sæti var B-sveit Ísafjarðar, skipuð þeim Ingibjörgu Elínu Magnúsdóttur, Katrínu Sif Kristbjörnsdóttur og Silju Rán Guðmundsdóttur. Í þriðja sæti var C-sveit Ísafjarðar. Sveitina skipuðu Rannveig Halldórsdóttir, Jóna Lind Karlsdóttir og Kolbrún María Elvarsdóttir. Sævar og Rannveig Íslands- meistarar í sprettgöngu Fjölmenni var við setning- arathöfnina á fimmtudag og skemmtu áhorfendur sér hið besta við að fylgjast með sprettgöngunni en þar sigruðu Sævar Birgisson frá Sauðár- króki og Rannveig Jónsdóttir frá Ísafirði. Þess má geta að Rannveig mætti öðrum Ísfirð- ingi í úrslitum, henni Silju Rán Guðmundsdóttur. Veðrið setti aðeins strik í dagskrána því forseti Íslands, sem ætlaði að setja mótið, komst ekki þar sem flugi síð- degis var aflýst vegna veðurs. Sömu sögu var að segja um hátt í 70 þátttakendur sem höfðu ætlað að fljúga frá bæði Akureyri og Reykjavík en fóru á endanum með rútu vest- ur. Þar á meðal voru nokkrir sem höfðu ætlað að keppa í sprettgöngunni. Akureyringar sigursælir Dagný Linda Kristjánsdótt- ir frá Akureyri og Björgvin Björgvinsson sigruðu í stór- svigi á föstudag. Áttu Akur- eyringar góðan dag og náðu þremur efstu sætunum í stór- svigi kvenna. Var samanlagð- ur tími Dagnýjar Lindu eftir tvær umferðir 2:08.77. Í öðru sæti var Tinna Dagbjartsdóttir á 2:12.80 og í þriðja sæti Kat- rín Kristjánsdóttir á 2.14.75. Sigurvegari karla, Björgvin Björgvinsson, fór brautina á samanlagt á 2:01.95. Í öðru sæti var Árni Þorvaldsson, Ármanni, á tímanum 2:05.04 og Gísli Rafn Guðmundsson, Ármanni, var þriðji á tímanum 2:05.54. Svíarnir Fredrik Nordt og Andre Bjoerk náðu öðrum og þriðja besta tíman- um, Nordt á 2:02.34 og Bjoerk á 2:04.75. Keppt var í svokölluðum Sandfellsbakka á skíðasvæð- inu í Tungudal og voru að- stæður á köflum erfiðar vegna hvassviðris og skafrennings. Sama var upp á teninginn á gönguskíðasvæðinu á Selja- landsdal og gerði keppendum erfitt fyrir. Í 10 km hefðbundinni göngu pilta 17-19 ára sigraði Akur- eyringurinn Brynjar Leó Krist- insson en hann gekk á tíman- um 00:35:29. Í öðru sæti var Sigurjón Hallgrímsson, Ísa- firði, á tímanum 00:35:43 og í þriðja sæti var Stefán Páls- son, Ísafirði, á tímanum 00:36: 18. Í flokki 20 ára og eldri karla sigraði Andri Steindórsson frá Akureyri í 15 km hefðbund- inni göngu. Hann gekk á tím- anum 00:51:56.25 en í öðru sæti var Sævar Birgisson sem gekk á tímanum 00:52:53.50. Í þriðja sæti var Birkir Þór Stefánsson, Ströndum, sem gekk á tímanum 00:54:28.60. Í flokki kvenna voru gegnir 5 km og þar sigraði Stella Hjaltadóttir frá Ísafirði á tímanum 00.18.55. Í öðru sæti var Sólveig G. Guðmunds- dóttir, Ísafirði, á tímanum 00.19.48 og þriðja varð Guð- björg Rós Sigurðardóttir, Ísa- firði, á tímanum 00.20.40. Björgvin og Dagný Linda sigursæl Dagný Linda Kristjánsdótt- ir frá Akureyri og Björgvin Björgvinsson frá Dalvík urðu á laugardag, Íslandsmeistarar í svigi á Skíðamóti Íslands sem fram fer á Ísafirði. Áður höfðu þau sigrað í stórsvigi. Var samanlagður tími Dag- nýjar eftir tvær umferðir 1:41.62 mín. Önnur var Katrín Kristjánsdóttir, einnig frá Akureyri, á tímanum 1:42.66 mín. Í þriðja sæti var Selma Benediktsdóttir, Ármanni, á tímanum 1:46.36 mín. Dagný og Björgvin urðu jafnframt Íslandsmeistarar í alpatví- Grænlenskir sjómenn í landvistarbanni Á þessum degi fyrir 22 árum Þegar grænlenska rækjuveiðiskipið Nuk var á Ísafirði um miðjan marsmánuð sl., lentu nokkrir skipverja í slagsmálum við íslensk ungmenni utan við skemmtistað í bænum. Lögregla kom að og vildi skakka leikinn en gekk lítt og í skýrslu tilgreinir hún sérstaklega ódælni sjómannanna. Í kjölfar þessa ritaði bæjarfógeti umboðsmanni skipanna á Ísafirði, bréf þar sem kunngjört var að skipverjum yrði ekki heimil landvist milli kl. 8 að kvöldi og 8 að morgni í næstu tvö skiptin sem skip þetta kæmi til Ísafjarðar. Skipstjóri var þó undanþeginn þessu. Ástæðan var fyrrnefnd ólæti og mótþrói við lögreglu.[…] BB náði tali af skipstjóranum Karli Andreassen og spurði hann álits á málinu. „Ég trúi ekki að þessi ástæða ein sé að baki ákvörðun fógeta“, sagði hann. „Það getur ekki verið að menn séu svo óréttsýnir, að dæma heila skipshöfn í landbann vegna slagsmála fárra. Auk þess er það enginn þeirra manna sem í slagnum voru sem er hér um borð nú–það hefur að mestu verið skipt um áhöfn eins og við gerum reglulega.“ Skipstjórinn sagði það lengi hafa viðgengist að nokkrir Íslendingar, einkanlega unglingar veittust að grænlensku sjómönnunum, áreittu þá og reyndu að niðurlægja á ýmsan hátt.“ Margsinnis hefur það verið gert að umtalsefni í leiðaraskrif- um BB hversu sinnulausir Íslendingar hafa verið í öllu er varðar lífríki hafsins. Lengst af snerist tilveran um eitt: fiska sem mest, sama hvernig að því var staðið. Sem betur fer er tekið að rofa til. Okkur er orðið ljóst að hafið þolir ekki ótak- markaða ásókn og glórulausa umgengni. Því fagnaði BB sam- þykkt Landsambands smábátaeigenda um að hafnar verði markvissar rannsóknir á hafsbotninum og lífríki hans og sér- stakri rannsóknastofnun til að annast verkefnið verði komið á fót á Vestfjörðum ,,þar sem sjávarútvegur er undirstaða mann- lífs og mikill þekkingarforði er til staðar, auk þess sem stofnanir með háskólamenntuðu fólki eru stöðugt að eflast,“ eins og segir í rökstuðningi fyrir tillögunni. Undirtektir Háskólaseturs Vestfjarða eru afar jákvæðar og ekki leikur vafi á að rannsóknastofnun af þessu toga myndi efla háskólastarfið hér til muna. Hið sama verður ekki sagt um ,,hið opinbera“. Haft er eftir Einari K. Guðfinnssyni, sjávarút- vegsráðherra, að ekki verði stofnuð ný opinber rannsóknastofn- un á sviði sjávarútvegs. Þá vitum við það! Gamla Hafró er greinilega í uppáhaldi á sumum bæjum. Sú sjálfsagt ágæta stofnun hefur þó lítið sinnt því verkefni sem felst í tillögu LS. Þar þarf að koma nýtt blóð til. Telur ráðherrann ofrausn að ætlast til þess af ríkisvaldi, sem stöðugt klifar á Ísafjarðarbær sem byggðakjarna á Vestfjörðum, að háskólasamfélagið hér verði eflt með rannsóknastofnun, sem allir með einhverja þekkingu á þessum hlutum telja hér best í sveit setta? Rann- sóknastofnun, sem þörf var á fyrir löngu. Eða, er kannski ætl- unin að troða verkefninu inn í háskólasamfélagið í Reykjavík? Slíkt hefur þegar verið orðað og kæmi ekki á óvart. Svo mörg eru dæmin um fjölgun starfa á vegum hins opinbera í Reykjavík á meðan greinarnar eru stöðugt hoggnar af ríkistrénu á landsbyggðinni. Það verða mikil vonbrigði ef ríkisvaldið nýtir ekki tækifærið og efnir hluta fyrirheita sinna um byggðakjarna með stofnun sjálfstæðrar rannsóknastofnunar á sviði sjávar- útvegs í tengslum við Háskólasetrið á Ísafirði. Einu sinni var sagt að stjórnmálamaður nokkur hefði í tilteknu máli sett nýtt Íslandsmet í klúðri. Það er langt í frá að með skipun þriggja nýrra sendiherra hafi núverandi utanríkisráðherra slegið met fyrirrennara sinna í þeim efnum. Gjörningurinn bendir þó til að ráðherrann ætli ekki að láta sitt eftir liggja til að viðhalda fjölda sendiherranna. Öllum dyrum skal haldið opnum til að koma útvöldum og uppgjafa póli- tíkusum allra flokka í þessar eftirsóttu stöður. Ætla mátti, eftir sendiherraútungun síðustu missera og ára, að nóg væri komið; að tækifærið til uppstokkunar yrði nýtt þegar við blasir að fimm til sjö sendiherrar muni láta af störfum á næsta ári. Tilefnislaus skipun þriggja nýrra sendiherra bendir til að ut- anríkisráðherra ætli sér að sigla sama sjó og fyrirrennararnir. Það eru mikil vonbrigði. s.h.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.