Bæjarins besta - 03.04.2008, Page 7
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 7
Sjö vestfirskir meðal fimmtán efstu
Sjö vestfirskir bátar eru meðal þeirra fimmtán aflahæstu í febrúarmánuði í
flokki smábáta undir 10 tonnum. Samkvæmt samantekt Gísla Reynissonar hjá
Fiskifréttum var Ásdís ÍS þriðji aflahæsti báturinn með tæp 46 tonn úr 11
veiðiferðum. Þá var Gullbjörg ÍS með rúm 42 tonn úr 15 ferðum, Björg
Hauks ÍS með tæp 39 tonn úr 11 róðrum, Bjarni Egils ÍS með tæp 29 tonn
úr 11 ferðum, Berti G með 28 tonn úr 8 róðrum, Hrönn með 24 tonn úr 6
ferðum og Snjólfur ÍS með rúmlega 20 tonn úr 4 veiðiferðum.
Bolvíkingar ofarlega að vanda
Sirrý ÍS var þriðji aflahæsti smábátur
landsins í febrúar með tæp 116 tonn úr 22
veiðiferðum. Þá var Guðmundur Einarsson í
sjötta sæti listans með tæp 106 tonn úr 22
róðrum og Björgmundur ÍS í því áttunda
með 95 tonn úr 20 róðrum. Allir þessir
bátar eru með heimahöfn í Bolungarvík.
Frá keppni í risasvigi.
keppni.
Í flokki stúlkna 17-19 ára
sigraði Selma Benediktsdóttir,
Ármanni, á tímanum 1:46.36
mín. Í öðru sæti var Silja
Hrönn Sigurðardóttir, Austra,
á 1:48.03 mín og í þriðja sæti
var Emilía Björt Gísladóttir,
KR, á 1:52.84 mín. Í flokki
pilta 17-19 ára sigraði Stefán
Jón Sigurgeirsson á tímanum
1:36.55 mín, í öðru sæti var
Jón Viðar Þorvaldsson á
1:36.70 mín og í þriðja sæti
var Sigmar Örn Hilmarsson á
1:36.88 mín. Eru þeir allir frá
Akureyri. Jón Viðar Þorvalds-
son og Selma Benediktsdóttir
urðu jafnframt Íslandsmeist-
arar í alpatvíkeppni í sínum
flokki.
Þá var keppt í göngu með
frjálsri aðferð og urðu úrslit
þar með þeim hætti að í
kvennaflokki varð Íslands-
meistari Sólveig Guðmunds-
dóttir en hún gekk 5 km á
tímanum 17:34.10 mín. Í öðru
sæti var Stella Hjaltadóttir á
tímanum 17:43.80 mín og í
þriðja sæti var Silja Rán Guð-
mundsdóttir sem gekk á tím-
anum 18:27.90 mín. Þær eru
allar frá Ísafirði.
Í flokki pilta 17-19 ára
hampaði Akureyringurinn
Brynjar Leó Kristinsson Ís-
landsmeistaratitli en hann
gekk 10 km á tímanum 33:29.
80 mín. Annar var Sigurjón
Hallgrímsson, Ísafirði, á 34:
27.40 mín og í þriðja sæti var
Kristinn Þráinn Kristjánsson
frá Akureyri á 42:04.60 mín.
Íslandsmeistari í flokki
karla 20 ára og eldri varð
Sævar Birgisson frá Sauðár-
króki en hann gekk 10 km á
tímanum 33:13.70 mín. Annar
var Andri Steindórsson, Akur-
eyri, sem gekk á tímanum
33:17.20 mín og í þriðja sæti
var Birkir Þór Stefánsson af
Ströndum á tímanum 33:11.
80 mín. Sigurvegarar í tví-
keppni urðu þau Stella Hjalta-
dóttir, Brynjar Leó Kristins-
son og Andri Steindórsson.
Akureyringar
og Ísfirðingar
Íslandsmeistarar
í boðgöngu
Skíðamóti Íslands á Ísafirði
lauk á sunnudag með keppni í
samhliða svigi og boðgöngu.
Keppnin í samhliða svigi var
æsispennandi þrátt fyrir að
veður væri erfitt á köflum. Í
lokaviðureigninni mættust
þær Silja Hrönn Sigurðardótt-
ir, Austra, og Kristrún María
Björnsdóttir, Akureyri. Lauk
þeirri viðureign sem sigri Silju
Hrannar en Kristrún María
varð í öðru sæti og Inga Rakel
Ísaksdóttir, Akureyri, í þriðja
sæti. Í karlaflokki mættust
Kristinn Ingi Valsson, Dalvík,
og Sigurgeir Halldórsson, Ak-
ureyri, og sigraði Kristinn
Ingi. Sigurgeir varð í öðru sæti
en í þriðja sæti varð Björn
Ingason, Akureyri.
Í flokki 17-19 ár stúlkna
var sigurvegari Silja Hrönn
Sigurðardóttir, Austra. Önnur
varð Íris Guðmundsdóttir, Ak-
ureyri, og þriðja Selma Bene-
diktsdóttir, Ármanni. Í flokki
pilta 17-19 ára sigraði Björn
Ingason, Akureyri, en annar
varð Ágúst Freyr Dansson,
einnig frá Akureyri. Í þriðja
sæti varð Brynjar Jökull Guð-
mundsson, Víkingi.
Björgvin Björgvinsson,
Dalvík, og Dagný Linda Krist-
jánsdóttir, Akureyri, sem bæði
hampa þreföldum Íslands-
meistaratitli á Skíðamótinu í
ár, hættu bæði keppni.
Í boðgöngunni urðu úrslit
þau að A-sveit Skíðafélags
Akureyrar bar sigur úr býtum
en hana skipuðu Andri Stein-
dórsson, Jón Þór Guðmunds-
son og Brynjar Leó Kristins-
son. Gengu þeir 3 x 7,5 km á
tímanum 1:19:14.50. Í öðru
sæti var A-sveit Skíðafélags
Ísfirðinga en hana skipuðu
Sigurjón Hallgrímsson, Ólaf-
ur Th. Árnason og Kristbjörn
R. Sigurjónsson. Gengu þeir
á tímanum 1:23:20.90. Í þriðja
sæti var B-sveit Skíðafélags
Akureyrar sem gekk á tíman-
um 1:25:48.70. Hana skipuðu
Baldur Helgi Ingvarsson,
Gísli Einar Árnason og Ólafur
H. Björnsson.
Í boðgöngu kvenna voru
gengnir 3 x 2,5 km og sigraði
A-sveit Ísafjarðar á tímanum
28:16.00. Sveitina skipuðu
þær Stella Hjaltadóttir, Guð-
björg Rós Sigurðardóttir og
Sólveig G. Guðmundsdóttir.
Í öðru sæti var B-sveit Ísa-
fjarðar á tímanum 31:29.20,
skipuð þeim Ingibjörgu Elínu
Magnúsdóttur, Katrínu Sif
Kristbjörnsdóttur og Silju Rán
Guðmundsdóttur. Í þriðja sæti
var C-sveit Ísafjarðar á tíman-
um 35:39.05. Sveitina skip-
uðu Rannveig Halldórsdóttir,
Jóna Lind Karlsdóttir og Kol-
brún María Elvarsdóttir.
Þrátt fyrir fremur leiðinlegt
veður þótti mótið takast vel.
– thelma@bb.is
Frá keppni í sprettgöngu sem var fyrsta keppnisgrein mótsins.