Bæjarins besta - 08.01.2009, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009
Umsjónarmaður félags-
starfs eldri borgara
Laust er til umsóknar starf umsjónarmanns
félagsstarfs eldri borgara, sem starfrækt er
í Félagsbæ á Flateyri. Um er að ræða 25%
starf sem er laust frá og með janúar 2009.
Vinnustofa Félagsbæjar er opin á þriðju-
dögum og fimmtudögum milli kl. 13:00 og
17:00 yfir vetrarmánuðina. Í vinnustofunni
er unnið fjölbreytt og skapandi starf og við
leitum að metnaðarfullum og kraftmiklum
einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna
með fólki.
Upplýsingar um starfið veitir Sædís María
Jónatansdóttir hjá Skóla- og fjölskylduskrif-
stofu Ísafjarðarbæjar, í síma 450 8000 eða
um netfangið saedis@isafjordur.is.
Bílstjóri óskast
Bílstjóri óskast í afleysingar hjá Íslands-
pósti á Ísafirði.
Allar nánari upplýsingar gefur stöðvarstjóri
í síma 456 5000.
Stöðvarstjóri.
Skólameistari MÍ bjóst ekki
við svo miklum niðurskurði
„Við bjuggumst ekki við svona
miklum niðurskurði,“ segir Jón
Reynir Sigurvinsson, skóla-
meistari Menntaskólans á Ísa-
firði, en í tillögum fjárlaganefnd-
ar alþingis er lagt til að fjárveit-
ing til MÍ verði skorin niður um
8,1 milljón króna á árinu 2009.
Fer fjárveitingin úr 287,8 millj-
ónum í 279,7. Jón Reynir segist
hafa búist við að menntastofn-
anir héldu sínum hlut. „Út af
þeirri einföldu ástæðu að með
allri skerðingu þýðir að skera
verður niður námsframboð. Það
þýðir að færri nemendur verða
innritaðir á næsta ári og fækkar
þá störfum við skólana og fjölg-
ar á atvinnuleysisskrá og fleiri
flytja úr landi. Þá er spurningin
hvort er betra. Ég tel þetta því
mjög vafasaman niðurskurð,
svo ég kveði nú ekki sterkara að
orði,“ segir Jón Reynir. Hann
segir skólameistara hafa rætt
þennan niðurskurð sín á milli
og koma til með að mótmæla
niðurskurðinum.
Námsframboð Menntaskól-
ans á Ísafirði verður væntanlega
skert næstu skólaár og mun
starfsemi skólans taka nokkrum
breytingum. „Aukið námsfram-
boð skólans hefur aukið útgjöld
skólans sem ásamt hækkun verð-
lags og launa farið nokkuð um-
fram fjárhagsáætlun. Rekstrar-
staða skólans stefnir í verulegan
halla um þessi áramót öfugt við
lok síðasta árs þegar skólinn
skilaði tekjuafgangi upp á 16
milljóna króna og gat því greitt
niður uppsafnaðar skuldir frá
fyrri árum. Þetta ásamt niður-
skurði fjárheimilda um 3% fyrir
næsta skólaár þýðir væntanlega
að draga þurfi úr námsframboði
skólans næstu skólaár. Mennta-
skólinn á Ísafirði mun því finna
verulega fyrir afleiðingum krepp-
unnar títtnefndu sem á okkur
skall vegna glannaskapar í fjár-
festingum svokallaðra útrásar-
víkinga og einnig vegna aðgerð-
arleysis og vanþekkingar ráða-
manna þjóðarinnar“, sagði Jón
Reynir Sigurvinsson, skóla-
meistari í skólaslitaræðu sinni
við jólaútskrift skólans.
Með nýjum lögum um fram-
haldsskóla sem voru samþykkt
fyrr á þessu ári mun öll umgjörð
skóla breytast. „Framhaldsskól-
um landsins er með þessum lög-
um gefið mikið frelsi og í því
felst tækifæri til að skapa skóla
nánast frá grunni til hagsbóta
fyrir nemendur okkar, atvinnu-
lífið og samfélagið. Mikil vinna
er framundan þar sem hver skóli
þarf að semja sína námskrá upp
á nýtt og ákveða áherslur innan
sinna veggja, setja sér markmið
og finna bestu leiðirnar að
þeim“, sagði Jón Reynir.
Vinna er þegar hafin við inn-
leiðingu nýju laganna við MÍ.
Verkefnum hefur verið for-
gangsraðað og fundir skipulagð-
ir fram til júní 2009. Þá hefur
skólinn hafið samstarf við Fram-
haldsskóla Norðurlands Vestra
og Verkmenntaskóla Austur-
lands. Að sögn Jón Reynis hefur
Menntaskólinn á Ísafirði sett sér
það markmið að standa meðal
fremstu framhaldsskóla lands-
ins í notkun upplýsingatækni
við nám og kennslu. Sérstök
áhersla verður á endurmenntun
kennara sem mun að mestu fara
fram innan veggja skólans og
munu fyrstu námskeiðin hefjast
við upphaf næstu annar.
Þess má geta að um miðjan
október voru 354 nemendur í
námi við skólann og bættust 32
nemendur við tölu nemenda eins
og hún var við upphaf skólaárs-
ins. – thelma@bb.is
Breytingar framundan
hjá Menntaskólanum
„Niðurskurðurinn á landsvísu
hljóðar upp á þúsund nemendur.
Ég veit ekki hvernig við bregð-
umst við þessu en við munum
gera það með einhverjum hætti,“
segir Jón Reynir. Hann segir
skólann hafa greitt upp halla frá
fyrri árum og hafi sú vinna mið-
að vel áfram þar til nú. „Það
hefur reyndar hægt á niður-
greiðslu skulda hjá okkur því
skólinn hefur boðið upp á meira
námsframboð en áður og kostar
það sitt. Hlutfallslega höfum við
haft mun fleiri verknámsnema
og leiðrétting á því kemur ávallt
ári síðar. Það er óþægileg staða
að horfa upp á rekstrarhalla sem
þarf að leiðrétta ári seinna. En
þetta er niðurstaðan og tökum
við á því en auðvitað hefðum
við vilja sjá að fjárveitingin yrði
óskert,“ segir Jón Reynir.
Hann segir skólann ekki vera
búinn að vinna endanlega fjár-
hagsáætlun fyrir næsta ár og
því sé erfitt að segja til um hvar
verður skorið niður hjá skólan-
um.
– birgir@bb.is
Menntaskólinn á Ísafirði.