Bæjarins besta - 08.01.2009, Side 11
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 11
Einar er mjög ánægður með bílinn svo lengi sem hann virkar. Bíllinn er smíðaður í Danmörk og er tuttugu ára gamall.
„Það er alfarið þessu mönnum
að kenna að þetta mál er komið
í vaskinn. Það er ekki ríkinu að
kenna hvernig komið er fyrir
Hornstrandastofu,“ segir Ólafur
B. Halldórsson, framkvæmda-
stjóri á Ísafirði, og á hann þar
við að það sé Hjalta Guðmunds-
syni hjá Umhverfisstofnun og
Jóni Björnssyni forstöðumanni
Hornstrandastofu að kenna að
loka eigi Hornstrandastofu.
Ólafur segir þá tvo hafa dregið
sig á asnaeyrum í viðræðum
um húsnæði fyrir stofuna í
Vestrahúsinu á Ísafirði og hefðu
þeir verið búnir að gera samning
um húsnæði, hefði ekki verið
hægt að loka stofunni. „Þeir
koma til okkar um mitt sumar
2007 og falast eftir húsnæði. Þá
var samt sem áður ekki hægt að
aðhafast strax í húsnæðismálum
því þeir voru að bíða eftir fjár-
lögum fyrir stofuna. Svo kom
fjárveiting upp á 15 milljónir
króna. Þá var ekki hægt að semja
um húsnæðið því þeir þurftu að
ráða mann. Svo var Jón Björns-
son ráðinn í janúar 2008 og ekki
gátu þeir þá tekið ákvörðun um
húsnæði. Við gerðum þeim
tvenns konar tilboð, bæði óinn-
réttað húsnæði og full innréttað.
Enn gátu þeir ekki ákveðið
neitt,“ segir Ólafur.
Hann segir að eftir langan
tíma hafa verið ákveðið að leita
annars staðar eftir húsnæði á
Ísafirði og hafi þá verið rætt við
Örn Ingólfsson og bræðurna
Gísla og Úlf Úlfarssyni um hús-
næði. Þeir hafi einnig verið
dregnir á asnaeyrum. „Þeir
ákváðu ekki neitt og hafa dregið
ákvörðunina á annað ár. Það
átti að gera glæsilegan sýningar-
sal en þeir hafa ekki gert nokk-
urn skapaðan hlut og það er
alfarið þeim að kenna að það er
verið að loka stofunni. Þeir
ræddu það við okkur að gera 15
ára leigusamning og ef hann
hefði verið gerður þá hefði ríkið
ekki verið í neinni stöðu til að
loka stofunni. Það er því ansi
skondið af Hjalta að segja stofn-
un stofunnar hafi gengið vel í
fjölmiðlum því hún gekk mjög
illa, það er sannleikurinn.“ segir
Ólafur.
„Þetta eru hans ummæli og
þetta angi af stærra máli. Þessi
mál eru óskyld. Meira vil ég
ekki láta hafa eftir mér,“ segir
Hjalti Guðmundsson um um-
mæli Ólafs. Gísli Úlfarsson tek-
ur undir orð Ólafs B. Halldórs-
son og segir Hjalta og Jón hafa
dregið málið og hefði verið búið
að koma stofunni fyrir í húsnæði
á Ísafirði hefði Hornstranda-
stofa verið þar um ókomna tíð.
Þeir voru í viðræðum við Gísla
um Hæstakaupstaðarhúsið og
voru þær langt á veg komnar.
Örn Ingólfsson tekur einnig
undir orð Ólafs en þeir voru í
viðræðum við hann um húsnæð-
ið sem hýsti Pols. „Það er nöt-
urlegt að sjá á eftir Hornstranda-
stofu sem átti að færa svæðinu
atvinnu. Svæðið hefur ekki
notið uppsveiflu síðastliðin ár
og þegar gefur á bátinn er farið
í fortíðina og dæmið slegið af.
Það átti löngu að vera búið að
klára þetta mál varðandi stofuna
og er þetta merki um frábæran
aumingjaskap af hálfu ríkisins
og þeirra sem áttu að koma
þessu verkefni á koppinn. Þeir
væru búnir að missa vinnuna ef
þeir hefðu verið annars staðar í
vinnu,“ segir Örn.
„Lokun Hornstrandastofu engum að
kenna nema starfsmönnum hennar“
Fjárlaganefnd hefur ákveðið að loka Hornstrandastofu.