Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.04.2008, Síða 15

Bæjarins besta - 03.04.2008, Síða 15
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2008 15 Safn um Stein Steinarr á Nauteyri Áhugamenn um kveðskap og minningu Steins Steinars vilja að stofnað verði sérstakt safn eða menningarsetur um Stein. Safnið yrði þá staðsett á Nauteyri í Ísafjarðardjúpi. Frá því var greint í fréttum Svæðisútvarpsins að sveitarstjórn Strandabyggðar hafi tekið jákvætt í erindi áhugamanna um verkefnið um að láta eftir eignarhluta sveitarfélagsins í félagsheim- ilinu á Nauteyri. Haft var eftir Þórarni Magnússyni, eins áhugamannanna, að tímabært sé að heiðra minningu Steins. Aðalsteinn Kristmundsson, sem síðar tók sér nafnið Steinn Steinarr, fæddist á Laugalandi í Ísafjarðardjúpi og ólst upp í Skjaldfannardal. KFÍ semur við tvo heimamenn KFÍ hefur samið við tvo leikmenn til tveggja ára. Það eru Ísfirðingarnir Jón Kristinn Sævarsson og Leó Sigurðsson. „Þeir eru báðir uppaldir hjá félaginu og hafa verið að banka á dyrnar hjá meistaraflokki í vetur og eru menn framtíðar- innar“, segir á vef KFÍ. Eins og greint hefur verið frá komst liðið ekki í úrslita- keppnina í ár þótt litlu munaði en KFÍ lék í 1. deild karla á tímabilinu sem nú var að ljúka. Auk þess að ræða við íslenska leikmenn hefur KFÍ hafið viðræður við erlendu leikmennina sem hafa leikið með liðinu undanfarin tvö tímabil. Blaðamaður tónlistatíma- ritsins Clash lýsir upplifun sinni af Aldrei fór ég suður sem einstakri og hvetur alla til að koma sér vestur hið fyrsta til að njóta undarlegrar blöndu af nautnalífi og tón- listarfjölbreytni. Þar komi saman Indie-tónlist, ghetto rapp, trance-pop, færeysk þjóðlagatónlist, ska, blús og pungsvita rokk og ról. „Þessi hátíð er nú á sínu fimmta lágstemmda ári og skilgreinir sjálfa sig sem tveggja daga ókeypis tónlist- arveislu innlendra listamanna, gerða af einum af guðföður bransans, Mugison – og pabba hans“, segir í umfjöllun blaðs- ins. Blaðamaður blaðsins heldur áfram og segir hátíðina vera hinn fullkomna elexír fyrir alla þá sem hafa fengið leið á þráðlausum hljóðkerf- um og ofur markaðssetum tónleikaferðum U2. Því næst fjallar blaðamaður um framkomu nærri allra þeirra listamanna sem komu fram á hátíðinni sem hann gleymir seint. – thelma@bb.is Undarleg blanda af nautna- lífi og tónlistarfjölbreytni Ástand vega milli Ísafjarðar og Brúar í Hrútafirði er lélegt á köflum og hafa nokkuð margar kvartanir borist af ástandinu, enda hefur mikil umferð verið um þá undan- farna daga. Geir Sigurðsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði, samsinnir því að ástandið sé dapurt á nokkrum stöðum og aðstæður erfiðar. „Á köflum eru malarvegirnir lélegir, við viðurkennum það alveg“, segir Geir. Aðallega er um að ræða vegkafla þar sem hafist hefur verið handa við lagningu nýs vegar, eins og t.d. í Mjóafirði og milli Hólmavíkur og Brúar. Segja má því að til lengri tíma litið horfi vissulega til betri vegar, í orðsins fyllstu merkingu. „Þeir mættu alveg vera betri þessir malarkaflar. Þeir fóru mjög illa út úr þíðunni fyrir páska og síðan þá hefur frostið í raun og veru komið í veg fyrir að hægt sé að gera mik- ið“, segir Geir. „Í Mjóafirði erum við að skoða málið á hverjum degi og ef aðstæður breytast þá reynum við að hefla þetta. En eins og er get- um við lítið gert, því miður.“ Aðspurður segir Geir að vissulega spili auknir þunga- flutningar á vegum inn í. „Þessir veiku malarvegir þola illa þungaumferð í þessari veðr- áttu.“ – halfdan@bb.is Vegir í slæmu ástandi Umhverfisnefnd Ísafjarðar- bæjar hefur lagt til að deili- skipulag við Lónið á Suður- eyri verði samþykkt óbreytt en auglýsinga- og athuga- semdafrestur vegna þess er liðinn. Á fundi umhverfis- nefndar kom fram að ein at- hugasemd barst vegna aðal- skipulagsins og hefur henni verið svarað. Umrædd tillaga tekur til breytinga á svæði austan við Túngötu og Sæ- túns. Umhverfisnefnd bendir á að svæðið innan Túngötu er að stórum hluta á hættusvæði vegna ofanflóða og ekki heppilegt byggingarsvæði fyrir íbúðabyggð, þó er gert ráð fyrir íbúðarsvæði á reit D sem er utan hættusvæðis. Af þessum ástæðum hefur um- hverfisnefnd verið að skoða miðbæinn/hafnarsvæðið með það að markmiði að koma fyrir íbúðarsvæði á kostnað iðnaðarsvæðis/hafnarsvæðis. Umhverfisnefnd vill samþykkja deiliskipulag Suðureyri. Ljósm: Mats Wibe Lund.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.