Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.01.2009, Page 16

Bæjarins besta - 08.01.2009, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Það sem stendur upp úr… Óðinn Gestsson. Halla Signý Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri hjá Bolungarvíkurkaupstað Árið 2008, var um margt ágætt en líka erfitt í lífi þjóðar. Það sem upp úr stendur af erlendum fréttaannálum er þegar Barack Obama var kjörinn forseti Banda- ríkjanna í nóvember síðastliðin. Þetta fannst mér stór tíðindi fyrir heimsbyggðina alla og bind miklar vonir við að honum fylgi stefnubreyting hjá Bandaríkja- mönnum í stríðsrekstri. Það helsta innanlands, var hvað veðurguðirnir hafa verið okkur hliðhollir og sumarið sér- staklega blítt og yndislegt til sjávar og sveita. 6. október fer á spjald minninganna við hlið dag- anna þegar John Lennon var skotinn og Vestmannaeyjargosið hófst ásamt fleiri hörmungardög- um sem yfir okkur hafa dunið. Vinnuvikan þar á eftir var mjög skrýtin. Mbl.is var oftast á skján- um og útvarpið hærra stillt en vanalega. Kvíðavísitalan fór upp fram úr öllum spám og væntinga- vísitalan féll í frjálsu falli með krónunni. Spurningin var „sekk- ur skútan eða flýtur?“ Nú þegar nýtt ár blasir við okkur þá er það sem uppúr stendur „flýtur á með- an ekki sekkur“ og svo er bara að vona það besta. Í mínu persónulega lífi var þetta ágætt ár, dóttir mín flutti vestur með fjölskylduna og barna- börnin tvö voru meiri en velkom- in í húsi afa og ömmu. Önnur dóttir mín flutti úr hreiðrinu eftir að hafa fengið hvíta kollinn frá Menntaskólanum á Ísafirði og dvelur nú í höfuðborginni og sonurinn kláraði grunnskólann svo nú er bara eitt barn eftir í skyldunáminu. Eftirminnilegast frá sumrinu er ferð sem fjöl- skyldan fór á Flæðareyrarhátíð- ina fyrstu helgina í júlí í yndis- legu veðri og eyddi þar helginni í góðum félagsskap annarra Grunnvíkinga. Hvað varðar kom- andi ár þá segi ég þetta: Hvað boðar nýárs blessuð sól? /hún boðar náttúrunnar jól...Í al- máttugri hendi hans/er hagur þessa kalda lands. þetta eru línur úr sálmi Matthías Jochumssonar ort um 1880. Matthías sagði líka í þjóðsöngnum: Ó vertu hvern morgun vort ljúfasta líf, /vor leiðtogi, í daganna þraut..:,: Ís- lands þúsund ár:,: verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár/sem þroskast á Guðs ríkis braut. Ég sendi Vestfirðingum öllum óskir um gleðilegt ár. Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri Íslandssögu á Suðureyri Af innlendum málefnum lið- ins árs er það helst hversu frá- bærum árangri við náðum í keppnum við aðrar þjóðir, þar er ég að tala um silfurverðlaunin á Ólympíuleikunum og ekki síður þann árangur sem að íslenska kvennalandsliðið náði með því að komast í úrslit Evrópukeppn- innar í knattspyrnu. Af erlendu vettvangi er það helst hvernig fjármálakreppan hefur leikið margar stórþjóðir undanfarið og er væntanlega ekki öll kurl komin til grafar í þeim málum. Það að stórfyrir- tæki sem að mörg hafa verið til í allt að hundrað ár skuli riða til falls eða eru að falla, er með miklum ólíkindum, þá verður ekki komist hjá því að nefna kjör fyrsta blökkumannsins í em- bætti forseta Bandaríkjanna, og er vonandi að honum takist að stýra málum þannig að friður komist á í heiminum og að Banda- ríkin hætti að vera þessi alheims- lögregla sem þeir eru. Af mínum eigin högum er það helst að elsta dóttir mín varð stúdent á árinu, þá má nefna ferð mína með yngstu dótturina til Serbíu á liðnu sumri, en þar fór ég ásamt nokkrum öðrum for- eldrum á vegum KFÍ með fríðan hóp af frábærum ungmennum í æfingabúðir í körfubolta. Með því að heimsækja land eins og Serbíu sér maður hversu gott það er að vera Íslendingur. Þá hefur umhverfi til rekstrar fyrirtækis einsog þess sem að ég stjórna verið frekar hagfellt á árinu. Væntingar næsta árs lúta að því að Íslenska þjóðin nái að snúa vörn í sókn í þeim ólgusjó sem að hún hrærist í þessa dag- ana að við náum tökum á því ástandi sem að er og komumst aftur á þann stall sem okkur ber að vera á. Ester Rut Unnsteins- dóttir, líffræðingur Þegar litið er tilbaka og farið yfir helstu atburði nýliðins árs er af nógu að taka. Það sem mér þykir eftirtektarvert á erlendri grundu er að alda ófriðar og mann- vonsku virðist vera að ríða yfir heimsbyggðina, almennt óþol ríkir gagnvart lýðræði og mann- réttindi víða brotin auk þess sem mikill munur er á kjörum fólks innan sömu svæða. Áhrifa 9.11. gætir enn og er hatrið út í Vest- urlandabúa farið að taka á sig ýmsar myndir í formi óttahern- aðar þar sem hinn meinti óvinur er persónugerður eftir þjóðerni. Við Íslendingar fengum að finna fyrir því og vorum skráð á lista yfir hryðjuverkamenn fyrir orð manns sem fáir hér heima höfðu tekið eftir áður en hefur mikil völd og sumir ganga jafnvel svo langt að segja að hann noti að- ferðir sem Hitler beitti á sínum tíma. Við vorum sem betur fer ekki lengi á listanum en þarna var litla, friðsama þjóðin svívirt af þeirri stóru og valdamiklu og bárum við ekki einu sinni hönd fyrir höfuð okkar enda í losti yfir hremmingunum sem höfðu dunið á okkur, svo ekki sé minnst á þær sem skullu á í kjölfarið. Þetta litla atvik sýnir hvað við erum í raun lítil og vanmáttug þjóð þrátt fyrir alla víkinga, þorskastríð, Björk, Sigurrós og Jón Pál. Hér heima var það stóri jarð- skjálftinn í fyrravor sem er mér minnisstæðast enda var mikið hafarí og lítið vitað um afleiðing- arnar í fyrstu. Ég var stödd í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskól- ans, en það er byggt á pöllum að hluta til. Varð mönnum strax ljóst að þetta væri „sá stóri“ og þustu tugir starfsmanna fram á efsta pallinn sem stendur undir stóra skáglugganum og engin súla þar undir. Þarna stóðum við í kös og horfðum á jarðskjálfta- mæla jarðvísindasviðs hoppa til og frá. Ég velti því fyrir mér hvort þetta væri besti staðurinn til að vera á í jarðskjálfta upp á 6 á Richter. Bankahrunið og þeir atburðir sem í kjölfarið hafa komið eru auðvitað stærstu mál síðastliðins árs. Þrátt fyrir að það hafi legið í loftinu lengi að þetta margum- talaða góðæri væri að einhverju leyti upp á krít og að krónan hafi byrjað að veikjast strax í vor, virðist sem enginn hafi gert sér grein fyrir hverslags risa upp- hæðir höfðu verið teknar að láni fyrir útrás og uppbyggingu. Hrun krónunnar hefur orðið til þess að erlendar skuldir margfölduð- ust á skömmum tíma og þannig gat milljarða skuld hafa orðið þriggja milljarða skuld bara meðan ég fór út að ganga með hundana mína. Þessar upphæðir eru svo háar að enginn veit eigin- lega hvernig þær líta út nema sem tölur með mörgum núllum. Í Simbabve var gefinn út 10 milljarðaseðill sem dugði fyrir 20 brauðhleifum fyrir jólin, skyldi þetta verða raunveruleik- inn hjá okkur einhvern daginn? Í mínu persónulega lífi hefur árið verið nokkuð viðburðarríkt þó það hafi verið heldur rólegra en árið á undan. Ég hóf störf á nýjum vinnustað í janúar 2008 en það er nýstofnað Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands og staðsett í Bolungarvík. Þar vorum við 11 starfsmenn og nemendur við störf þegar mest lét í sumar, frá fimm löndum. Fræðasetrið er í sama húsnæði og Náttúrustofa Vestfjarða og hafa báðir aðilar gagn af sam- búðinni. Á þessum tveimur vinnu- stöðum eru mörg verkefni fram- undan og mikilvægt að hlúa að uppbyggingu slíkrar starfsemi á svæðinu. Framtíðin er fyrir vestan en ég að undirbúa að flytja búferlum með fjölskyldu minni. Við ætlum að setjast að á Súðavík þar sem við munum vinna að uppbygg- ingu Melrakkaseturs Íslands – fræðaseturs um íslensku tófuna. Ég hef mikla trú á að verkefninu sem hefur mikla sérstöðu og mun vonandi laða að fjöldann allan af ferðamönnum sem svo munu njóta annara möguleika ferða- þjónustuaðila á svæðinu. Það eru miklar auðlindir fólgnar í náttúru og menningu Vestfjarða og ef okkur tekst að halda vel utan um þessi dýrmæti og vinna saman, öll sem eitt, muni verða til alveg nýtt góðæri hér fyrir vestan sem vex og dafnar og allir njóta góðs af. Önundur Jónsson, yfir- lögregluþjónn á Ísafirði Það sem bar hæst á innlendum vettvangi var jú árás Breta á smáþjóð – okkur Íslendinga. Gordon Brown sá sér leik á borði í slæmri stöðu sinni í stjórnmál- um heima fyrir og notaði hryðju- verkalög á bandalags- og „vina- þjóð“. Því miður var þetta ekki í fyrsta sinn sem Bretar réðust gegn Íslendingum og hagsmun- um þeirra með ofbeldi. Breska heimsveldið, sem farið er að brotna hressilega úr, sýndi sitt rétta andlit þarna. Skrýtið að Bretar dagsins í dag skuli vera sama sinnis og gömlu nýlendu- herrarnir voru. Ætlar Bretinn ekki að hoppa inn í nútímann? Það sem bara hæst á erlendum vettvangi var í mínum huga er það tvímælalaust vanmáttur Sameinuðu þjóðanna til að ganga á milli stríðandi aðila og bjarga saklausum borgurum frá morð- óðum lýð. Mig hryllir við fréttum frá Afríku og Asíu þar sem manns- lífið er einskis metið. Svo er að sjá að SÞ komi ekki til hjálpar nema Bretland og Bandaríkin hafi einhvern efnahagslegan ávinning af málinu. Þeir for- dæma Kínverja fyrir að taka fólk af lífi, en gera það sjálfir. Þeir fordæma pyntingar í öðrum löndum, en pynta sjálfir. Allt í andstöðu við markmið SÞ. Það þarf að efla SÞ með samstöðu allra þjóða og afnema neitunar- vald stórþjóðanna. Hvað bar hæst í persónulega lífinu? Fyrir utan gott árferði í fjölskyldumálum, skemmtilegt ættarmót og ferðalög innanlands, finnst mér veðurfarið í sumar hafa leikið við mig með eindæm- um. Það skiptir mig miklu máli að veðrið sé gott og þá miðað við árstíma. Á veturna á að vera snjór og frost, en sumarið á að vera hlýtt og lítt votviðrasamt. Stella Hjaltadóttir. Um áramót er hefð fyrir því að hafa samband við nokkra góðborgara á fréttasvæði Bæjarins besta og fá þá til að líta yfir árið sem er að líða og segja frá því sem þeim þótti merkilegast. Allir fengu sömu spurningarnar; hvað þykir þér minnisstæðast á árinu í þínu persónulega lífi og af innlendum og erlendum vettvangi. Að síðustu var spurt hverjar væntingarnar eru til nýs árs.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.