Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.01.2009, Síða 20

Bæjarins besta - 08.01.2009, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 Nýtt ár – nýtt siðferði – ný von Stakkur skrifar Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Árið 2008 verður skráð í sögu- bækur. Mikill jarðskjálfti reið yfir Suðurland með talsverðu eignatjóni í maí. Sum hús eyðilögðust algerlega. Eignatjón varð mikið. Fáir áttu við líkamleg meiðsl að stríða, en margir hafa ekki jafnað sig eftir náttúruhamfarirnar. Við upphaf árs litu margir Íslendingar vongóðir til framtíðar. Vestfirðingar höfðu til lítils að hlakka. Þorskkvóti hafði verið minnkaður. En jarðgöngin frá Bolungarvík voru komin á dagskrá og verulega bættur þjóðvegur um Ísafjarðardjúp gaf vonir. Ekki tókst að ljúka brúnni yfir Mjóafjörð. Forseti Íslands, ríkisstjórn og bankastjórar lofuðu útrás ís- lenskra athafnamanna, er keyptu flugfélög, hótel, verslunarkeðj- ur, banka og tryggingafélög, svo fátt sé nefnt. Ekki var hrósið sparað fremur en stóru orðin. Samt hrundi allt á einni nóttu í lok september. Við blasir löng og erfið leið fyrir almenna Íslendinga sem ætlað er að bera byrðarnar. Jón og Gunna íslenska lýðveldis- ins munu ganga undir okinu af fjárestingaróráðsíu siðlausra manna, karla og kvenna. Sumir sitja enn við kjötkatlana. Fyrrum stjórnendur Kaupþings selja nú þjónustu til að semja við bankann sem þeir áður stýrðu og hina bankana líka! Aðrir stýra enn bönkum og fyrirtækjum sem þeir áttu að yfirgefa strax við hrunið. Það vekur spurningar um afstöðu ríkisstjórnar og Alþingis að enn skuli sitja bankastýrur í ríkis- bönkunum, sem tóku yfir Landsbankann og Glitni. Hvers vegna situr forstjóri Fjármálaeftirlitsins enn? Svona mætti lengi spyrja. Hvers vegna leggja alþingismenn ekki spilin á borðið og sýna hvernig þeir greiddu fyrir prófkjör eða kosningabaráttu? Traust verður að skapa á ný, en það tekur langan tíma. Líklega verður þorskkvóti aukinn en sala til Bretlands hægist. Vonandi rætist úr. Sala ríkisbanka til athafnamanna, er ekki áttu siðferði frelsis, gerði Íslendinga ekki ríka. Hinir siðlausu græddu vel. Gróðinn varð ekki eftir á Íslandi. Hvað er til ráða? Boðað er að allir skuli sæta skertum kjörum, hærri sköttum, minni velferð og taka afleiðingum siðlausrar græðgi örfárra. Þá þarf að vera unnt að treysta stjórnmálamönnum. Nýtt ár gefur von um betri tíð. Bætt siðferði þarf, nýja menn til að stýra bönkum og stofnunum ríkisins og atvinnulífi. Af- lausn synda er ekki í boði fyrir þá er skilja eftir sig sviðna jörð. Kraft þarf í atvinnulíf. Byggja verður á framleiðslu verðmæta, ekki svindli, græðgi og sjálfshyggju. Efla þarf brunavarnir efnahagslífsins með nýjum siðum, gagnsæi og þeir verði látnir taka pokann sinn sem brugðust ábyrgð en koma í fjölmiðla eins og álfar út úr hól. Þeir sem ekki standa sig til sjós eru sendir í land. Gleðilegt nýtt ár og þakkir fyrir samfylgdina á því liðna. Megi Vestfirðingar og Íslendingar allir ná vopnum sínum og heiðri. vatni í gámum hæfist innan 6-8 mánaða. Halldór segir fyrst og fremst unnið að því af banda- rískum aðilum sem eru einnig eigendur að fyrirtækinu. „Von- andi tekst þetta en við viljum ekki byrja fyrr en við erum búnir að tryggja okkur örugga kaup- endur,“ segir Halldór. Hann segir fyrirtækið hafa tekið á leigu húsnæði að Sindragötu 12 á Ísafirði sem Míla var áður staðsett. „Við reynum bara að gera þetta eins ódýrt og hægt er. Við tökum vatnið úr göngunum. Við ætlum að nýta það vel og ætlum síðar að virkja vatnið úr göngun- um. Sennilega er hægt að tvö- falda vatnsstreymið sem þar er. Það eru 300 sekúndulítrum dælt í bæinn en við ætlum að auka það upp í 600 lítra,“ segir Hall- dór. Aðspurður hvort vatnið frá Brúarfossi sé komið langt í vöruþróun segir hann svo ekki vera því þeir ætli fyrst að reyna á að flytja vatn út í belgjum og síðan verði skoðað hvað hægt sé að gera í vatnsflöskubrans- anum. „Að fara inn á þennan flöskumarkað, eins og Jón Ól- afsson er að gera, er mjög erfitt og mjög dýrt. Við höfum því ekkert hugsað um þann markað að sinni,“ segir Halldór. Að- spurður hvort að það hafi verið óhófleg bjartsýni að gefa út að þeir ætluðu að hefja útflutning á vatni inna 6-8 mánaða svarar Halldór því játandi. „Það má vel vera. Svona markaðsmál eru erfið, tímafrek og kosta mikla pen- inga. Vonandi tekst þetta fyrir rest,“ segir Halldór. Hann segir fyrirtækið ekki hafa ótakmarkaða peninga til að setja í markaðsmálin og ef þau krefjast meira fjármagns en þeir ráða við verður fyrirtækið að leita til fleiri hlutafjáreigenda sem hafa trú á verkefninu. „En svona er staðan í dag. Við erum búnir að undirbúa verkefnið þannig á Ísafirði að ef við fáum trausta kaupendur, getum við hafist handa með litlum fyrir- vara,“ segir Halldór. Halldór Halldórsson, bæjar- stjóri Ísafjarðarbæjar, segir Brú- arfoss hafa frest til 15. septem- ber 2010 til að nýta lóð til bygg- ingarframkvæmda. „Hafi kaup- andi ekki tengt vatnslagnir og hafið fyrirhugaða starfsemi fyrir 30. apríl 2010 fellur samning- urinn í heild sinni úr gildi án sérstakrar uppsagnar,“ segir Halldór. Hann segir að samn- ingurinn miði að því að útflutn- ingur vatns hefjist eigi síðar en 30. apríl 2010. „Á Hornafirði hefur vatnsverksmiðja fimm ár til þess að koma sér af stað,“ segir Halldór Halldórsson, bæj- arstjóri Ísafjarðarbæjar. – birgir@bb.is „Við erum að vinna að mark- aðsmálum þessa stundina en þau taka langan tíma. Við erum búin að vinna að þessu máli mánuð- um saman og erum að leita að traustum kaupendum,“ segir Halldór Guðbjarnason, einn af eigendum Brúarfoss ehf., en fyrirtækið undirritaði samning við Ísafjarðarbæ í mars s.l. þar sem sagt var að útflutningur á Útflutningur á vatni ekki hafinn Halldór Halldórsson og Halldór Guðbjarnason við undirritun samningsins.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.