Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.01.2009, Síða 19

Bæjarins besta - 08.01.2009, Síða 19
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 19 Íbúum á Vestfjörðum fjölgar umtalsvert á ný á árinu 2009. Ekki verður það vegna meiri frjósemi heimafólks heldur vegna aðflutnings, fyrst og fremst af höfuðborgarsvæðinu. Fleiri erlendir ferðamenn leggja leið sína til Vestfjarða en nokkru sinni fyrr. Mörg lítil sprota- fyrirtæki líta dagsins ljós um allan fjórðunginn. Samstarf Ísa- fjarðarbæjar og Grænlendinga eflist. Aflabrögð verða almennt góð hjá vestfirzkum fiskiskipum en erfiðleikar verða í sölu afurða erlendis. Atvinnuleysi verður mun minna á Vestfjörðum en almennt á landsvísu. Pólitíkin verður með allra friðsamasta móti í vestfirzkum sveitarfélögum. Samstarf og samstaða meirihluta og minni- hluta einkenna langflest mál. Þó má í einu sveitarfélagi búast við hatrömmum pólitískum ágreiningi um tilhögun hunda- hreinsunar eða eitthvað sam- bærilegt. Taka þær deilur meiri tíma og andlegt þrek á fundum sveitarstjórnar en gerð fjárhags- áætlunar og fá athygli á lands- vísu. Talsverðar umræður verða um sameiningarmál sveitarfé- laga en ágreiningur í þeim efn- um verður fremur milli einstakra sveitarfélaga en innan þeirra. Sumarið verður fremur þurr- viðrasamt. Úr þessu rætist með haustinu og berjaspretta verður með bezta móti. Laxveiði í vest- firzkum veiðiám verður yfir meðallagi síðustu ára, þrátt fyrir lítið vatn. Fljótlega á nýja árinu verður lítils háttar uppstokkun í ríkis- stjórninni. Alvarlegir brestir munu koma í stjórnarsamstarfið og endar það með stjórnarslitum og þingkosningum. Á síðasta starfsdegi fráfarandi stjórnar verður fjöldi fráfarandi stjórn- málamanna skipaður í embætti sendiherra. Vinstri grænir vinna stórsigur í kosningunum en verða eftir sem áður áhrifalausir í stjórnar- andstöðu þar sem þeir verða fyrirfram búnir að útiloka sam- starf við alla aðra. Gríðarlegt fylgistap verður hjá Sjálfstæðis- flokki og Samfylkingu en Fram- sóknarflokkurinn bætir við sig miklu fylgi. Frjálslyndi flokkur- inn fellur út af þingi en Íslands- hreyfingin fær fulltrúa á þing í fyrsta sinn. Framsóknarflokkurinn verð- ur í forsæti nýrrar ríkisstjórnar og forsætisráðherrann sá yngsti í íslenzkri stjórnmálasögu. Aðrir flokkar í ríkisstjórn verða Sam- fylking og Sjálfstæðisflokkur. Kjörorð hinnar nýju stjórnar verður Lengi getur vont versn- að. Þar er vísað til þess hvernig afleiðingar bankahrunsins á liðnu hausti bitna með stöðugt átakanlegri hætti á íslenzkum almenningi. Mótmæli á Austurvelli og aðrar slíkar friðsamlegar að- gerðir lognast út af smátt og smátt enda gerir fólk sér grein fyrir því að ekkert mark er tekið á slíku. Hins vegar munu fá- mennir lokaðir hópar láta til sín taka með öllu harkalegri hætti. Af vettvangi íslenzkra efna- hagsmála má að öðru leyti nefna, að Alþjóða gjaldeyris- sjóðurinn mun krefjast þess að nauðsynleg skref verði stigin til að uppræta vanhæfni og spill- ingu sem verið hafi megin- ástæðurnar fyrir efnahagshrun- inu. Meðal annars mun sjóður- inn krefjast þess, að Nígeríu- menn verði fengnir til að taka að sér yfirstjórn Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Undirbúningur hefst að einka- væðingu ríkisbankanna, enda séu þeir betur komnir í eðlilegu samkeppnisumhverfi hins frjálsa framtaks en undir pilsfaldi ríkisvaldsins. Þess verði þó gætt, að þeir komist ekki í hendur einhverra götustráka heldur í traustar hendur valinna manna í bakherbergjum stjórnarflokk- anna. Ekki síst verði þar horft til þaulreyndra framsóknar- manna í fjármálageiranum. Völvan tekur fram, að þar sem eitthvað kann að misfarast í spá þessari, þá er við aðra en hana að sakast. Hún er ekki alsjáandi og þar sem sýn hennar sjálfrar nær ekki til styðst hún stundum við spár greiningar- deilda íslenzkra banka og orð stjórnmálamanna og fleira í sambærilegum gæðaflokki. Völva Vestfjarða lítur yfir nýja árið í pistlinum sem hér fer á eftir, bæði hvað Vestfirði varðar sérstaklega og almennt á landsvísu Völva Vestfjarða lítur yfir árið 2009

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.