Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.01.2009, Side 6

Bæjarins besta - 08.01.2009, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is Birgir Olgeirsson, símar 456 4560 og 867 7802, birgir@bb.is Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorku- lífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X Ritstjórnargrein Spurningin Eyðir þú minni fjármunum í flug- eldakaup í ár? Alls svöruðu 597. Já sögðu 434 eða 73% Nei sögðu 163 eða 27% Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Helgarveðrið Horfur á föstudag: Stíf suðlæg átt með skúrum eða éljum sunnan- og vestanlands. Hiti 5-10 stig. Horfur á laugar- dag: Gengur í norð- austanátt með snjó- komu norðanlands. Horfur á sunnudag: Austan- og NA-átt með snjókomu eða slyddu. Kólnar í veðri. Hin aldna alþýðuhetja Í viðtali Bjarna Brynjólfs- sonar við Jóhann Jónasson hjá 3X Technology var í þrígang farið rangt með föðurnafn Alberts Högna- sonar og hann sagður Mar- zelíusson. Þá var móðir Jóhanns sögð Vagnsdóttir en hún er að sjálfsögðu Valgeirsdóttir. Eru hlutaðeigendur beðn- ir velvirðingar á þessum mistökum. Hann stundar enn sjóinn 88 ára gamall. Trúr heimabyggðinni, landi og þjóð; staðfastur í öllu er hann tekur sér fyrir hendur, bind- indismaður og hraustmenni mikið. ,,Hann er hornsteinn vestfirsks samfélags, lifandi fyrirmynd fyrir unga sjómenn, hörkutól og ein- stakst góðmenni.“ Þetta er meðal þess sem lesendur fréttavefjarins bb.is tilgreindu fyrir þeirri ákvörðun sinni að velja aldraðan sjómann á Suðureyri sem Vestfirðing ársins 2008. Fólk virtist ekki í vafa. Höfðinginn Egill Kristjánsson fékk helmingi fleiri atkvæði en sá er næstur kom og var þó ekki í kot vísað hjá Önundi Hafsteini Pálssyni á Flateyri, stofnanda og eiganda upptökuversins Tanksins, manns sem sýnt hefur einstakan dugnað og bjartsýni við uppbyggingu á fyrirtæki sínu og sannað að það þrífst sitthvað utan borgarmúranna, sé rétt á málum haldið. Egill Kristjánsson er áttundi í röðinni sem lesendur bb.is velja sem Vestfirðing ársins. Fyrstur í valinu, 2001, varð Guðmundur Halldórsson, sjómaður í Bolungarvík, sem þá stóð í stafni í rétt- indabaráttu smábátasjómanna. Ætli það sé tilviljun, nú þegar hver holskeflan af annari hefur riðið yfir efnahag þjóðarinnar og menn standa ráðalitlir í útsoginu, yfir allri eyðileggingunni, skuli sjónir Vestfirðinga beinast að manni eins og Agli Kristjánssyni. Varla. Vestfirðingum er það ef til vill öðrum fremur ljósara af alda- gamalli reynslu að öll él birtir upp um síðir; eftir áföll verða þeir að hefjast handa, taka höndum saman. Til forustu er þeim þá best treystandi sem vita að kapp er best með forsjá; fólki sem lætur ekki ágirndina eftir hinu forgengilega villa sér sýn; fólki, sem hefur velferð allrar áhafnarinnar í fyrirrúmi og veit að ella verður landi ekki náð; fólki með viðhorfi öldungsins á Suðureyri til lands og þjóðar. BB færir Agli Kristjánssyni kveðjur og hamingjuóskir. Breyting á Bæjarins besta Á tímum hraðfréttaflutnings er við því að búast að fréttir vikublaða séu alla jafnan ekki þær nýjustu. Því hefur verið ákveðið Fréttavefurinn bb.is, sem gefið hefur góða raun og er afar mikið lesinn, verði fyrst og síðast vettvangur daglegra frétta. Blaðið birti aftur á móti það sem kalla mætti efnismeiri fréttir og umfjallanir um hagsmunamál Vestfirðinga; viðtöl, svo sem verið hefur, og verði í ríkari mæli vettvangur daglegs lífs og viðhorfs íbúanna til opnara og betra samfélags. Það er einlæg von okkar að vel takist til. Allur stuðningur lesenda til að svo megi fara er vel þeginn. s.h. Samkvæmt tillögum í fjár- laganefndar Alþingis verður Hornstrandastofu lokað á næsta ári. Hjalti Guðmundsson hjá Umhverfisstofnun segir lokun- ina vera vonbrigði og að þau verðmæti sem hafi skapast við stofnun stofunnar muni tapast. „Okkur þykir það miður að þurfa að framfylgja þessum til- lögum,“ segir Hjalti. Aðspurður hvort honum þyki lokun Horn- strandastofu réttmætur niður- skurður segist Hjalti ekki geta sett sig í dómarasæti. „Ég ætla ekki að setja mig í dómarasæti um það hvernig fjárlaganefnd hugsar sína hluti en mér þykir þetta ekki gott mál eins og að líkum lætur. Stofnun stofunnar var komin langt á leið og gekk mjög vel. Við höfðum ráðið starfsmann og starfsemin var komin vel á veg. Óneitan- lega tapast verðmæti þegar stofnun sem er ný tilkomin lokar og erfitt að bakka út úr svona hlutum,“ segir Hjalti. Hornstrandastofa var ein af tillögum Vestfjarðanefndarinn- ar og var á fjárlögum þessa árs. Fimmtán milljóna króna fjár- veiting var veitt til að koma á fót og starfrækja gestastofu á Ísafirði, sem tengist friðlandinu á Hornströndum, og var for- stöðumaður ráðinn í vor. Þá verður ekki farið í stofnun gest- stofu á Látrabjargi eins og til stóð. – birgir@bb.is Hornstrandastofu lokað Á annað hundrað manns tók þátt í þögulum mótmælum á Silfurtorgi á Ísafirði á laugardag. Um var að ræða samstöðu við mótmæli sem hafa farið fram á Austurvelli í Reykjavík og á Ráðhústorginu á Akureyri undanfarna laugardaga. Lengi hafði verið talað um að efna til mótmæla, og þar með taka undir með Íslendingum á öðrum landshornum, en ákvörðunin var tekin samdægurs. Góð mæting var þrátt fyrir það enda bárust fregnir af framtakinu hratt á milli manna og tóku rúmlega 100 manns sér stöðu á Silfurtorgi og veifuðu kröfuspjöldum. Stefnt er að því að mótmæli fari fram á Silfurtorgi kl. 15 næstu laugardag og er stefnt að því að einhverjir ræðumenn komi þar fram. Rétt er að taka fram að mótmælin eiga að fara friðsamlega fram.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.