Iðnaðarmál - 01.01.1955, Síða 7

Iðnaðarmál - 01.01.1955, Síða 7
E F N I Aukin framleiðni, forystugrein 1 Eldmálun 2 BRAGI OLAFSSON: Stjórnun og skipulagning iðnaðarstarfsemi 3 50 ára þróun (rafmagnsmál) 7 RUNOLFUR ÞORÐARSON: Aburðarverksmiðjan h.f. 8 Léttir störfin 12 JOHANN JAKOBSSON: Iðnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans 14 Merk bók um vinnu- sálarfræði 15 I stuttu máli 16 2. kápusíða: ÞORÐUR RUNOLFSSON: Litir, afköst, öryggi. Forsíðumynd frá Aburðarverk- smiðjunni h. f. Hægra megin er turn, þar sem ammóníak er fram- leitt úr frumefnunum vatnsefni og köfnunarefni, en í miðið vatnsefnis- geymir, 11.300 m^. Myndina tók Hjálmar R. Bárðarson. Endurprentun háð leyfi útgefanda. Ritstjórn: Hallgrfmur Björnsson, Sveinn Björnsson, Bragi ölafsson (ábyrgðarm.). Otgefandi: Iðnaðarmálastofnun fslands, Iðnskðlahúsinu, Skðlavörðutorgi, Reykjavík. Pósthólf 675. Sfmi 82833-4. Askriftarverð kr. 100, oo árg. Offset-prentað f h.f. Litbrá. Iðnaðarmal 2. ÁRG. 1955 1. HEFTI Aukín framleíðní. Aldamótakynslóðin, sem mest og bezt barðist fyrir endurheimt sjálfstæðis þjóðarinnar, gerði sér glögga greinfyrir þvf, að menning- arlegu sjálfstæði yrði að fylgja efnalegt sjálfstæði. Skilyrði efnalegs sjálfstæðis töldu menn þá nýtni og forsjálni í hvivetna. I hinu efnahagslega umróti sfðustu ára má iðulega finna dæmi þess, að þessar gullvægu meginreglur hafa verið fyrir borð bornar og þeirra ekki gætt sem skyldi f þjóðhagslega mikilvægum framkvæmdum. Hvers kyns sóun verðmæta bitnar ekki aðeins á þeim, sem teljast eigendur þeirra, heldur á allri þjóðinni. Þvf almennari sem sóunin er, þeim mun lélegri verður afkoma atvinnuveganna f heild og geta þeirraminni til þess að rfsaundir launum, sem vérteljum lágmarks- laun. Sóun á verðmætum felst ekki aðeins f slæmri nýtingu hráefna eða eyðileggingu þeirra, heldur einnig — og ekki sfður — f þvf að nýta ekki til fulls framleiðslutækin, sem binda fjármagn og kostað hafa þjóðina dýrmætan, erlendan gjaldeyri. Þótt vélar eti ekki mat, kostar eigi að sfður fé að eiga þær, og vegna hinnar öru tækniþróunar úreldast þær, jafnvel þótt þær haldist í ágætu ásigkomulagi og séu óslitnar sakir lítillar notkunar. Aður en vél er keypt, verður þvf að gera nákvæma áætlun um það, hversu miklum arði hún verði að skila árlega, til þess að hún borgi sig. Hvort sem vél er notuð 24 stundir eða 2400 stundir á ári, hefur hún í för með sér óhjákvæmilegan kostnað, svo sem vexti, fyrningu, húsaleigu, ljós, hita og lágmarksviðhald. Þessum kostnaði, að viðbættum vinnulaunum, orku ogöðrum breytilegum reksturskostnaði, verðurað deila á þær einingar, sem árlega eru framleiddar í vélinni. Augljóst er, að þvf fleiri einingar sem vélin framleiðir, því lægri verður heildar-framleiðslukostnaður á hverja einingu. Verði eining- arnar á hinn bóginn svo fáar, að verð vörunnar með öllum áföllnum kostnaði geri hana óseljanlega í samkeppni við sambærilega vöru, verður sá hluti kostnaðarins, sem fæst ekki endurgreiddur, hreint tap. Vaxandi tæknileg þróunog aukinvélvæðingsfðari áraopna sffellt nýjar leiðir til betri nýtingar hráefna og vinnuafls. Umfram allt stefnir þróunin f þá átt, að teknar eru f notkun stórvirkar og hraðvirkar vélar, sem leysaaf hendimargramanna verk. Aukin vélvæðing er þvf lausn nútfmaþjóðfélags á því vandamáli að geta greitt vinnuafl þvf verði, að samsvari lffskjörum þeim, sem vér teljum æskileg f dag. Til þess að samræma framleiðslutæki, vinnuafl, stjórna iðnrekstri og hafa hemil á framleiðslukostnaði eru notaðar aðferðir framleiðnihugsjónarinnar, sem skýrgreina má f heild þannig: Framleiðni (productivity) er það að nýta sem bez t hina ýmsu þætti, sem f framleiðslunni eru: fjár- magn, hráefni, fasteignir, vélar, vinnuafl o.s.frv. Léleg nýting á einhverjum þessara þátta eða þeim öllum hefur f för með sér meiri framleiðslukostnað en nauðsynlegur væri, ef nýtni ENAÐARMAL 1

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.