Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.01.2009, Síða 9

Bæjarins besta - 08.01.2009, Síða 9
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 9 Kæru Vestfirðingar! Frá og með nýliðnum áramótum tók opnunartími nokkurra afgreiðslna Sparisjóðsins á Vestfjörðum breytingum. Opnunartími útibúa á Vestfjörðum verða sem hér segir: Króksfjarðarnes kl. 11:00 - 16:00 Patreksfjörður kl. 09:15 - 16:00 Tálknafjörður kl. 12:30 - 16:00 Bíldudalur kl. 12:30 - 16:00 Þingeyri kl. 12:30 - 16:00 Flateyri kl. 12:30 - 16:00 Ísafjörður kl. 09:15 - 16:00 Súðavík kl. 12:30 - 16:00 Símaþjónusta verður í boði frá kl. 09:00 -16:00 í síma 450 2500. Fyrirkomulag póstdreifingar sem Sparisjóðurinn annast á svæðinu mun ekki taka neinum breytingum. Minnum á að Heimabankinn er ávallt opinn og aðgengi að hrað- bönkum á starfssvæðinu verður óbreytt. Með nýárskveðjum. „Við gerum okkur grein fyrir því að það er þröngt í búi og það fyrsta sem menn skera niður er dekur við einhverja tónleika út á landi. Það er ljóst að Ísafjarð- arbær og Menningarráð Vest- fjarða styrkja hátíðina í ár og þá er búið að tryggja grunninn að því að hátíðin verður haldin á páskum í ár,“ segir Guðmundur M. Kristjánssonar, einn að- standenda tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, en fram- kvæmdanefnd hátíðarinnar kom saman milli jóla og nýárs til að fara yfir stöðu mála og ákvarð- anatöku vegna næstu hátíðar. Aðspurður hvort nefndin hafi annað húsnæði í huga í ár en á Ásgeirsbakka, þar sem hátíðin hefur verið haldin tvö síðustu ár, segir Guðmundur að ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum. „Okkur hefur líkað mjög vel að vera niður á Ásgeirsbakka en það hefur ekkert verið þreifað á því hvort það standi til boða í ár. Við munum væntanlega leita til þeirra fyrst.“ Hann segir hátíðina hafa staðið undir sér á síðasta ári. „Við erum ekki að horfa fram á að þurfa borga skuldir síðasta árs og er mark- mið okkar að koma alltaf út á núlli. Við erum ekki í þessu til að græða peninga,“ segir Guð- mundur. Hann segir nefndina ekki búna að ráða rokkstjóra fyrir næstu hátíð en vilji sé innan hennar að rokkstjóri síðustu tveggja hátíða, Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, verði rokkstjóri að nýju. „Hann er hins vegar í fullu starfi hjá Ísafjarðarbæ sem upp- lýsingafulltrúi og við munum kannski leita til sveitarfélagsins um að fá að nota hann sem slíkan í gegnum bæinn. Við vitum hins vegar ekki hvernig það verður,“ segir Guðmundur. – birgir@bb.is Aldrei fór ég suð- ur um páskana Tæplega þrjátíu nemendur voru brautskráðir frá Mennta- skólanum á Ísafirði fyrir jólin. Útskrifaðir voru þrír nýstúd- entar, sjö sjúkraliðar, tólf véla- verðir smáskipa, einn af vél- stjórn 2. stig og sjö í samfélags- túlkun. Var þetta í fyrsta sinn sem útskrift í samfélagstúlkun fór fram en nám við fagið hófst í MÍ á vorönn 2007. Meðal út- skriftarnema voru tveir samfé- lagstúlkunarnemar sem komu um langan veg til að taka þátt í athöfninni en það voru hjónin Elwira Lidia Riemel Wojtowicz og Tomasz Wojtowicz Stanis- lawsson frá Egilsstöðum. Nám- ið er ætlað tvítyngdu fólki sem hefur góð tök á íslensku og áhuga á að starfa sem túlkar. Markmið námsins eru meðal annars að nemendur geri sér grein fyrir helstu vandkvæðum í túlkun á milli mismunandi tungumála og menningarsvæða, að nemendur þekki innviði ís- lensks samfélags auk helstu stofnanna og hlutverks þeirra og að nemendur hafi þá faglegu færni sem þarf til að vera fær um að túlka við erfiðar aðstæður. Fyrsta útskriftin úr samfélagstúlkun Tæplega þrjátíu nemendur voru brautskráðir frá Menntaskólanum á Ísafirði.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.