Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 13
50 ÁRA ÞRÓUN
RAFORKUMALA A ISLANDI
Fyrir skemmstu var minnzt f
Hafnarfirði merkisatburðar í þróunar-
sögu rafmagnsmála hérlendis, er hálf
öld var liðin frá fyrstu vatnsvirkjun á
fslandi. Hinnar einstökuframtakssemi
brautryðjandans, Jóhannesar Reykdals,
var verðuglega minnzt f öllumblöðum.
Almenn hagnýting raforku hafði
ekki átt sér langa sögu annars staðar
1 heiminum, er Reykdal byggði rafstöð
sína. Fyrstu rafstöðvar 1 heiminum
til almenningsnota voru byggðar í New
York 1881-1882 og í Berlín um svipað
leyti. Fyrsta rafveita f Danmörku er
reist 1891 í Oðinsvéum. Þessarfyrstu
rafveitur voru rakstraumsveitur með
lágri spennu, og orkufærsla var óhag-
kvæm eða ógerleg, væri um verulegar
fjarlægðir að ræða. Eftir aldamót,
þegar notkun riðstraums byrjar sam-
fara aukinni háspennutækni, hefst svo
hin almenna rafvæðing, sem nú er í
algleymingi.
Þróun rafmagnsmála hérlendis
var hæg fyrstu þrjá tugi aldarinnar.
Linuritið gefur hugmynd um þróunina.
Notkun raforku var að mestu leyti til
ljósa. Með auknum iðnaði jókst mjög
orkuþörfin, sem eingöngu varð fullnægt
með virkjunum f stórum stíl, svo að
á siðustu 20 árum hefur orkufram-
leiðslan þvf sem næst sautjánfaldazt.
Ein verksmiðja, Aburðarverksmiðjan
h. f., notar um 15.000 kw til fram-
leiðslu sinnar. Mestallur iðnaður er
nú rekinn með rafknúnum vélum.
Allstór stétt manna starfar við raf-
magnsframkvæmdir á ýmsum vett-
vangi. Nú á síðari árum hefur einnig
vaxið upp talsverður iðnaður á sviði
rafmagns.
1 stuttu máli sagt væri hin geysi-
lega þróun f athafnalífi þjóðarinnar nær
óhugsandi án hinna stórfelldu fram-
kvæmda f rafmagnsmálum.
Eins og sézt hefur f blöðum undan-
farið, liggja fyrir miklar áætlanir um
auknar framkvæmdir f raforkumálum
ánæstuárum. Allir landsmenn og sér-
staklega þeir, sem við iðnað fást,
fylgjast að sjálfsögðu af áhuga með
þróun raforkumálanna.
S. N.
1954-102.200 kw