Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.2009, Side 6

Bæjarins besta - 22.01.2009, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 Ritstjórnargrein Ábyrgðin er okkar allra Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is Birgir Olgeirsson, símar 456 4560 og 867 7802, birgir@bb.is Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorku- lífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X Helgarveðrið Horfur á föstudag: Ákveðin norðaustanátt, 10-15 m/s og éljagangur eða slydda. Hiti nálægt frostmarki. Horfur á laugardag: Ákveðin norðaustanátt, 10-15 m/s og éljagangur eða slydda. Hiti nálægt frostmarki Horfur á sunnudag: Útlit fyrir norðaustanátt með éljum og vægu frosti. Spurningin Er í lagi að fyrirtæki misnoti atvinnuleysisbætur? Alls svöruðu 671. Já sögðu 28 eða 4% Nei sögðu 643 eða 96% Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Fréttablaðið 21. desember 2004 Hetjur sem hætta lífi sínu (Blair lýsti því yfir að þeir íröksku embættismenn sem ynnu að undirbúningi kosn- inganna þann 30. janúar 2005 væru hetjur sem stofnuðu lífi sínu í hættu á hverjum degi í þágu lýðræðis) Gömlu sannindin að styrkleiki keðjunnar er aldrei meiri en veikasti hlekkurinn, minna daglega á sig, þótt okkur hætti til að loka augun- um fyrir þeim sakir anna í leit að markmiðum, sem gleymst hefur að skilgreina þörfina fyrir. Jón Páll Hreinsson, formaður Héraðssambands Vestfirðinga og Tónlistarfélags Ísafjarðar, reit fyrir skömmu grein á bb.is. sem hann kallaði Dæmisögu úr miðbæ Ísafjarðar; grein sem rétt er að hvetja til lesturs á en þó umfram allt, þá er það gera, að tileinka sér boðskapinn. Í upphafi greinarinnar segir Jón Páll: ,,Miðbærinn á Ísafirði er flottur og einna stoltastur er ég þegar erlendir gestir segja mér frá upplifun sinni af Ísafirði. Þeir segja að það komi þeim á óvart hversu mikill heimsborgarblær er á þessu litla þorpi. ,,Surprisingly cosmo- politan“ segja sumir.“ Þótt í því kunni að leynast sjálfsánægja skal hiklaust sagt að þetta mat útlendra kemur ekki á óvart. Í ljósi þessara jákvæðu ummæla verður enn grátlegra að lesa miðkafla greinar Jóns Páls þar sem hann fjallar um umgengi okkar sjálfra í miðbænum; nokkuð sem ekki verður ráðin bót á nema við lítum öll í eigin barm; nokkuð sem verður að uppræta. Greinarhöfundur spyr hvað læra megi af sögunni sem hann segir um ástandið í miðbænum. ,,Fyrir utan það að góðverk borga sig,“ segir hann, ,,þá fékk þetta mig til að hugsa um mína eigin ábyrgð í samfélaginu. Nú eru erfiðir tímar eins og allir þekkja og óvissa um framtíðina. Óvissan getur dregið úr okkur kraft. Við þurfum að halda í kraftinn sem í okkur býr og nú sem aldrei fyrr þurfum við að virka saman sem samfélag. Í því felast litlir hlutir eins og að henda ekki rusli á götuna og líka tína það upp fyrir þá sem gleyma sér. Taka til í garðinum og fyrir framan húsið. Hann felst líka í að mæta á menningarviðburði, taka þátt í íþróttaviðburðum með börnunum okkar og hvetja þau til dáða. Umfram allt, þarf hver og einn að líta í eigin barm og hugsa með sér ,,hvað hef ég fram að færa?“ Því það er einu sinni þannig að allir hafa eitthvað fram að færa til samfélagsins, hversu lítið það kann að vera.“ Og Jón Páll lýkur grein sinni með eft- irfarandi orðum: ,,Krafturinn sem býr í samfélaginu og fær erlenda gesti til að upplifa Ísafjörð sem ,,surprisingly cosmopolitan“ og heimamenn til að vilja mest af öllu halda áfram að búa á þessu harð- býla skeri má ekki þverra. Það er á ábyrgð hvers og eins að halda í hann.“ Sagan um föðurinn sem með einföldum hætti sýndi sonum sínum fram á að spýtnaknippið gætu þeir ekki brotið, þótt hver og ein stök grein þess mætti sín lítils, er þörf upprifjun á þeim tímum sem nú fara í hönd. Kraftinn sem felst í samheldninni verður að virkja. Að það takist er á ábyrgð hvers og eins okkar. Að það takist er okkar helsta von. s.h. Í drögum að nýju aðalskipulagi í Ísafjarðarbæ er lögð áhersla á að uppbyggingu hjúkrunarheim- ilis á Ísafirði verði hraðað eins og kostur er og úrræði á Þingeyri og Flateyri verði í samræmi við þarfir eldri borgara. Gert er ráð fyrir að nýtt hjúkrunarheimili rísi í nálægð við Fjórðungssjúkra- húsið. Þar er nægt rými og mögu- leikar fyrir frekari stækkanir stofnana sem og útivistarsvæða í tengslum við þær. „Mikilvægt er að eldri borgarar í sveitarfélaginu geti valið dvalarúrræði í sam- ræmi við þarfir og þeir hafi per- sónulegt svigrúm og einkalíf æv- ina á enda. Heimaþjónusta er mikilvægur þáttur í úrræðum eldri borgara en þar skipta örugg- ar samgöngur verulegu máli. Lögð er áhersla á að húsnæði heilsugæslu og sjúkrahúss verði ávallt í samræmi við þarfir starf- seminnar, einstaklinga og starfs- manna“, segir í greinargerð með aðalskipulagsdrögunum. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða rekur á Ísafirði fjórðungssjúkra- hús sem veitir almenna bráða- og sjúkraþjónustu og heilsu- gæslustöðina sem veitir almenna heilsugæsluþjónustu. Auk þess er heilsugæsla á Flateyri, Þing- eyri og Suðureyri. Heilsugæsl- urnar á Þingeyri og Suðureyri eru í hentugu húsnæði en hún er í eldra húsnæði á Flateyri. Hlíf I og II á Ísafirði er þjón- ustustofnun fyrir aldraða. Þar eru 72 leigu- og eignaríbúðir, auk ýmiskonar þjónustu fyrir aldraða. Dvalar- og hjúkrunarheimili Tjörn er starfrækt á Þingeyri er með rými fyrir 12 íbúa í herbergj- um og íbúðum. Hjúkrunarheim- ilið Sólborg er starfrækt á Flateyri með rými fyrir átta íbúa. Aldraðir sem þurfa mikla aðhlynningu er dvelja á öldrunardeild Fjórðungs- sjúkrahússins en skortur er á rýmum á hjúkrunarheimilum. Samkvæmt umsögn þjónustu- hóps aldraðra sem starfar á vegum bæjarstjórnar eru 37 ein- staklingar í brýnni þörf fyrir að dvelja á hjúkrunarheimili. Í sveitarfélaginu eru 450 manns yfir 67 ára aldri eða 11,3% af heildarmannfjölda. Hlutfall eldri borgara hefur farið hækkandi og er líklegt að svo verði áfram að því er fram kemur í greinargerð- inni. – thelma@bb.is Uppbyggingu hjúkrunarheim- ilis á Ísafirði verði hraðað Á Hlíf á Ísafirði eru 72 íbúðir ætlaðar öldruðum.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.