Bæjarins besta - 08.01.2009, Síða 23
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 23
Humar til hátíðabrigða
Sælkerinn
Sælkeri vikunnar býður upp
á tvær uppskriftir sem eru í
uppáhaldi hjá henni þegar hún
vill gera eitthvað reglulega gott.
Fyrst er það humar til hátíða-
brigða og síðan fiskfars bakstur
með rækjusósu.
Humar til hátíðabrigða
20 humarhalar eða 400 g
hraðfrystur humar
3-4 msk matarolía
Salt
Salt og svartur pipar (úr
kvörn)
6 sl koníak
2 tsk karrý
1 tsk hvítlauksduft (ferskur
er betri)
2 dl rjómi
6-8 sérrý tómatar (skornir í
báta)
1 lítil dós pimiento eða
paprika (niðurskorin)
Nokkrir dropar tabasco
1 salathöfuð
Dragið humarinn úr skelinni.
Því næst snöggbrúnið hann í
heitri olíu og kryddið með salti
og pipar. Hellið koníakinu yfir
og kveikið í. Látið brenna út.
Setjið hvítlaukinn og karrýið út
í og látið krauma um stund.
Þynnið því næst út með rjóm-
anum. Bætið tómötum og papr-
iku í. Hitið að suðu. Slökkvið
undir og látið jafnast á hellunni
í 2-3 mín. Bragðbætið með
kryddi og tabasco. Bætið að lok-
um salati út í. Gott með laus-
soðnum hrísgrjónum og góðu
brauði.
Fiskfars bakstur
með rækjusósu
300 g beinlaus fiskur (hakk
aður 2-3 sinnum)
4 stk egg (aðskilið hvítur og
rauður og þeytið hvíturnar)
200 g smjör (brætt)
3 dl rjómi (þeyttur)
2 tsk salt
½ tsk hvítur pipar
Rauður pipar á hnífsoddi
Látið hakkaðan fiskinn bíða
á köldum stað um stund. Hrærið
eggjarauðurnar út í eina og eina
í einu. (Hrærið vel.) Hrærið
brætt smjörið vel saman við.
Bætið þeytta rjómanum og
þeyttu eggjahvítunum varlega
saman við. Hellið farsinu í smurt
form sem þarf að vera svo stórt
að það fyllist aðeisn að ¾. Setjið
álpappír yfir formið og sjóðið í
vatnsbaði í ofni við 200°C í 50
mín.
Rækjusósa
1 ½ msk smjör
1 ½ msk hveiti
3 dl fisksoð
1 dl rjómi
Salt og pipar
Nokkrir dropar af sítrónusafa
300 g rækjur
Hrærið saman smjör og hveiti.
Bakið upp með soði og rjóma
þar til sósan er jöfn. Bragðbætið
og látið rækjurnar út í. Gott með
laussoðnum kryddhrísgrjónum.
Ég skora á Ingibjörgu Ólafs-
dóttur og Rúnar Brynjólfsson á
Ísafirði að koma með uppskrift
í næsta blaði.
Sælkeri vikunnar er Sigríður Ólafsdóttir á Ísafirði.
„Myndin er tekin sum-
arið ’69 þegar ég var 3ja
ára. Foreldrar mínir voru
báðir í vinnu hjá Vegagerð
ríkisins, pabbi á jarðýtu
við vegavinnu á Botnsheiði
og mamma sem aðstoðar-
ráðskona. Pabbi er þarna
í matartíma og hann las
oft fyrir mig í honum, sýn-
ist ég sjá Andrésblað hjá
okkur. Það var ekki mikið
um að vera fyrir krakka,
ein róla en samt gátu þær
ráðskonurnar gert öll sín
störf en við frænkurnar, Guð-
rún Kristín Sveinbjörns-
dóttir sem þá var tveggja
ára og ég, höfðum alltaf
nóg fyrir stafni. Þetta var
víst mikið rigningarsum-
ar, allavega á Botnsheið-
inni og vorum við í polla-
göllum úti að leika næstum
alla daga.“
Sveinfríður Olga Vetur-
liðadóttir, skólastjóri
Grunnskólans á Ísafirði.
Æsku myndin
Úlfar Öndunarson á Flateyri á sér skemmtilegt áhugamál en
það er að smíða eftirmyndir skipa. Afraksturinn má sjá á tjörninni
á Flateyri á sumrin.
„Gamla björgunarskipið María Júlía er loksins fullgert, en það
hefur tekið langan tíma. Skipið var rúmt ár í smíðum. Skipin hafa
verið á floti á tjörninni á Flateyri, fyrir neðan Sólbakka á sumrin
og vakið mikla athygli. Þar hefur verið gamli Ægir, nýi Týr og
einn skuttogari sem líkist svolítið gamla Gylli. Svo verður María
Júlía sett á flot í sumar. Það má því segja að skipafloti Flateyringa
hafi stækkað allverulega“, segir Úlfar og hlær.
– Úlfar er strax byrjaður á næsta verki.
„Nú er ég að smíða fraktara, nánast út í loftið. Hugmyndin að
þessu er mjög gömul og komin frá Birni Inga Bjarnasyni formanni
Önfirðingafélagsins. Ég ætlaði að vera búinn að smíða miklu
fleiri skip en ég byrjaði ekki fyrr en fyrir tveimur árum. Síðan
hefur maður gefið sér smá tíma í þetta. En þetta er bara til gamans
gert.“
– Úlfar hefur haft áhuga á bátasmíð frá barnsaldri.
„Já alveg síðan í barnaskóla. Ég held að allir sem voru í handa-
vinnu hjá Eysteini Gíslasyni hafi smíðað bát og ætli hugmyndin
sé ekki bara komin þaðan. Það leynast víða bátar sem gerðir voru
í handavinnutíma hjá Eysteini. Og það eru virkilega flottir bátar
en þeir voru smíðaðir til að vera inni og þyldu því ekki að vera úti.
Bátarnir sem ég hef smíðað eru gerðir til að þola útivinnu og þó er
ótrúlegt hvað sér á þeim þegar maður tekur þá upp á haustin. Það
þarf mikið viðhald.“
– „Smábáta“floti Flateyrar mun halda áfram að stækka þó það
muni gerast smám saman.
„Ég á eftir að mála Maríu Júlíu en hún verður sett á flot í vor.
Fraktarinn kemst kannski á flot á næsta ári. Við sjáum til hvað
gerist.“
Áhuga málið
María Júlía er fullgerð fyrir utan að eftir er að mála hana.