Bæjarins besta - 03.04.2008, Blaðsíða 16
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 200816
Fræðasetur á heimsklassa
Kristinn Schram, þjóðfræð-
ingur, hefur verið ráðinn í
stöðu forstöðumanns Þjóð-
fræðistofu á Ströndum sem
Strandagaldur hefur undan-
farið unnið við að koma á
laggirnar á Hólmavík. Krist-
inn er með meistarapróf í
þjóðfræði og er að ljúka dokt-
orsnámi í greininni. Helstu
verkefni Þjóðfræðistofu sem
er nýtt fræðasetur, verða rann-
sóknir og miðlun menningar-
arfsins í samvinnu við fjölda
ólíkra aðila, mennta- og menn-
ingarstofnana. Á fjárlögum
næsta árs er gert ráð fyrir 10
milljón króna framlagi til
stofunnar. Stofan er ein af
tillögum Vestfjarðanefndar-
innar.
Strandagaldur var stofnaður
árið 1999 og frá upphafi var
markmiðið að setja upp fræða-
setur í tengslum við galdra og
þjóðtrú. Galdrasýning var
opnuð á Hólmavík árið 2000
og önnur sýning í Bjarnafirði,
Kotbýli kuklarans sumarið
2005. Markmiðið er að opna
þriðju sýninguna í Trékyllis-
vík.
Strandagaldur hefur tekið
þátt í margskonar verkefnum
og þangað berast fjölmargar
fyrirspurnir árlega frá nem-
endum og áhugafólki um
þjóðmenningu erlendis frá.
Með stofnun Þjóðfræðistofu
verða þær upplýsingar að-
gengilegar á einum stað auk
þess sem unnið verður að
rannsóknum tengdum þjóðtrú
og sagnfræði.
Kristinn mun hefja störf
fljótlega og ákvað blaðamaður
Bæjarins besta að fræðast að-
eins betur um Þjóðfræðistof-
una og starfið sem er fram-
undan.
– Hvernig leggst nýja starf-
ið í þig?
„Það leggst mjög vel í mig.
Þetta er framsækið verkefni.
Um er að ræða fræðasetur þar
rannsóknir og miðlun þjóð-
fræðiefnis verður aðalatriðið.
Við munum vera í samstarfi
við fjölda aðila, mennta- og
menningarstofnanir. Þar má
nefna þjóðfræðideild Háskóla
Íslands og vonandi sem flestar
stofnanir á Vestfjörðum og
Norðurlandi og raunar um
landið allt. Vonast er til að
verkefnið eigi eftir að styðja
við uppbyggingu menningar-
og menntatengdrar ferðaþjón-
ustu á svæðinu og stuðla að
metnaðarfullum rannsóknum.
Til dæmis verður unnið að
skráningarverkefni tengt þjóð-
fræði og sagnfræði auk nám-
skeiðshalds og kennslu. Síðan
er áætlað að Þjóðfræðistofa
muni hafa umsjón með upp-
lýsingamiðstöðum um íslenska
þjóðtrú. Áhersla verður lögð
á að þjóna landinu öllu sam-
hliða því að vinna að nærtæk-
um verkefnum og nýta sér þá
staðbundnu menningu sem er
til staðar á Vestfjörðum.
Ég verð að viðurkenna að
ég á mikið ólært um Vestfirði
þótt ég þykist stundum vera
ættaður þaðan, en það er aftur
um nokkra ættliði. Ég á því
eflaust eftir að læra mikið á
þessari dvöl.“
Svarar fyrirspurn-
um utan úr heimi
– Hversu víða mun starf-
semin teygja anga sína?
„Jafnt og við munum nýta
staðbundna menningu viljum
við hugsa í hnattrænu sam-
hengi. Við ætlum að verða
fræðasetur á heimsklassa og
vera í samskiptum við erlend-
ar menntastofnanir og svara
fyrirspurnum sem berast utan
úr heimi. Það hefur verið
nokkuð álag á mörgum stofn-
unum, svo sem þjóðfræði-
deildum og söfnum, að svara
fyrirspurnum frá útlending-
um. Það er ákveðið hlutverk
sem Þjóðfræðistofan gæti
tekið að sér.
Strandir eru tilvalið svæði
til að styðja að baki svona
stofnun og Hólmavík er öflugt
kauptún með margvíslega
menningarstarfsemi, þar má
nefna Sögusmiðjuna og Stranda-
galdur. Starfsemi Þjóðfræði-
stofunnar á að geta teygt sig
um land allt frá Ströndum,
bæði með aukinni tækni og
góðu samskiptaneti um land-
ið.
– Strandagaldur sem ýtir
verkefninu úr vör er menn-
ingar- og fræðslustofnun.
Tilgangur hennar er að standa
að rannsóknum og draga sam-
an vitneskju um galdraöldina
á Íslandi, þjóðsagnir, hug-
myndaheim og menningararf
Strandasýslu sem tengist
göldrum, á eigin vegum eða í
samstarfi við aðra.
„Strandagaldur hefur verið
að undirbúa stofnun Þjóð-
fræðistofu í talsverðan tíma.
Starfsemin fær framlag frá
fjárlögum og verður síðan lík-
lega rekin með sjálfsaflafé.
– Verður Þjóðfræðistofan
þá tengd starfsemi Stranda-
galdurs?
„Að einhverju leiti að minn-
sta kosti. Strandagaldur mun
sinna hlutverki stjórnar sem
forstöðumaður Þjóðfræði-
stofu hefur á bak við sig.
– Hversu mörg stöðugildi
verða við stofuna?
„Búist er við að það verði
fjögur stöðugildi. Það mun
taka einhvern tíma að byggja
stofuna upp en vonandi ekki
alltof langan. Og búast má
tveimur ef ekki þremur stöðu-
gildum á þessu ári. Vonandi á
þeim eftir að fjölga þegar á
líður og hver veit nema þau
verði fleiri en fjögur.“
– Hvernig hafa viðbrögðin
verið gagnvart stofnun stof-
unnar?
„Það er mjög mikill áhugi í
fræðaheiminum og mikill vel-
vilji frá mörgum fræðastofn-
unum sem tengjast þessu
sviði. Við búumst því við
góðu samstarfi við fræða-
heiminn á Íslandi.“
Gaman að flytja
á Vestfirði
– Kristinn er kvæntur Kötlu
Kjartansdóttir þjóðfræðingi
og þau eiga tvö börn. Fjöl-
skyldan flytur búferlum svo
Kristinn geti sinnt nýja starf-
inu.
„Við ætlum að flytja til
Hólmavíkur og hlökkum mjög
til þess. Við stefnum á að fara
með haustinu norður á Strand-
ir. Það er svolítill partur af
pakkanum að persónulega
leitinu til að það er gaman að
koma á Vestfjarðakjálkann og
enn skemmtilegra fá að prófa
að búa þar. Ég verð að viður-
kenna að ég beit endanlega á
öngulinn þegar Sigurður Atla-
son, framkvæmdastjóri Stranda-
galdurs, sagði í framhjáhlaupi
að ég þyrfti að fá mér bát og
seinna frétti ég að á svæðinu
væri þekktur skotveiðimaður
sem byði upp á jóganámskeið.
Þá sá ég greinilega það væri
nóg að gera í frístundum á
svæðinu“, segir Kristinn og
Bæjarins besta óskar honum
góðs gengis í nýja starfinu og
býður fjölskyldu hans vel-
komna á Vestfirði.