Iðnaðarmál - 01.01.1955, Síða 11
legrar stjórnunar (scientific management).
Samkvæmt kenningum og aðferðum vfsindalegrar stjórn-
unar eru framleiðsluvandamálin sundurgreind og rann-
sökuð í þvf skyni að fresta því, að iðnaðarstarfsemin
komist á það stig, að framleiðslukostnaðurinn fari að
aukast. Enn fremur er beitt kenningum og aðferðum
vísindalegrar stjórnunar til þess að ala upp og þjálfa
starfsfólk, sem fært er um að inna af höndum öll hin
einstöku störf, sem felast f iðnaðarstarfseminni, skýr-
greina innbyrðis skyldleika þeirra hvers til annars, svo
og skýrgreina afstöðu og skyldleika starfseminnar f
heild gagnvart öðrum fyrirtækjum, sem hún að meira
eða minna leyti byggist á eða er háð.
F ramleiðsluhæ ttir.
Iðnaðarstarfsemi má greina sundur eftir eðli fram-
leiðsluhátta:
1. Síframleiðsla (continuous pro -
duction). Hráefnið (eða hlutir f hina fullunnu vöru)
berst óaflátanlega að verksmiðjunni og tekur fleiri eða
færri breytingum, unz það er komið á það framleiðslustig,
að þvf hefur verið breytt f fullunna vöru, sem streymir
sffellt frá verksmiðjunni.
Hugtakið síframleiðsla er ávallt nátengt hugtakinu
fjöldaframleiðsla (massproduction) eða rás-
framleiðsla (flow production).
Nær öll framleiðsluskipulagning verður að eiga sér
stað, áður en framleiðsla getur hafizt, og þegar öll
smáatriði hafa einu sinni verið ákveðin, verður litlu
breytt án verulegrar truflunar. Framgangs- (progress-)
ogframleiðslu-eftirlitið leitast við að halda þeirri áætlun,
sem ákveðin hefur verið.
Breytingar á framleiðslu (þ. e. verulegar breytingar)
eru sjaldgæfar, en eigi þær sér stað, verður vanalega
að raða vélum á nýjan leik, jafnvel skipta um vélar, og
breyta fyrirkomulagi verksmiðjunnar.
Til dæmis um slfka framleiðsluhætti má nefna
spunaverksmiðjur, sápuverksmiðjur, bílaverksmiðjur,
síldar- og fiskimjölsverksmiðjur, frystihús, sem fram-
leiða hraðfryst fiskflök, áburðarverksmiðjur, sem
framleiða tilbúinn áburð, o. s.frv.
2. Afangaframleiðsla ( intermittent
production). Þegar um áfangaframleiðslu er að
ræða, eru margs konar hráefni unnin, unz þau hafa
náð ákveðnu stigi eða áfanga, og síðan geymd. Þegar
kauptilboð berst, er varan unnin að fullu. Slfkir fram-
leiðsluhættir fela aldrei í sér rásframleiðslu, en hins
vegar má iðulega koma við hópframleiðslu (batch
production). Sem dæmi slfkrar framleiðslu má nefna
smærri skip, landbúnaðarvélar, vefnaðarvélar, stór
verkfæri, svo sem rennibekki, fræsivélar, borvélar
o. fl. verkfæri, dieselvélar, frystivélar, stórvirkar
vinnuvélar o.s.frv.
3. Endurtekin hópframleiðsla ( lot-
repetitive). Akveðnir skammtar af nauðsynlegum
hráefnum eru teknir og úr þeim framleidd fullunnin
markaðsvara. Ymist eru þessir ákveðnu hráefnis-
skammtar settir til vinnslu f verksmiðjunni, þegar þörf
krefur, eða hlutar þeirra eru til hálf- eða fullunnir f
vörugeymslu (sjá2. lið). Varan er tekin til samsetningar,
þegar allir hlutar hennar hafa verið framleiddir eða
útvegaðir.
Þessiframleiðsluháttur einkennist af hópframleiðslu-
aðferðinni. Magnið, sem tekið er til framleiðslu hverju
sinni, miðast venjulega við eftirspurn. f nálega öllum
verksmiðjuiðnaði hér á landi er þessi framleiðsluháttur
viðhafður (eðasambland afhonum og hinum, sem nefndur
er f 2. lið), en sem dæmi annars staðar frá má nefna
framleiðslu algengra vefnaðarvéla, verksmiðjufram-
leiddra húsa, fágætra véla o. s.frv.
4. S ty k kj af r amle ið s la (jobbing pro-
duction). Venjulega er þá framleitt eitt stykkiafein-
hverju og sjaldnast fleiri saman. Vélakostur verður að
vera fjölbreyttur, og flestir verkamennirnir verða að
vera iðnlærðir, og iðulega verða þeir að geta unnið við
margbreytileg verkefni jöfnum höndum.
Til þess að geta nýtt vélakostinn sem bezt þarf að
skipuleggja vinnuna á hverja vél eins langtfram f tfmann
og unnt er og fylgjast vel með gangi hvers verks. Verð-
lagning er ýmsum erfiðleikum bundin, þar sem nálega
hvert verk er einstætt og jafnvel gerólíkt verkum, sem
áður hafa verið framkvæmd.
Þessi framleiðsluháttur er algengur f alls kyns
vélsmfði, allt frá stærstu dieselvélum, röflum, spennu-
breytum og niður f smæstu hluta, sem smfða þarf af
sérstökum ástæðum. Flestar vélsmiðjur, sem fást við
nýsmfðar hér á landi, viðhafa þennan framleiðsluhátt að
meira eða minna leyti. Enn fremur eimir eftir af þessu
f húsgagnasmíði, fatagerð og fleiri iðngreinum, þar sem
meistarinn vinnur með fáeinum sveinum.
Jafnanerverð hinnarframleiddu vöru mikluhærra en
það, sem gerist, þegar notuð er einhvers konar fjölda-
framleiðslu-aðferð.
5. Þjónusta (service). Þjónusta er oftast
látin f té vegna fullunninnar framleiðsluvöru og felst
venjulega f því að koma fyrir nýjum tækjum á notkunar-
stað, f viðgerðum eða endurnýjun á vélum og tækjum,
sem eru orðin útslitin, breytingum á vélum og tækjum,
sem ýmist eru ný eða notuð og þurfa lagfæringa eða
breytinga við, svo að þau henti ákveðinni framleiðslu.
Þjónusta er oftast einhvers konar viðgerðavinna. Fyrir-
tæki, sem fyrst og fremst veitir þjónustu af þessu tagi,
getur einnig fengizt við framleiðslu á varahlutum, sem
eru þá iðulega framleiddir með hópframleiðslu-aðferð-
inni, til þess að þeir verði ódýrari.
Stórfellda viðgerðavinnu má skipuleggja á svipaðan
hátt og framleiðsluvinnu, t.d. viðgerðir á bflahreyflum
í stórum stfl, bflamálun, þvottahúsrekstur o. s. frv. ,
eða hvenær sem nægjanlegt magn af svipuðum verkefnum
berst að nokkurn veginn óaflátanlega.
Um vélakost og starfsfólk gildir sama og þegar um
stykkjaframleiðslu er að ræða (sjá 4. lið).
Þjónusta er oftast mjög dýr, og iðulega getur orkað
tvímælis, hvort sé hagkvæmara að láta gera við vél eða
farga henni og kaupa nýja f staðinn.
Verulegur hluti iðnaðarstarfsemi hérlendis er
sprottinn upp úr viðgerðastarfsemi. Orsök þessarar
þróunar er að öðrum þræði sú, að tfmabundinn verkefna-
skortur hefur orðið þeim mun tilfinnanlegri, sem véla-
kostur viðgerðafyrirtækis hefur orðiðmeiri, fjölbreyttari
og dýrari. Flest viðgerðavinna er að einhverju leyti háð
árstfðum, og þvf vilja koma tfmabil, þegar sáralftil
vinna berst að. Ef ekkert fæst að gert, standa vélar,
tæki og hús lítið notuð eða alls ónotuð milli annatfma-
bilanna, og nauðsynlegt reynist að segja upp verulegum
hluta starfsfólksins. Slfku ástandi fylgja alltaf miklir
örðugleikar, svo sem fjárhagslegt tap og endanlegur
missir góðra starfsmanna, sem leita annað að tryggari
atvinnu.
Til þess að atvinnuleysistfmabilin verði ekki óbærileg
né rfði fyrirtækjunum að fullu, hefur oftastverið reyntað
hefja framleiðslustarfsemi í smáum stfltil þessaðskapa
arðbæra vinnu og fylla upp f skörðin.
Þessi ráðstöfun er mjög heppileg oggóð lausn, þegar
finna má verksvið, sem eru í samræmi við þarfirnar.
Þegar svo stendur á, er iðnaðarstarfsemin oftast auka-
atriði, og afkoma fyrirtækisins er ekki undir henni komin
nema að litlu leyti.
Þegar viðgerðastarfsemi og framleiðslustarfsemi
fara að nálgast það að verða jafnmikilvægir þættir f
heildarstarfsemi fyrirtækis, koma f ljós feikilegir
ókostir við að blanda þessum starfsviðum saman.
Fljótt á litið gæti virzt, að þessi tvö starfsvið, sem
iðulega geta verið nákvæmlega eins frá verklegu sjónar-
miði, færu mjög vel saman. Gallarnir á þessu fyrir-
IÐNAÐARMAL
5