Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.01.2009, Qupperneq 2

Bæjarins besta - 08.01.2009, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Eftirtaldir einstaklingar fengu atkvæði í valinu á Vestfirðingi ársins 2008: Magnús Hauksson, Rúnar Óli Karlsson og Sigurður Jónsson, Sigurður Arnfjörð Helgason, Peter Weiss, Marsibil G, Kristjánsdóttir, Jón Friðrik Jóhannsson, Anna Sigríður Ólafsdóttir, Steinþór J. Gunnarsson, Elfar Logi Hannesson, Halldór Hermansson, Grímur Atlason, Örn Elías Guð- mundsson, Valdimar Gunnarsson, Hálfdán Guðröðarson, Lárus Guðmundur Valdimarsson, Reimar Hafsteinn Vilmundarson, Einar Þór Gunnlaugsson, Þorsteinn Másson, Matthías Vil- hjálmsson, Jón E. Alfreðsson, Ingibjörg Óladóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Halldór Eraclides, Víðir Hólm Guðbjartsson, Kolbeinn Einarsson, Ævar Einarsson, Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, Hermann Hermannsson, Jón Jónsson, Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, Harpa Björnsdóttir, Ingólfur Þorleifsson, Guðrún Ásgerður Sigurvinsdóttir, Anna Gunnlaugsdóttir, Magnús Ólafs Hansson, Katrín Dröfn Markúsdóttir, Þóra Þórðardóttir, Fjallabræður frá Flateyri, Guðmundur Helgason, Magni Örvar Guðmundsson, Þórir Karlsson, Þorleifur Ágústsson, Guð- mundur M. Kristjánsson, Hjalti Þórarinsson, Halldór Smárason, Ástþór Skúlason, Marinó Thorlacius, Hermann Níelsson, Finnbogi Jónasson, Haukur Vagnsson, Flugfélagið Ernir, Finn- bogi Hermansson, Smári Haraldsson, Elías Guðmundsson, Karólína Guðrún Jónsdóttir, Níels Ársælsson, Sigrún Gerða Gísladóttir, Hallgrímur Sveinsson, Sigríður Albertsdóttir, Guð- finna Sigurjónsdóttir, Ylfa Mist Helgadóttir, Guðbjörg Ingvarsdóttir, Ragnhildur Inga Sveinsdóttir, Egill Kristjánsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Ásrún Sigurjónsdóttir, Jón Bjarnason, Hinn eini sanni verkamaður, Reynir Traustason, Önundur Hafsteinn Pálsson, Hlynur Þór Magnússon, Hildur Hávarðardóttir, Herbert Guðmundsson, Karl Eskill Pálsson, Orri Sverrisson, Bogi Ragnarsson, Einar Örn Konráðsson, Þorbjörn Steingrímsson, Sigrún Pálmadóttir, Matthildur Helgadóttir, Benedikt Sigurðsson, Halldór Gunnar Pálsson, Torfhildur Torfadóttir, Stefán Dan Óskarsson og Rannveig Hestnes, Gunnar Sigurðsson, Emil Pálsson, Bryndís Friðgeirsdóttir, Herdís Albertsdóttir, Soffía Vagnsdóttir og Jakob Valgeir Flosason. Egill Kristjánsson tekur við viðurkenningu og farandgrip í tilefni útnefningarinnar. Með honum á myndinni eru þær Thelma Hjaltadóttir blaðamaður á BB og Dýrafinna Torfadóttir, gullsmiður frá Gullauga á Ísafirði sem stendur að valinu ásamt bb.is og hugbúnaðarfyrirtækinu Eskli hf., í Reykjavík. Aldraður sjómaður á Suðureyri kjörinn Vestfirðingur ársins 2008 Vestfirðingur ársins 2008 samkvæmt vali lesenda frétta- vefjarins bb.is er Egill Krist- jánsson, 88 ára gamall sjómaður á Suðureyri við Súgandafjörð. Egill stundar enn sjóinn þrátt fyrir háan aldur, hann er trúr sinni heimabyggð, sem og landi og þjóð, er staðfastur í sínum störfum, bindindismaður á vín og tóbak og hraustmenni mikið, eins og segir í ummælum les- enda bb.is um hina öldruðu hetju alþýðunnar. „Hann er hornsteinn vestfirsks samfélags, lifandi fyr- irmynd fyrir unga sjómenn, hörkutól og einstakt góðmenni,“ eins og einn lesandi vefjarins orðaði það. Í öðru sæti í vali á Vestfirðingi ársins 2008 varð Önundur Hafsteinn Pálsson á Flateyri, stofnandi og eigandi upptöku- versins Tanksins í Önundarfirði. Eftirfarandi höfðu lesendur bb.is að segja um Önund Haf- stein: „Hefur sýnt dugnað og bjartsýni við uppbyggingu á fyr- irtæki sínu, er stórhuga og skap- andi ljúflingur sem hefur sýnt og sannað að hægt er að fram- kvæma stórhuga hugmyndir utan marka höfuðborgarsvæð- isins, hefur af eldmóði skapað sjálfum sér og fleirum atvinnu við hljóðupptökur í gömlum lýs- istanki á Flateyri, hefur lagt fram mikið framlag til vestfirskrar tónlistarmenningar, flottur frum- kvöðull á Flateyri.“ Í þriðja sæti varð Þorbjörn Steingrímsson á Garðstöðum í Ísafjarðardjúpi. Eftirfarandi höfðu lesendur bb.is að segja um Þorbjörn: „Hefur mikinn áhuga á gömlum bílum, hirðir ónýta bíla og kemur þeim í verð. Heldur Ísafjarðarbæ hreinum af gömlum bíldruslum, var til- nefndur til umhverfisverðlauna af Hringrás. Hefur um margra ára skeið sýnt myndarlegt fram- tak í förgun bílhræja og öðru járnarusli í samfélaginu.“ Í fjórða sæti varð Sigrún Pálmadóttir, sópransöngkona frá Bolungarvík. Um Sigrúnu höfðu lesendur bb.is eftirfarandi að segja: „Kom, sá og sigraði í La Traviata, fékk viðurkenningu sem söngvari ársins á Grímunni, frábær söngkona, kom Vestfirð- ingum á kortið í menningar- og listaheiminum á Íslandi.“ Í fimmta sæti varð Matthildur Helgadóttir, framkvæmdastjóri á Ísafirði. Um Matthildi höfðu lesendur bb.is eftirfarandi að segja: „Hefur unnið gott starf í jafnréttismálum og barist gegn kyndbundnu ofbeldi, flott kona með frábærar hugmyndir. Hefur kynnt Vestfirði á nýstárlegan hátt með óbeislaðri fegurð, var valin til að halda ræðu á 52. þingi kvennanefndar Samein- uðu þjóðanna sem haldið var í New York, kjarnyrt kona sem liggur ekki á skoðunum sínum.“ Jafnir í fimm næstu sætum voru eftirtaldir einstaklingar: Benedikt Sigurðsson, sundþjálf- ari frá Bolungarvík, Halldór Gunnar Pálsson, tónlistarmaður með meiru frá Flateyri, Torf- hildur Torfadóttir á Ísafirði og elsti íbúi landsins, hjónin Stefán Dan Óskarsson og Rannveig Hestnes, líkamsræktarfrömuðir á Ísafirði og Gunnar Sigurðsson frá Ketilseyri í Dýrafirði. Alls fengu 94 einstaklingar atkvæði í kosningunni en hátt á þriðja hundrað manns tóku þátt í kjörinu. Þeir einstaklingar sem voru í fimm efstu sætunum fengu rúmlega 40% greiddra at- kvæða. Næstu fimm fengu 15% greiddra atkvæða og aðrir minna. Vestfirðingur ársins 2008 fékk

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.