Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 10

Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 10
Hinn feikilega mismun á arðsemi hinna ýmsu fyrir- tækja má að miklu leyti rekja til mismunandi forsjálni, hæfileika og dugnaðar iðjuhöldanna. Störfum iðjuhölda má skipta í tvo höfuðþætci: fram- leiðsluþátt (framleiðslu verðmæta úr hráefni) og verzl- unarþátt (útvegun fjármagns, sölu framleiðlsunnar og dreifingu hennar). Hlutiall milli skipulags, vinnuaíls og stjórnunar. Stjórnun (management) hefst fyrst, þegar ákveðið hefur verið lögform starf- seminnar og skipulag. Ákveða má og sk'jalfesta skipulagstarfsemi algerlega án tillits til þess, hvaða menn eiga að gegna hinum ýmsu störfum. Þó er augljóst, að heppilegasta skipulagið er samið í sem fyllstu samræmi við kunnáttu og getu þess vinnuafls, sem tiltækilegt er. Enn fremur getur verið æskilegt að finna einhvern meðalveg milli hins "ídeala" skipulags og þess, sem miðast við það vinnuafl, sem tiltækilegt er. Stjórnun er aftur á móti listin að bræða og hamra saman í órofa heild starfsemi, sem vinnur snurðulaust og liðugt. Öllum störfum, vinnuafli og skipulagi, verður því að stjórna. Vísindalegri sundurgreiningu og vísindalegum aðferðum verður beitt með miklu meiri árangri við skipulagningu en stjórnun. Lausn skipulagsvandamála leiðir iðulega til lausnar annarra vandamála. Skipulagningu má fara með á vfsindalegan hátt að miklu meira leyti en stjórnun. T. d. má hugsa sér tilraunaaðferðir (sem verið geta algerlega happa- og glappaaðferðir) og beita þeim við ákveðna þætti skipu- lagsins. Aðferðirnar eru sfðan lagfærðar með frekara tilliti til staðreynda og tilraunirnar enn reyndar nægilega lengi og svo koll af kolli, þar til er reglur og lögmál skapast, sem eru algild við svipaðar aðstæður og óháð tfma. Þar sem slfkum aðferðum verður beitt með árangri við skipulagningu, er réttlætanlegt að lfta á hana sem vfsindi. Framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjórn (administration) er störf, sem lúta að stofnsetningu fyrir- tækis og eru fólgin f þvf að skipa fjár- málum þess, velja form þess, ákveða höfuðstefnu þess, útvega nauðsynleg tæki og áhöld, velja helztu starfsmenn þess og gera drög að heildarformi skipulags, sem það á að starfa eftir. Það, sem hér hefur verið talið, er fyrst og fremst störf stjórnar fyrirtækisins og áhrærir að mestu hinar verzlunarlegu baráttuaðferðir. Skipulag. Skipulag (organisation) er tæki fram- kvæmdastjórnarinnar. Skipulagning hefst með því að ákveða deildarskiptingu innan fyrirtækisins, ákveða tegund starfskrafta, sem þarf til þess að inna af höndum þau verk, sem ákveðin hafa verið, skýrgreina starfsvið þeirra og ákveða og skýrgreina sambandið milli deilda og starfsmanna. Það, hversu vel skipulagsstarfið tekst, þ.e. hversu góð samstilling næst, er að verulegu leyti undir þvf komið, hversu til tekst um val haafra starfskrafta. Eftir þvf, sem iðnaðarstarfsemi vex, verður skipulagningin meira og meira hlutlæg (objective) f eðli sfnu og er sfður per- sónulegum kostum einstaklinga háð. Sérfræðingar f skipulagningu koma til, sem velja hverju sinni eftir aðstæðum hið heppilegasta skipulagskerfi. Skipulags- starfið gengur eins og rauður þráður f gegnum alla iðnaðarstarfsemi, og enda þótt unnt sé að komast að fræðilegri niðurstöðu, sem er ekki reist á persónulegum kostum eins manns, kemur oft fyrir f reyndinni, að missir ákveðinnar persónu getur valdið stórfelldum breytingum f skipulagskerfi. Traust skipulag einkennist m. a. af því, að öll starfsemin gengur sinn vanagang, þótt mikilsráðandi starfsmaður sé fjarverandi um stund- arsakir. Stjórnun. Stjórnun er störf, sem miða að þvf að leiða iðnaðar starf semi f heild að þvf takmarki, sem henni hefur verið ætlað, bæði fjárhagslega og skipulagslega. Fullkomin verksmiðja, vélar og starfslið, mundi standa aðgerðalaus, ef enginn væri til þess að kveða á um, hvaða verk skulu unnin, velja og þjálfa dug- legan vinnukraft, ákveða skipulagskerfi og lfta eftir vanastörfum (routine), en allt á þetta að tryggja, að starfslið og vélar vinni hráefnin á samstilltan hátt og miði að settu marki. Atburðir gerast ekki af sjálfum sér. Atburðarásinni verður að stjórna, og vakandi auga verður að hafa á allri starfseminni til þess að tryggja lágmarks-framleiðslukostnað, hámarks-notagildi og snurðulausan rekstur. Stjórnun gengur eins og rauður þráður f gegnum alla iðnaðarstarfsemi. f reyndinni er litið á framkvæmdastjóra (managers) sem þá yfirmenn (executives), sem eru ábyrgir fyrir framleiðsluaðferðum og framleiðslu (process and pro- duction). Hins vegar eru þeir, sem bera ábyrgð á fjárhagslegu gengi starfseminnar og arðsemi hennar, nefndir forstjórar (higher executives). Þegar talað er um störf framkvæmdastjórnarlegs (managerial) eðlis án frekari skýrgreiningar, er ekki átt við störf þeirra, sem ákveða stefnu (policy) fyrirtækisins og verzlunarlegar baráttuaðferðir (business strategy) þess. Höfuðeinkenni nútfmastjórnunar er að nota vísinda- legar aðferðir f stað hinna úreltu aðferða óvissu, tilvilj- unar og happs. Kerfi. Kerfi (system) er ákveðið fyrirkomu- lag, sem byggt er upp til þess að samhæfa aðgerðir starfsliðs og deilda. Kerfi er búið til með þvf að útbúa eða finna upp viðeigandi eyðublöð, skjöl, skýrsluform, skrásetningar- aðferðog gefa fyrirmæli um, hvernig eyðublöðin o. s.frv. skuli notuð til þess að veita framkvæmdastjórn og yfir- stjórn fyrirtækis nauðsynlega vitneskju. Öllum kerfum er ætlað að koma á reglu f stað óreiðu og sukks. Þess vegna verða kerfin að vera miðuð við "standard"-form allra upplýsinga. Ef þessi viðleitni er látin fara út yfir eðlileg takmörk, verðurhún að skriffinnsku, semstendur raunverulega allri starf seminni fyrir þrifum og tefur fyrir eðlilegum afköstum. Ohófleg skriffinnska dregur úr framleiðni (productivity). Hvenær er vísindaleg stjórnun tímabær? Tegund og eðli skipulags fer eftir stærð og eðli fyrirtækisins. Almennt hefur aukinn vöxtur starfsemi f för með sér hærra stig sérhæfingar, sem sfðar leiðir af sér, að aukin skipulagning til samhæfingar og aukningar stjórnar- og upplýsingakerfisins verður nauðsynleg. Slfk áframhaldandi aukning ásamt aukinni skipulagningu minnkar sffellt framleiðslukostnaðinn á hverri fram- leiddri einingu, þar til er skipulagið verður svo flókið, að erfitt reynist að stjórna starfseminni og kostnaðurinn á hverja framleidda einingu fer að vaxa. A þessu stigi er nauðsynlegt að grípa til vísinda- 4 IÐNAÐARMAL

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.