Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 21

Iðnaðarmál - 01.01.1955, Blaðsíða 21
Merk bók um VINNUSALARFRÆÐI Poul Bahnsen: HUGUR OG HÖND Bókaútgáfan Norðri, 1952. 239 bls. Þýðandi: Broddí Jóhannesson. Þegar aflað er nýrra tækja og tekið að beita nýjum aðferðum við eitthvert verk, þykir hverjum manni skyn- samlegt að kynnast reynslu annarra af tækjunum og aðferðunum, ef kostur er. A fslenzkum heimilum, verkstæðum og f verksmiðjum eru nú notuð ný, erlend tæki. Alls konar fræðslu hefur verið aflað um þau, og henni hefur verið miðlað hér heima eftir föngum, m.a. með auglýsingum, ritlingum og námskeiðum. Hitt hefur gleymzt aðmestu, að hlutverkog aðstaða manna hefur gerbreytzt með tilkomu nýju tækjanna. Að minnsta kosti hafa menn sjaldnast séð fyrir nema að mjög takmörkuðu leyti, hver yrðu áhrifin á manninn. Þetta er að vonum. Reynslan ein sker úr slíku. — Þótt menning tveggja þjóða sé aldréi eins, getur ein þjóð þó hagnýtt sér reynslu annarra þjóða í mjög mörgum greinum, ef skynsamlega er á haldið. Með öðrum þjóðum eflist nú mjög sú vísindagrein, sem vinnusálarfræði er kölluð. Hún fjallar um manninn að verki. Fullyrða má, að vfsindaleg vinnusálarfræði sé talin þvf þarfari, sem tækni lands er komin á hærra stig. Meðan fslendingar leggja ekkert af mörkum til athugana og tilrauna f vinnu- sálarfræði nema það helztað gleyma brautryðjandastarfi Guðmundar Finnbogasonar á þessu sviði, er því brýnni þörf að fylgjast með vinnusálarfræði annarra þjóða. Fyrir tveimur árum kom út HUGUR OG HÖND, vinnusálarfr æði eftir danska vfsindamanninn Poul Bahnsen. Bókaútgáfan Norðri gaf út. Þýðandi bókarinnar er Broddi Jóhannesson. Bahnsen er einn merkasti og reyndasti vinnusálarfræðingur á Norðurlöndum. Bók hans er greinagóð og rituð á svo ljósu máli, að hverjum manni er auðskilið. Hann gerir grein fyrir nokkrum merkustu niðurstöðum vinnusálarfræðinnar, viðfangsefnum og að- ferðum. f formála segir höfundur: "Það er eitt af frumatriðum vinnuhagfræðinnar, að beita skuli f hverju starfi, svo sem tök eru á, aðferðum þeim, sem prófaðar hafa verið vfsindalega, svo að handahófs og hendingar gæti sem minnst. En einkum hefur brostið allar forsendur til að taka ákvarðanir um fastar aðferðir á þeim sviðum, sem fjallað er um f þessari bók, oghafa þvf geðþótti og sérviðhorf ... ráðið mestu um lausn viðfangsefnanna. Vart mun nokkur maður, er veit deili á viðfangs- efnum vinnusálarfræðinnar, hyggja, að þeim hafi verið gerð full skil. Umhálfrar aldar skeið hafa sálfræðingar, læknar, verkfræðingar og fleiri rannsakað þau af kost- gæfni, og fyrir þasr sakir hafa mörg viðhorf orðið ljósari, skoðanir raunsælegri og verklag betra." Bók Bahnsens er f tólf meginköflum: 1. Að ráða menn og skipa þeim verk, 2. Námsgeta manna, 3. Forsögn verka og tækni hennar, 4. Vfsindaleg verktækni, 5. Þreyta, 6. Fábreytni og önnur tilefni þreytu, 7. Maðurinn og öryggið, 8. Verkstjórn og mannþekking, 9. Starfsgleði og starfsleiði, 10. Vanda- mál á vinnustað og meðferð þeirra, 11. Sálarfræði flokksins, 12. Lýðræðisleg verkstjórn. Svo sem sjá má af efnisskrá þessari, fjalla fyrstu þrfr kaflarnir um það að velja réttan mann til réttra verka, og er rakið allrækilega, hvernig það verður bezt gert, hvernig hann skal settur inn f verkið og hverjum meginreglum leið- beinandi verður að hlfta. Næstu þrfr kaflar fjalla um það, hvernig skynsamlegast er að haga störfum þannig, aðafköstverði semmestogbezt ogfullnægtsé mannlegum þörfum verkmannsins. Sjöundi kafli fjallar um slys, öryggiskröfur og slysavarnir. Sfðustu kaflarnir fimm fjalla allir meira eða minna um tilfinningalff manna og skapgerð, umgengnisvenjur og andrúmsloft á vinnustað og f samskiptum manna, félagstengsl ýmisleg og stjórn- arform. Eru tekin dæmi af athugunum og tilraunum um áhrif ýmissa þessara atriða á afköst manna og lfðan. Jafnframt hljóta niðurstöður vfsindanna af þessum efnum að snerta að meira eða minna leyti meginviðhorf manna við félagsmálum, siðgæði og stjórnarháttum. Þess er enginn kostur að rekja efni slíkrar bókar að neinu gagni f fáum orðum, en hún á erindi til allra, sem á einn eðaannan hátteiga fyrir mönnum aðráða eðasegja fyrir verkum, hvar sem er og hvenær sem er. Þó mun hún eiga brýnast erindi til þeirra, sem eru að hefja ný verk án heimafenginnar reynslu. nauðsyn slfkra rannsókna. Hinar sjálfstæðu rannsóknir hafa afþessum sökum orðið nokkuð út undan. Ekki verða þó ætfð fundin skýr mörk á þessu tvennu. Verulegur hluti af starfsemi Iðnaðardeildar eru rannsóknir, sem framkvæmdar eru fyrir aðra opinbera aðila, sem einnig hafa tilraunastarfsemi með höndum. Er þar ýmis.t um að ræða samvinnu eða beina þjónustu. Af stærri liðumaf þessu tagi má nefna ýmsar rannsóknir fyrir Búnaðardeild Atvinnudeildar og Tilraunaráð búfjár- ræktar, matvæla- og mjólkureftirlit, leiðbeiningar f niðursuðuiðnaði og eftirlit með honum, rannsóknir á byggingarefnum og jarðfræðilegar athuganir og leiðbein- ingar vegnaýmissa meiriháttar framkvæmda. — Sá hluti starfseminnar, sem er ekki eins samstæður og það, sem hér var talið, er fólginn í rannsóknum á einstökum sýnishornum af ýmsu tagi og úr ýmsum áttum. Þjónusta sem þessi verður að vera til í landinu. Nauðsyn hennar er augljós. Til aðgefa hugmynd umstarf það, sem leyst er af hendi, má geta þess, að fjöldi sýnishorna, sem rannsökuð eru, nemur 2500 — 3000 árlega. FRAMTIÐARÞROUN IÐNAÐAR OG HAGNYTRA VfSINDA HER A LANDI A fslandi eru tfmamót í iðnaði. Stóriðnaður f efna- vinnslu er hafinn, fyrsta stálskipi, byggðu á fslandi, hefur verið hleypt af stokkunum, og miðstöð tí.1 eflingar hvers konar iðnaði, Iðnaðarmálastofnun fslands, er tekin til starfa. Allt eru þetta framkvæmdir, sem skapa bjartar vonir um öraþróun á þessusviði f náinni framtfð. Þáttur Iðnaðardeildar f eflinguiðnaðarins fsamvinnu við aðra aðila, sem að henni vinna, verður sá að láta í té þekkingu á hagnýtum vfsindum og framkvæma hvers konar rannsóknir til eflingar iðnaði. Allur efnavinnslu- iðnaður hefur göngu sfna með tilraunum á rannsókna- stofum. Aðrar iðngreinar byggja starfsemi sfna á niður- stöðum, sem fengnar eru með ýmsum prófunum á rann- sóknastofum. Efnarannsóknir og önnur hagnýt vfsindi verða að þróast jafnhliða iðnaði. Starfsemi Iðnaðardeildar og vöxtur verður að viðhalda jafnvægi að þessu leyti. Þá er og hlutverk Iðnaðardeildar að benda á nýjar leiðir og beinni leiðir. IÐNAÐARMAL 15

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.