Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.01.2009, Síða 8

Bæjarins besta - 08.01.2009, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Afdrifaríkasta ákvörðun lífs þíns? Að fara að ósk eiginkonunnar og brjótast frá Ísafirði til Flat- eyrar þann 25. október 1995 og lenda svo sjálfur í flóðinu um nóttina. Hvar langar þig helst að búa? Flateyri Hver var hamingjusamasta stund lífs þíns? Þegar ég komst að því að tveir synir mínir komust lífs af í snjóflóðinu á Flateyri 26. október 1995. Mestu vonbrigði lífs þíns? Snjóflóðið 1995. Mesta uppgötvunin í lífi þínu? Sú erfiðasta var þegar KONAN mín vissi meira um vélina í bátnum okkar en ég! Uppáhaldslagið? Þau eru reyndar mörg, s.s. Er það hafið eða fjöllin, Í fjarlægð, en um hátíðarnar t.d. Helga nótt, svo má nefna Mexican girl. Uppáhaldskvikmyndin? Elska Bond Uppáhaldsbókin? Fljótt, fljótt sagði fuglinn – af því ég komst upp með að lesa bara 10 síður og fá 8 fyrir á stúdentsprófinu! Ógleymanlegasta ferðalagið? Sumarfríið 2003 með konunni, tveim systrum hennar og dönskum svila mínum um V-Evrópu. Uppáhaldsborgin? Kaupmannahöfn Besta gjöfin? Synir mínir, tengdadætur og barnabörn. Telur þú að líf sé á öðrum hnöttum? Án efa. Hvaða hlut geturðu alls ekki verið án? Gleraugnanna og morgunkornsins frá Actavis. Fyrsta starfið? Afgreiðslumaður í verslun pabba 10 ára gamall. Draumastarfið? Það sem ég er í hverju sinni Hvaða frægu manneskju hefur þér verið líkt við? Einar Kristinn ráðherra og vin minn – en það var áður en ég tók að vaxa á þverveginn! Fallegasti staðurinn á Íslandi? Vestfirðir – get ekki gert upp á milli staða. Skondnasta upplifun þín? Af því sem segja má frá, ætli það hafi ekki verið þegar ég lék Grýlu einu sinni á skemmtun í samkomuhúsinu á Flateyri. Aðaláhugamálið? Félagsmál, ferðalög og fjölskyldan. Besta vefsíðan að þínu mati? Ekki vafi – það er upphafssíðan mín: bb.is. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Trésmiður Hver er þinn helsti kostur að þínu mati? Jákvæðni og þolinmæði. En helsti löstur? Jákvæðni og þolinmæði. Besta farartækið? Fordinn minn Explorer. Hver er uppáhaldshátíðardagurinn þinn? Aðfangadagur jóla. Til hvaða manneskju lítur þú mest upp til? Jesú Krists. Ef þú mættir heita hvað sem er, hvað myndirðu heita? Eiríkur Finnur, þó ekki væri nema vegna: Til borgarinnar hann brá sér/ og byrjaður er að ná sé/ glaður í kvöld/ í góðvinafjöld/ Eiríkur Finnur á sér. Á hvaða tíma sólarhrings kanntu best við þig? Þegar ég borða. Í hvaða stjörnumerki ertu? Voginni. Lífsmottóið þitt? Þeir fiska sem róa. Eiríkur Finnur Greipsson hefur í árafjöld getið sér gott orð sem aðstoðarsparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestfirðinga, en hann lét af störfum þar í haust eftir tólf ár í sparisjóðabransanum. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Trésmiðjunnar í Hnífsdal frá áramótum og hefur því í nógu að snúast þessa dagana. Hann tók sér þó tíma að svara nokkrum spurningum fyrir BB og skilaði þeim með sóknarkveðju úr himneskri dýrðinni í Önundarfirði og von um skjótan efnahagsbata og handleiðslu guðs. Inn að beini Eiríkur Finnur Greipsson,framkvæmdastjóri Erlendum ríkisborgun- um fjölgaði um 139 á Vest- fjörðum á síðasta ári á sama tíma og íslenskum ríkis- borgurum fækkaði um 74. Eins og fram hefur komið fjölgaði íbúum Vestfjarða 65 eða 0,9% og er það í fyrsta skipti síðan 1981 sem að fólki fjölgar í fjórðungn- um. Mest fjölgun varð í Bolungarvík 6,4%, í Reyk- hólahreppi fjölgaði íbúum um 4,9% og Tálknafirði um 4,1%. Mesta fækkunin varð í Vesturbyggð 2,1% og í Strandabyggð þar sem hún var 2,0%. Af einstökum þéttbýlisstöðum fjölgaði mest á Ísafirði, um 40 manns en mesta fækkunin varð hins vegar á Þingeyri 33 og Flateyri 28. Frá þessu var sagt á vef Byggðastofnunar. Fleiri út- lendingar Bjórverksmiðja á Ísafirði gæti litið dagsins ljós í nán- ustu framtíð. Neil Shiran Þórisson, verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Vest- fjarða, segir félagið hafa komið að gerð viðskipta- áætlunar fyrir tvo aðila sem hafi hug á að opna bjór- verksmiðju á Ísafirði en meira getur hann ekki tjá sig um málið að sinni vegna trúnaðar við aðilana. Stein- þór Bragason, framkvæmda- stjóri Alsýnar á Ísafirði, sagði í samtali við blaðið að Alsýn væri að vinna að 19 verkefnum og þar á með- al bjórverksmiðju. „T.d. er það bjórverk- smiðjan og er komin fjár- festir í það verkefni,“ sagði Steinþór. Heimildir Bæjar- ins besta herma að verkefn- ið hafi verið komið á það stig að búið var að skoða húsnæði sem þótti henta bjórverksmiðju á Ísafirði og hafi verið komnir fjárfestar að henni. Verkefnið er þó í bið núna eftir að fjármála- kreppan skall á Íslandi. Bjór á Ísafirði?

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.