Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.2009, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 22.01.2009, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 Fjórir nýir lögreglumenn til Ísafjarar. „Forkastanleg framkoma.“ Haukur í horni: Ætli þeir setji ljósin á í hraðflutningum? Vitar varðveittir Í aðalskipulagi Ísafjarðar- bæjar fyrir árin 2008-2020 er gert ráð fyrir að vitar sveit- arfélagsins verði varðveittir sem menningarminjar auk hlutverks þeirra sem örygg- istæki. Aðalskipulagið gerir ráð fyrir að útliti og ásýnd vitanna ásamt nánasta um- hverfi þeirra verði verndað. Hins vegar er gert ráð fyrir svigrúmi fyrir breyttri notk- un, svo sem íbúðum eða ferðaþjónustu ef fyrri not leggjast af. „Vitar eru sam- ofnir sögu og menningu íslensku þjóðarinnar. Þeir gegna enn í dag öryggishlut- verki en einnig eru þeir að- dráttarafl ferðamanna enda sérstæð mannvirki á mynd- rænum stöðum“, segir í drög- um að aðalskipulaginu. Alls eru átta vitar í sveitar- félaginu, reknir af Siglinga- stofnun Íslands. Vitarnir eru byggðir á árunum 1919- 1964. Þeir eru: Arnarnesviti frá árinu 1921, Svalvogaviti (1920), Galtarviti en bygg- ingarár hans voru 1920/1959. Æðeyjarviti (1944). Sléttu- eyrarviti (1945). Straumnes- viti frá 1919. Hornbjargsviti frá 1930 og Sauðnesviti við Súgandafjörð (1964). Biðlisti eftir leikskólaplássi í Ísafjarðarbæ er orðinn með leng- ra móti en vonast er til að öll 18 mánaða börn og eldri komist inn á leikskóla í vor. Samkvæmt upp- lýsingum frá Skóla- og fjöl- skylduskrifstofu er 21 barn á bið- lista sem er orðið eins árs auk þess sem um 15 börn verða eins árs á fyrri hluta þessa árs. „Við miðum við að öll 18 mánaða börn og eldri komist inn á vorin, og ætti það að ganga upp í vor, þegar við förum að taka ný börn inn. Þó er árgangurinn sem er að ljúka leikskólagöngu sinni mjög fámennur, en ég á samt ekki von á öðru en að það takist“, segir Sigurlína Jónasdóttir, leikskóla- fulltrúi Ísafjarðarbæjar. Allir leikskólar sveitarfélags- ins eru fullmannaðir. „Við höfum í gegnum tíðina haft mjög stöð- ugan og góðan starfsmannahóp í leikskólum Ísafjarðarbæjar“, segir Sigurlína. Undanfarin ár hefur verið mikil þörf fyrir dag- foreldra en lengi vel var aðeins ein dagmamma var starfandi í sveitarfélaginu en nú er öldin önnur. „Við erum við með tvær dagmömmur og sú þriðja er að bætast í hópinn, sem er mjög gott, þar sem að mikil þörf er núna fyrir dagmæður“, segir Sigurlína. Í Ísafjarðarbæ eru sex leikskól- ar, Sólborg og Eyrarskjól á Ísa- firði, Bakkaskjól í Hnífsdal, Tjarn- arbær á Suðureyri, Laufás á Þing- eyri og Grænigarður á Flateyri. Biðlisti eftir leikskólaplássi með lengra móti í Ísafjarðarbæ Sólborg, stærsti leikskóli Ísafjarðarbæjar.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.