Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.04.2008, Qupperneq 18

Bæjarins besta - 03.04.2008, Qupperneq 18
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 200818 Mannlífið Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Smáauglýsingar Þriggja kvölda spilavist byrjar laugardaginn 5. apríl kl. 20:00. Hvetjum alla til að mæta. Spila- nefndin! Vantar sætishest fyrir Sodiak. Uppl. í síma 698 6198. Fimm manna fjölskylda óskar eftir einbýlishúsi/raðhúsi til leigu á Ísafirði frá 1. júní. Um er að ræða langtímaleigu. Uppl. í síma 856 0808. Til sölu eru öll helstu húsgögn úr búslóð ásamt vönduðum græjum s.s. rafmagnspíanó og gítar, magnarar (gítar og bassa) og mixer. Uppl. í síma 865 5615. Til sölu er 10 hestafla snjóblás- ari. 80 cm breiður. Er í mjög góðu ástandi. Verðhugmynd kr. 180 þús. Uppl. í síma 867 2647. Vil kaupa skíðaklossa nr. 39- 40 og ca. löng skíði. Uppl. gefur Guðbjörg í síma 898 3305. Linhai fjórhjól, 300cc, ekið 800 km til sölu. Yfirbreiðsla, farang- ursgrind að framan og aftan og stórfarangurstaska á afturgrind. Uppl. í síma 551 9801 og 860 9801. Til sölu er tveggja hesta stía og hluti í sameign að Kaplaskjóli 1 í Engidal. Uppl. gefur Magnús í síma 862 6097. Ungt par í námi óskar eftir íbúð til leigu á stór Reykjavíkursvæð- inu. Helst langtímaleigu. Erum með hund. Uppl. gefa Geiri í síma 867 6046 og Arna í síma 848 3449. Hnífsdælingurinn Guðrún Hafdís Thoroddsen varð Ís- landsmeistari í módelfitness á Íslandsmótinu sem fór fram föstudaginn langa í íþrótta- höllinni á Akureyri. Alls kepptu 15 keppendur í módel- fitness og keppnin var afar jöfn í flokknum. Í þessum keppnisflokki eru aðrar áhersl- ur hjá dómurum heldur en í fitness. Minni áhersla er lögð á að keppendur séu skornir, vöðvastærð verður að vera mjög hófleg og framkoma og fegurð skiptir miklu máli. Bæjarins besta heyrði í Guð- rúnu Hafdísi skömmu eftir mótið. – Hversu langan tíma tók undirbúningurinn fyrir mótið? „Ég byrjaði undirbúning í janúar var samt í nokkuð góðu formi frá því á bikarmótinu í nóvember þannig að undir- búningurinn var auðveldari í þetta skipti. – Varstu sigurviss eða kom þetta þér á óvart? „Ég vissi að mér myndi ganga vel og reiknaði með að komast á pall ef ég héldi áfram að æfa vel. Maður getur nú aldrei stjórnað því sem dómur- um finnst eða hverjir aðrir mæta til leiks en auðvitað lagði ég mig alla fram til að ná titlinum.“ – Hvað tekur við núna, ætl- arðu að taka þátt í næsta móti? „Ég er ákveðin í að halda áfram að keppa. Mig langar að fá meiri samkeppni og áskorun svo ég held að ég fari í fitnessið næst og hvort það verður á bikarmótinu í haust eða næsta Íslandsmóti. Fer allt eftir því hversu vel það gengur að bæta sig.“ – Hvað varð til þess að þú ákvaðst að taka þátt í módel- fitness til að byrja með? „Þegar ég fyrst kom á mótið á Akureyri um síðustu pásk- anna sá ég að þetta væri eitt- hvað fyrir mig. Ég var búin að vera að æfa reglulega og mig langaði að stefna að einhverju í því. Bara gaman og spenn- andi að sjá hversu góður mað- ur getur orðið. Þess má geta að Ísfirðing- urinn Þór Harðarson varð í öðru sæti í vaxtarrækt. – thelma@bb.is Hnífsdælingur Íslands- meistari í módelfitness Alls svöruðu 1.086. Já sögðu 974 eða 90% Nei sögðu 78 eða 7% Alveg sama sögðu 34 eða 3% Spurning vikunnar Á aðal flugvöllurinn fyrir innanlandsflugið að vera áfram í Vatnsmýrinni? Rokkstjórinn kveður og þakkar fyrir sig Rokkstjóri Aldrei fór ég suður vill koma á framfæri þökkum til þeirra fjölmörgu sem komu að fram- kvæmd fimmtu Rokkhátíðar alþýðunnar. Í tilkynningu segir að hátíð sem þessi verði ekki að veruleika nema með aðkomu góðra manna og vilja skipuleggjendur þakka kærlega sínum aðal styrktaraðilum; Flugfélagi Íslands, Símanum og Glitni, aðstandendum Eyrarrósarinnar, Menningarráði Vestfjarða, AÓÁ útgerð eigendum skemmunnar, poppurum sem komu fram og þeim fjölmörgu einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum sem komu að hátíðinni. Hægt er að nálgast myndir af hátíðinni meðal annars á monitor.is/aldrei, og innan tíðar verður það einnig hægt á ljósmyndavef bb.is. Tileinkaði Dorrit lagið I wan´t you Popparinn og hafnar- stjórasonurinn Örn Elías Guðmundsson tók tvö lög fyrir forseta Íslands þegar hann kom í heimsókn í 3X-technology á Ísafirði í síðustu viku. Aðspurður segist hann halda að forset- inn hafi verið að fíla lögin ágætlega. „Já, mér sýndist það. Ég tileinkaði Dorrit konu hans lagið I wan´t you. Hún var að vísu ekki á staðn- um en hann ætlaði að skila þessari kveðju frá mér“, segir Örn Elías. Eins og fram kom í síðasta blaði var forsetinn að heim- sækja fyrirtækið sem fékk útflutningsverðlaun em- bættisins árið 2006. „Annars eru ég og forsetinn mjög góðir vinir. Ég sendi honum einu sinni hálfklárað Toble- rone og bol sem stóð á You make me sleep on the wet spot. Hann mundi meira að segja eftir gjöfinni og þakk- aði mér seinna“, segir Örn. Aðspurður um það hvers vegna Toblerone-stykkið hafi verið hálfétið segir Örn að hann hafi verið svang- ur, en samt viljað senda forsetanum eitthvað gott. Þeim Erni Elíasi og Ólafi Ragnari er vel til vina. Mynd: Þorsteinn Tómasson. Óku of hratt Tuttugu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Vestfjörðum í nýliðinni viku. Flestir voru stöðvaðir á Djúp- vegi í Ísafjarðardjúpi á mánu- dag er fólk var á heimleið eftir páskahelgina. Af þessum 20 voru sex stöðvaðir innanbæjar á Ísafirði. Lögreglumenn frá Patreksfirði stöðvuðu öku- mann á 119 km. hraða á Barð- astrandavegi þar sem há- markshraði er 90 km/klst. Sýslumaður- inn vill suður Sýslumaðurinn á Ísafirði, Kristín Völundardóttir, og staðgengill og fulltrúi sýslu- manns, Ólafur Hallgrímsson, eru bæði meðal umsækjenda um embætti sýslumannsins í Kópavogi. Kristín var fyrir hálfu öðru ári skipuð í embætti sýslumannsins á Ísafirði til fimm ára. Alls sóttu 13 um.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.