Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 18
LÉTTIRSTÖRFIN
TIL LESENDANNA
Ætlunin er að kynna framvegis hér 1
ritinu ýmsar tæknilegar nýjungar 1 iðnaði,
svo sem nýjar vinnuaðferðir og verkfæri,
bættanvélakostog endurbæturá framleiðslu-
háttum, er geta stuðlað að þvf að létta yður
störfin og jafnframt auka framleiðni. Vér
höfum fengið leyfi til að þýða og endurprenta
efni og myndir úr ýmsum erlendum fram-
leiðniblöðum, t. d. PRODUKTIVITETS NYT
(danskt), TARGET (enskt) og AJOUR-SNI,
Aktuelle nyheter (norskt). En vér leitum
einnig til yðar, lesandi góður, um aðstoð til
að safna fjölbreyttu efni á þessar sfður.
Tilkynnið oss vinsamlegast um tæknilegar
nýjungar, sem þér fréttið um eða finnið upp
sjálfur 1 starfi yðar. Þótt vélarnar eða
verkfærin, sem þér notið, séu áður alkunn,
getur engu að síður tæknileg nýjung falizt í
aðferðinni, er þér vinnið verkið með.
Allar snjallar hugmyndir eruoss jafn-
kærkomnar. Iðnaðarmál munu koma þeim á
framfæri yður til sóma og öðrum til gagns.
Gott er, að greinileg ljósmynd eða teikning
fylgi lýsingu á nýjungunum, hvort sem þær
teljast til vinnuaðferða, verkfæra, véla eða
framleiðsluhátta. H.B.
IEitt af þeim vandamálum, sem margir eiga við að
etja, er þeir reyna að auka framleiðni fyrirtækis
sfns, er húsnæðisvandamálið. f mörgum fyrirtækjum,
jafnt stórum sem smáum, ererfittað skipuleggja vinnuna
á hagkvæman hátt, af þvi að nægilegt húsrými er ekki til
umráða. Auðvitað má stækka verkstæðið, ef skilyrði
erutil þess og starfsemin er svo mikil, að hún rfsi undir
þeim kostnaði, sem stækkun hefur f för með sér. En það
má líka fara að eins og Nielsen skósmfðameistari f
Kaupmannahöfn. Afgreiðsla hans og vinnustofa eru
samanlagt minni en vinnustofan ein hefði þurft að vera.
Hinn danski skósmiður lagði þvf niður fyrir sér vanda-
málið og braut það til mergjar.
A myndinni sjáið þér snjallt
úrræði. Þessi einfaldi hilluvagn
er á kúluhjólum og auðvelt að aka
honum f hvaða átt, sem er.
Nielsen hefur tvo slfka vagna.
A daginn hefur hann annan þeirra
f afgreiðslunni og setur á hann f
röð og reglu allan skófatnað, er
hann tekur á móti til viðgerðar,
og ekur honum sfðanað kvöldi inn
f vinnustofuna. Þetta er auðveld-
ara en flytja skóna f fanginu á
milli hillna. f vinnustofunni er
síðan hægt að aka hillunni að þeim
stöðum, þar sem hinar ýmsu
viðgerðir fara fram daginn eftir,
meðanhinnvagninner f afgreiðsl-
unni og í hann safnast verkefni.
Skósmiðurinn hefur með þessu
fyrirkomulagi leyst f senn bæði
geymslu- og flutningsvandamál.
(Produktivitets Nyt, 9. h. 1954.)
H.B.
IÐNAÐARMAL