Bæjarins besta - 22.01.2009, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 7
Þrír nýútskrifaðir lögreglu-
menn hafa nú hafið störf hjá lög-
reglunni á Ísafirði og hafði einn
til viðbótar bæst í hópinn í nóv-
ember. Allar stöður lögreglu-
manna á Vestfjörðum eru því
mannaðar menntuðum lögreglu-
mönnum. Einn þessara nýju
svartstakka er Kolbrún Björg
Jónsdóttir sem hafði aldrei áður
komið Ísafjarðar. Eins og alþjóð
veit er starfið krefjandi en á lög-
regluvefnum segir að lögreglu-
menn gegni störfum sínum með
það að leiðarljósi að þjóna sam-
félaginu af heiðarleika, hlut-
lægni, réttsýni, nærgætni, trú-
mennsku, þagmælsku og þekk-
ingu. Eins og gefur að skilja er
það vandasamt verk og eins og
Kolbrún orðar það sjálf getur allt
gert í þessu starfi. Bæjarins besta
kíkti á Kolbrúnu á fyrstu vaktinni
hennar á Ísafirði.
– Hvaðan ertu og hvað kom til
að þú gekkst í lið lögreglunnar á
Ísafirði?
„Ég er frá Akureyri og hef
aldrei áður komið til Vestfjarða.
Ég var að bíða eftir vinnu í Reyk-
javík og það var hvergi vinnu að
hafa svo ég ákvað að slá til, koma
til Ísafjarðar og prófa eitthvað
nýtt. Hér er ég reyndar í tíma-
bundinni vinnu og veit ekki
hversu lengi ég fæ vinnu.“
– Hvað er það við lögreglu-
starfið sem heillaði þig?
„Ég hef ætlað að verða lögga
frá því að ég var pínulítil, það
hefur alltaf verið draumastarfið.
Ætli það sé ekki spennan sem
heillar en maður veit aldrei hvert
næsta verkefni er. Maður kynnist
mörgu, bæði slæmu og góðu, og
það er mjög gefandi að láta gott
af sér leiða og geta hjálpað fólki
sem á í vandræðum.“
– Kolbrún útskrifaðist úr Lög-
regluskólanum 12. desember en
það þarf að fylgja stífu pró-
grammi til þess að útskrifast sem
lögreglumaður.
„Það eru mjög stífar æfingar
og við látin læra mjög mikið.
Námið skiptist í bóklegt, verk-
legt, og síðan er mikil líkams-
þjálfun. Þetta reynir mjög mikið
á mann líkamlega en við þurfum
að standast hlaupapróf, ýmis
þrekpróf og alls kyns önnur bók-
leg próf á fyrri önninni. Síðan
tekur verið verknám í áttu mán-
uði og svo tekur seinni önnin
við. Á henni er bóklegt nám,
mikil líkamsþjálfun og mikið af
verklegum æfingum. Það eru sett
upp margs konar verkefni fyrir
okkur sem við þurfum síðan að
leysa, einsömul eða fleiri saman.
Námið sem tekur allt tæplega 1
½ ár miðar allt að því að undirbúa
okkur sem best fyrri þau verkefni
sem við síðan þurfum að leysa
þegar í raunveruleikann er kom-
ið.“
– Kolbrún var nú ekki ókunnug
lögreglustarfinu áður en hún fór
í skólann.
„Ég byrjaði í löggunni á Ak-
ureyri í júní 2007 og fór svo um
haustið í Lögregluskólann. Í jan-
úar 2008 fór ég í starfsnám og
var fjóra mánuði í Reykjavík og
aðra fjóra á Akureyri. Að því
loknu var svo fjögurra mánaða
keyrsla aftur í skólanum. Skól-
anum lauk 12. desember og síðan
þá hef ég verið að leita mér að
vinnu.“
– Hvernig leggst það í þig að
vera komin til Ísafjarðar?
„Mér líst mjög vel á þennan
bæ og vinnufélagarnir eru alveg
frábærir. Við erum þrjú að byrja
núna, ég og tveir aðrir strákar
sem útskrifuðust með mér úr
Lögregluskólanum. Fólkið í
bænum er mjög vingjarnlegt og
hér er mjög fallegt. Mér var strax
boðið að koma á æfingar með
blakliðinu, Skellur, en ég spila
með Þrótti í fyrstu deildinni í
Reykjavík.“
– Eru ísfirsku blakararnir ekki
ánægðir með að fá svona reynda
manneskju í liðið?
„Það á eftir að koma í ljós en
ég verð að reyna að standa mig.
Fyrsta æfingin er á eftir“, segir
Kolbrún og hlær. Blaðamaður
kveður þennan glaðlega og vin-
gjarnlega lögreglumann og leyfir
honum að halda áfram með störf
sín.
Á fyrstu vaktinni í nýju starfi