Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.04.2008, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 03.04.2008, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 11 „En Guðmundur má eiga það, að hann er búinn að koma allri þessari fjölskyldu í flesta stjórnmálaflokka. Einhvern tímann fyrir mörgum árum var félagatali Framsóknarflokksins laumað inn á DV og ég fór að blaða í þessum ósköpum. Þá sá ég að Halldóra kona mín var skráð í Framsóknarflokkinn og að minnsta kosti tvö af börnunum okkar.“ að sjá leikrit á Þingeyri og Geiri var kallaður til með límó- sínuna. Með okkur var Leifur Björnsson, sem núna er einn af eigendum World Class, fað- ir Björns Leifssonar sem kenndur er við það fyrirtæki. Leifur var þá fjölskyldumaður og ábyrgur skipstjóri á smá- bát. Líka var í þessari ferð Steingrímur Stefnisson, sem núna rekur Catalínu í Kópa- vogi. Leikritið á Þingeyri átti að byrja klukkan níu en við kom- um þangað tíu mínútur yfir. Þá sagði Gylfi að við færum sko ekkert að fara inn á miðja sýningu, við skyldum bara halda áfram til Reykjavíkur, sem hafði þó aldrei verið ætl- unin. Þá var Reykjavík lengra undan en núna, ætli það hafi ekki verið góðir tíu tímar að keyra þetta. Þegar Gylfi segir þetta með Reykjavíkurferð- ina, þá segist Leifur þurfa fyrst að fá veðurspá. Geiri var með talstöð og kallaði upp Ísafjarð- arradíó og fékk veðurspá. Spáð var stinningskalda og þá sagði Leifur að þetta væri í góðu lagi – við bara förum suður. Þetta var mikil ævintýra- ferð. Ég man að við vorum komnir einhvern tímann um morguninn til Reykjavíkur og gistum á Hjálpræðishernum. Leifur var síðan í leigubílnum með Gylfa hringinn í kringum landið. Leiðir okkar skildi hins vegar í Reykjavík. Ég hafði þó þá ábyrgð að koma mér vestur aftur og á sjó. En þeir héldu áfram og mig minnir að þetta hafi verið hálfs mánaðar túr hjá þeim.“ Síðasti bjórinn – Þú varst erfiður, brennivín og allt það, hvenær lagaðist það? „Þetta lagaðist áður en ég fór á annað stigið í Stýri- mannaskólanum tuttugu og þriggja ára gamall. Þá gerðist ég ráðsettur og fór að verða eins og maður. Ég var alltaf einhvern veginn svo villtur. Ég var svo sem ekkert í nein- um afbrotum heldur aðallega í því að slást á böllum og kunni ekkert með áfengi að fara. Það fylgdi mér nú að einhverju leyti fram eftir aldri en þegar ég var 39 ára hætti ég alveg. Ég var kominn að þeirri niðurstöðu að ég hefði ekkert út úr brennivíninu. Það var um miðja nótt sem ég ákvað að hætta. Ég átti eftir einn bjór í ísskápnum og ákvað að drekka hann þegar ég vaknaði um morguninn og síðan væri ég hættur. Það hef- ur alveg gengið þessi fimmtán ár og ég er guðslifandi feginn. Ég get samt alveg umgengist fólk undir þeim kringumstæð- um. Ég hef ekkert á móti drukknu fólki. Nema sjálfum mér.“ Fjölskyldan – Þú festir ráð þitt þegar þú varst í Stýrimannaskólanum ... Já, ég náði mér í skipstjóra- dóttur frá Ísafirði, Halldóru Jónsdóttur, Símonarsonar, ættaða annars vegar úr Bol- ungarvík og Skálavík og hins vegar af Hornströndum. Það er góð genablanda. Hún er alger Vestfirðingur að ætt en ég á engar ættir fyrir vestan. Halldóra er bróðurdóttir Jóa Sím, skipstjóra á Bessanum í Súðavík. Hún er komin af sjósóknurum eins langt aftur og séð verður. Mér þótti skyn- samlegt að blanda bændakyn- inu mínu saman við sjóara- kynið hennar. Það hefur gefist ágætlega. Við eigum fimm börn sem eru öll hið besta fólk. Róbert (33 ára) er elstur. Hann er ljósmyndari og yfir ljósmyndadeildinni hjá tíma- ritaútgáfunni Birtingi og DV. Hann fór snemma í ljósmynd- irnar og hefur náð fínum ár- angri. Hrefna Sigríður (30 ára) býr í Danmörku. Maður henn- ar er Guðmundur Hallsson, skipstjóri á nótaskipi þar. Síðan kemur Jón Trausti (27 ára), sem hefur verið einkenni- lega samferða mér. Hann byrj- aði átján ára á DV og síðan á hann eiginlega sama feril og ég. Hann var á Fréttablaðinu og svo aftur á DV áður en ég náði honum sem aðstoðarrit- stjóra á Mannlíf. Svo stofnuð- um við saman tímaritið Ísafold þar sem hann var ritstjóri með mér. Eftir það fór ég aftur á Mannlíf en Jón Trausti varð eftir á Ísafold þar til hann kom sem meðritstjóri minn á DV. Það er ágætt að hafa þessa kynslóð með sér. Hann er heimspekingur að mennt og við höfum alltaf getað unnið mjög vel saman. Símon Örn (19 ára) er að útskrifast frá Menntaskólan- um í Hamrahlíð í vor. Loks er örverpið okkar, Harpa Mjöll (11 ára).“ Kominn í hólinn – Þú hefur væntanlega „kom- ist í hólinn“ þegar þú varst búinn með Stýrimannaskól- ann ... „Þegar ég var búinn með skólann 1977 fórum við til Flateyrar og ég réð mig á Gylli sem annar stýrimaður hjá Grétari Kristjánssyni skip- stjóra. Það þýddi að maður var á dekki sem nokkurs konar verkstjóri. Á þessum döllum voru tvær vaktir, bátsmaður með aðra og annar stýrimaður með hina. Síðar varð ég fyrsti stýrimaður en aldrei skipstjóri þann áratug sem ég var á Gylli. Þá var nánast útilokað að vinna sig upp í að verða skipstjóri. Á þessum árum frá því kring- um 1977 og fram um 1985 var nákvæmlega engin hreyf- ing á mönnum. Allir héldu í plássin sín enda höfðu menn gullgrafaratekjur og það lá við að maður þyrfti að hlusta á dánartilkynningar til að finna pláss til að verða meira en háseti eða annar stýrimaður. Stundum voru upp í sex-sjö réttindamenn um borð. Mig minnir að það hafi verið 1988 sem ég fór á Slétta- nesið á Þingeyri sem fyrsti stýrimaður og leysti af sem skipstjóri. Ég varð aldrei fast- ur skipstjóri á togara og var í rauninni löngu búinn að fá nóg af sjómennskunni. Að vísu man ég að mér fannst spennandi tilhugsun að verða skipstjóri en þegar maður var búinn að prófa það var niður- staðan sú að þetta væri kann- ski ekki alveg toppurinn á til- verunni. Hugurinn var löngu farinn að leita í land.“ Þá svitnuðu Flateyringar „Ég hætti á Sléttanesinu 1993 og keypti bát frá Hólma- vík sem ég nefndi Jón Trausta og var með hann í eitt ár, en var á þeim tíma orðinn ákveð- inn í því að koma mér í blaða- mennsku. Þegar ég var á Gylli var ég fréttaritari DV á Flat- eyri, byrjaði 1983 og hafði rosalega gaman af þessu. Þetta lyfti mér upp úr amstrinu að fara út í þorpið með mynda- vélina og teipið og skrifa bara eitthvað. Fara bara að leita frétta. Það er held ég besti skólinn, að vera á stað þar sem ekki er mikið að gerast á

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.