Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 16

Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 16
4. mynd. Or ammóniakverksmidjunni. Stjórntafla o.fl. 5. og 6. mynd. Or sýruverksmiðjunni. Stjórntafla o.fl. (5.m.), afhitaketill og ammóníakbrennari (6. m.). 7. mynd. fsogsturn og ísogskútar sýruverksmiðjunnar. 8. — 11. mynd. Or saltpétursverksmiðjunni. Kristallari (8.m.), skilvinda (9.m.), kristallar f skilvindu (10. m.) og sekkjun áburðarins (11. m.). 12. mynd. Or rannsóknastofu. Efnagreining. 13. mynd, Vikulegur viðræðufundur. 14. mynd. Or skrifstofu. 15. mynd. Aburðarkristallar, stækkaðir 25 sinnum. Aburðartegund sú, sem framleidd er í Aburðarverk- smiðjunni í Gufunesi nú f dag, er ammónfum-saltpétur eða ammónfum-nftrat (NH4NO3). Þetta efnier köfnunar- efnisáburður og inniheldur 33,5% köfnunarefni. Aðal- hráefnin, sem notuð eru til framleiðslunnar, eru loft og vatn, en auk þeirra er notað tiltölulega lftið magn af öðrum efnum, svo sem kísilleir (sem notaður er til húðunará áburðarkornunum), saltsýru (HCl) og vítissóda (NaOH). Rafmagnið er sú orka, sem gerir kleifa um- breytingu þessara hráefna f áburð. Gangur framleiðsl- unnar er f fáum orðum sá, að fyrst eru framleidd vatnsefni (H2) og köfnunarefni (N2), sem síðan eru sameinuð til að mynda ammónfak (NH3). Or helmingi ammónfaksins er framleidd saltpéturssýra (NHO3), sem sfðan erlátin ganga í samband við hinn helming ammónfaksins til að mynda ammónfum-saltpétur. Vatnsefnið er framleitt með rafgreiningu vatns, þannig að rakstraum er hleypt f gegnum 28% vatnsupp- lausn af kalíum-hýdroxýði (KOH). Við það klofnar vatnið f frumefni sfn, vatnsefni og súrefni. Þetta gerist f svonefndum vatnsefniskerum. Til vatnsefnisframleiðsl- unnar eru notuð um 12. 500 kw, sem eru um 87% af allri orkunotkun verksmiðjunnar. Rafmagnið kemur sem riðstraumur til verksmiðjunnar, enerbreyttf rakstraum f kvikasilfursafriðlum til vatnsefnisframleiðslunnar. Köfnunarefnið er unnið úr andrúmsloftinu (sem inniheldur 79% N2) með eimingu, eftir að það hefur verið gert fljótandi. Lofti er þjappað saman í 14,5 kg/sm^ þrýsting og það sfðan kælt f — 170°C með köldu gasi og útþenslu, unzþaðverður fljótandi. Sfðan er köfnunarefnið skilið frá f eimingarturni. Ammóníakið er framleitt með þvf að leiða blöndu af vatnsefni og köfnunarefni (f hlutfallinu 3 : 1) yfir hvata undir um 300 kg/sm^ þrýstingi og við um 500°C hita, og myndast þá ammónfak, ernemurum 15% af gasblöndunni. Þetta gerist í svonefndri ammónfakflösku, er inniheldur hvatann ásamt hitara til upphitunar á blöndunni fyrir efnabreytinguna. Varmi sá, er losnar við efnabreytinguna, er notaður til upphitunarinnar. Ammónfakinu er náð úr blöndunni með þvf að þétta það og skilja sfðan ammóníak- vökvann frá, en afgangur blöndunnar fer aftur yfir hvatann ásamt viðbótargasi. Saltpéturssýran er framleidd með þvf að brenna fyrst ammónfaki yfirhvataog mynda köfnunarefnissýring IÐNAÐARMAL

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.