Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.04.2008, Síða 12

Bæjarins besta - 03.04.2008, Síða 12
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 200812 heimsvísu og þurfa að finna fréttirnar. Þetta varð hálfgerð árátta. Mér var alveg sama þó að ég fengi ekkert borgað, ég vildi skrifa fréttir og sjá þær birtast á prenti. Framan af kostaði þetta mig dálítil ónot frá einstaka fólki heima því að mér fannst að ég ætti að segja frá hlutunum eins og þeir voru. Menn voru vanir því að fréttaritarar væru blaða- fulltrúar sinna byggðarlaga. Ég leit aldrei þannig á. Mér fannst að ég ætti einfaldlega að segja fréttir eins og þær lægju fyrir. Ég leit svo á að það væri ekki mitt hlutverk að fegra hlutina, ekkert frekar en að sverta þá. Stundum skrifaði ég það sem kallað er viðkvæmar frétt- ir. Ég man eftir einni óskap- lega viðkvæmri frétt. Þá var dagheimilið á Flateyri kært til barnaverndarráðs, sem mér fannst nú alveg stórmerkilegt. Ástæðan var sú að þar var aðeins eitt salerni en ekki tvö. Þá svitnuðu Flateyringar. Frá þessu átti auðvitað ekki að segja. Það átti bara að segja frá því þegar kveikt var á jólatrénu og þegar einhverjir voru að gera eitthvað gott.“ „Okurbú Vestfjarða“ – Þegar þú berð saman annars vegar starf fréttaritara í litlu plássi þar sem allir þekkja alla og hins vegar starf blaðamanns á dagblaði á landsvísu, finnst þér hlutverk fréttaritarans vandasamara? „Nei, sem fréttaritari hafði ég miklu meira svigrúm. Á þeim tíma var Regína Thorar- ensen fréttaritari DV fyrir austan og það þótti alveg við hæfi að fréttaritarar fengju að láta skoðanir sínar í ljós í frétt- unum. Regína gerði það óspart og var landsþekkt fyrir. Ég komst að því seinna þegar ég fór að vinna við blaðamennsku, að þar var ekki ætlast til þess að maður væri að álykta mikið sjálfur í fréttum og helst ekki neitt. Dæmi um persónumótaða frétt er þegar ég skrifaði um að nýja sundlaugin á Flateyri væri kynt með svartolíu vegna þess að rafmagnið frá Orkubúi Vestfjarða var svo dýrt. Ég kom því að í fréttinni að fyrir- tækið væri kallað Okurbú Vestfjarða og það kostaði mig einhver ónot frá orkubússtjór- anum. Fréttina endaði ég með þeim fádæmum sem ég myndi aldrei leyfa mér í dag: Ég sagði að þorpsbúar væru ekkert hissa á því að notast væri við svartolíu til að kynda sund- laugina enda fengju þeir mán- aðarlega 220 volta sjokk í pósti frá Orkubúinu. Svona lagað gerir maður ekki í dag en manni leyfðist það alveg þá. Maður sá að Regína komst upp með allan fjandann, en ég gerði þetta í miklu takmarkaðra mæli. Ég var nokkuð fljótur að temja mér að halda mig innan hæfi- legra marka. Þetta átti strax mjög vel við mig. Eftir að við fengum fax- tækið um borð í Gylli var fréttin komin suður alveg um Þá var ekkert annað gera en pakka saman og við fluttum suður í Þorlákshöfn árið 1994. Þar var ég með bátinn á humri, réð skipstjóra en var sjálfur stýrimaður. Ég entist ekki nema tvo túra á þessum hum- arveiðum, sem eru ömurleg- asti veiðiskapur sem ég hef komist í fyrr og síðar. Þetta er einna líkast því að taka upp kartöflur úti á sjó. Þetta er eintómur leir og þú þarft að kafa ofan í þessa drullu til að ná í þessi humarkvikindi. Það hafði æxlast þannig, að sumarið 1992 fór ég inn á DV. Þá var ég á Sléttanesinu, alveg hundleiður á þessari sjó- mennsku og ákvað að fara suður og vera blaðamaður í einn mánuð. Það gekk bara mjög vel, ég náði að skúbba hægri vinstri og náði fínum fréttum og fann mig algerlega í þessu. Gallinn var bara sá, að ég þurfti að sæta launa- skerðingu upp á sirka sjötíu prósent að fara af togaranum. Blaðamannataxtarnir þoldu alls engan samanburð við tekj- ur stýrimanna og skipstjóra. Ég held að þetta hafi breyst mikið eftir að kvótinn fór að segja til sín. En það var mikil sæla að vera þarna þennan tíma. Ég fann að það var einmitt þetta sem ég vildi gera og kveið því mjög að snúa á sjóinn aftur. Sigurdór Sigurdórsson, söng- varinn ástsæli í eina tíð – troddu þér nú inn í tjaldið hja-á mér, María, María – var fréttastjóri á DV á þessum tíma. Hann sagði við mig þeg- ar ég var að kveðja og fara vestur: Þú kemur aftur. Ég sagði að það gæti nú orðið langt í það. Þá sagði hann: Ég veit að þú kemur aftur, ég veit bara ekki hvenær það verður. Þú ert með bakteríuna. Og það liðu slétt tvö ár. Ég var alltaf að daðra við þessa leið og einhver dallurinn fékk á sig brotsjó eða eitthvað ann- að fréttnæmt gerðist á sjónum. Þannig varð ég sjálfkrafa fréttaritari fyrir Vestfjarðamið líka og hafði óskaplega gaman af þessu. Það tók mig eigin- lega fimm-sex ár að rífa mig lausan frá sjómennskunni og yfir í þetta – það var ekki fyrr en ég var búinn að fá sam- þykki fyrir því hjá eiginkon- unni að við myndum herða sultarólina og ég færi á ein- hverja blaðamannataxta.“ Neyddur til að fara – Hvernig gekk útgerðin þegar þú keyptir bátinn Jón Trausta? „Fyrst vorum við með hann á Flateyri og gerðum út á rækju og línuveiðar og fleira. Ætli ég hafi ekki verið tvær línuvertíðir og bjó við þá afar- kosti að leggja upp í frystihús Fiskvinnslunnar Kambs hf. á smánarverði. Staðan var orðin þannig, að líklega á ég það Hinrik Kristjánssyni fram- kvæmdastjóra Kambs að þakka að hafa farið í burtu. Það þrengdi það mikið að okkur að við sáum okkur ekkert ann- að fært en að yfirgefa staðinn. Við vildum gera meiri verð- mæti úr fiskinum og fara að selja inn á markað. Það var nóg af húsnæði sem fisk- vinnslufyrirtækið Hjálmur hf. hafði átt og Kambur hafði þá yfir að ráða. Þar á meðal taldi ég 23 stæði sem voru laus fyrir beitningarmenn. Ég vildi taka á leigu fjögur stæði af Kambi og kaupa af þeim aðra þjónustu, en okkur var gerð grein fyrir því að við fengjum enga þjónustu nema við legð- um upp á þessu verði sem Hinrik ákvað sjálfur.“ Humarkvikindin og DV hugmynd. Ellert Schram og Jónas Kristjánsson vildu fá mig í vinnu en ég hopaði alltaf undan og tíminn leið. Sumarið 1994 var ég kominn á humar- inn og þá lenti ég á mjög dramatískum krossgötum. Í öðrum túrnum á humrinum var ég á dekkinu að grafa í drullunni eftir þessum kartöfl- um sem hétu humar. Ellert hafði hringt í mig þá um vorið og spurt hvort ég væri til í að koma. Ég kvað svo vera en ég þyrfti bara að klára humar- vertíðina og gera eitt og annað áður en það yrði. Jæja, ég er þarna á dekkinu og búinn að grafa eftir þriðja eða fjórða humarkvikindinu þegar skipstjórinn kallar og segir að það sé síminn til mín. Ég tek af mér vettlingana og fer og svara í símann. Þá er það Ellert Schram og spyr enn hvort ég vilji ekki koma og vera í sumar að minnsta kosti, og ég segi enn að ég þurfi að klára humarinn og það verði ekki búið fyrr en í júlí-ágúst. Ellert sagðist þá ekki nenna að ganga miklu meira á eftir mér: Þú segist alltaf vera að koma en þú ert ekkert að koma. Jú, ætli það sé ekki bara þannig, svaraði ég, og síðan kvöddumst við. Ég fór aftur út á dekk og gróf upp tvo djöfla í viðbót og hugsaði svo með mér: Ókey, nú hætti ég þessu, ég stend ekki í þessari vitleysu, tók af mér vettling- ana á nýjan leik, hringdi í Ell- ert og sagðist koma á mánu- daginn. Þetta var á föstudegi.“ – Þannig að þú átt eiginlega Hinrik og humrinum að þakka hvar þú ert í dag ... „Ja, ég get þakkað Hinrik Kristjánssyni það að okkur var ekki líft á Flateyri. Það var enginn grundvöllur fyrir út- gerðinni þar, sem svo hjálpaði mér til þess að yfirgefa stað- inn. Að vísu var það með talsverðum trega. Við kunn- um afskaplega vel við okkur á Flateyri og Halldóra sem að vísu var alin upp í Reykjavík lifði þarna eins og blómi í eggi. Hún fór ekkert þaðan með bros á vör frekar en ég. Það fylgdu því talsverð innri átök að þurfa að fara. En – já, ég get þakkað það bæði Hinrik og humrinum að hafa álpast í blaðamennsku.“ Þörfin fyrir að skrifa – Þú varst farinn að fást við önnur ritstörf á þeim tíma þegar þú varst fréttaritari. Ég man þegar þú varst að fylgja fréttabréfi Skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Bylgjunnar á Vestfjörðum gegnum prent- smiðju á Ísafirði ... „Já, ég man það þegar þú nefnir það. Ég var formaður félagsins í sex ár held ég og þar kom líka fram þessi þörf fyrir að koma einhverju á prent, sem hefur alltaf verið í mér. Við gáfum út svolítinn fjórblöðung á hverju ári þar sem greint var frá því helsta á vettvangi félagsins. Síðan réðst ég í það stórvirki að gefa út afmælisblað Bylgjunnar, sem var nú helvíti merkilegt blað, og fékk Sigurjón Valdi- marsson ritstjóra Sjómanna- blaðsins Víkings til að fram- leiða í blaðið. Úr þessu varð alveg sómablað. En það var farið að segja til sín miklu fyrr að þurfa að tjá sig á prenti. Þegar ég var í Stýrimannaskólanum bjó ég til bækling um hjálp í viðlög- um. Við þurftum að fara á Slysavarðstofuna og kynnast starfinu þar og hlusta svo á fyrirlestra hjá læknum. Ég tók saman glósur úr þessu, næst- um því heila námsbók, og lét alla hafa. Og þegar ég var í barnaskólanum á Flateyri skrifaði ég sögur í fjölritað skólablað. Hjörtur heitinn Hjálmarsson skólastjóri spáði því að ég ætti eftir að verða rithöfundur, þetta væru svo snjallar sögur. Ég sá það nú ekki beint sjálfur og kannski virðist þetta ekki merkilegt þegar maður skoðar það svona löngu seinna. En þetta voru þó að minnsta kosti sögur og maður sér alveg ákveðinn neista. Einni sögu man ég vel eftir sem ég skrifaði og þótti afskaplega ótrúleg. Það rennur laxveiðiá niður með Búrfelli þar sem ég var fyrstu æviárin. Þar mátti enginn veiða nema einhverjir burgeisar sem höfðu ána á leigu. Við stálumst nú samt alltaf í umboði afa til að veiða þarna. Einhverju sinni setti ég í lax en hann sleit hjá mér. Þá kom fram þrjóskan í mér og ég þræddi árbakkana og hætti ekki fyrr en ég fann girnið og landaði laxinum. Þetta tók mig marga klukku- tíma en ég var nógu þrjóskur eða nógu vitlaus til að gefast ekki upp fyrr en ég var búinn að finna girnið og þar með laxinn. Þessi saga birtist í skólablaðinu á Flateyri og vakti mikla aðdáun. Mönnum fannst það alveg makalaus þrautseigja sem jaðraði við heimsku að láta lax slíta hjá sér og finna svo girnið nokkr- um klukkutímum seinna og hnýta það saman og landa lax- inum.“ Sjálfvirk inn- ganga í flokkinn – Pólitíkin, varstu ekki blá- leitur lengi? „Jú, ég hugsa það. Annars var þetta mjög einfalt mál. Ég var ungur skráður í Sjálfstæð- isflokkinn án þess að vera spurður. Einar Oddur, sem var alla tíð mikill vinur minn, var þá formaður sjálfstæðisfélags- Reynir ásamt meðritstjóra sínum á DV, syninum Jóni Trausta.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.