Bæjarins besta - 22.01.2009, Side 11
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 11
„Tófan er að útrýma öllu hér. Það sést enginn fugl lengur. Það er eins og maður sé í dauðum
dal. Það er hvorki lóa, þröstur og ekki rjúpa,“ segir Ragna Aðalsteinsdóttir, bóndi á Laugabóli
í Ísafjarðardjúpi en hún segir það afar slæmt að ekki sé gert neitt til að halda tófunni í
skefjum. Hún segist hafa reynt að tala við yfirvöld en ekkert hafi verið gert. Aðspurð
hvernig búskapur á Laugabóli hefur gengið í vetur segir Ragna hann ekki hafa geng-
ið nokkurn skapaðan hlut.
„Ég mjaðmabrotnaði fyrr í vetur og fór suður á Borgarholtsspítala og er nýkomin
heim. Þetta tekur langan tíma að jafna sig,“ segir Ragna. Hún segist aðspurð lítast
skelfilega á búskap í djúpinu næstu árin. „Þetta er allt að verða gamalt fólk og er ein og tvær
manneskjur á hverjum bæ. Það er ekkert á að lítast, þetta er hörmung. Þetta er allt að fara
í eyði,“ segir Ragna.
Hún segist ekki vita hvort hún haldi áfram búskap á Lauga-
bóli á næstu árin en henni þætti ekki ljúft að fara frá bænum. „En
það kemur nú að því hjá mér eins og hjá öðrum,“ segir Ragna.
Hún er með rúmlega 140 kindur. „Og ekkert annað dýr nema
hundinn og köttinn. Svo er maður hjá mér til að hjálpa mér að
hugsa um féð,“ segir Ragna. Það er annars mjög gott veður og
lítill snjór á Laugabóli og er ekkert annað að gera en að bíða eftir
vorinu að sögn Rögnu.
– birgir@bb.is
„Tófan veldur miklum skaða“
„Tófan er að útrýma öllu hér. Það sést eng-
inn fugl lengur. Það er eins og maður sé í
dauðum dal. Það er hvorki lóa, þröstur
og ekki rjúpa,“ segir Ragna Aðalsteins-
dóttir, bóndi á Laugabóli í
Ísafjarðardjúpi.
Finnbogi Sveinbjörnsson, for-
maður Verkalýðsfélags Vestfirð-
inga, hefur miklar áhyggjur af
auknu atvinnuleysi í fjórðungn-
um. „Þó talað sé um að atvinnu-
leysi sé lægst á Vestfjörðum mið-
að við annars á landinu verða
menn að athuga að hér hefur at-
vinnuleysi fimmfaldast frá því á
sama tíma í fyrra. Við erum að
sjá töluna 82 á atvinnuleysisskrá
sem var 16.-17. í janúar í fyrra.
Það er því gríðarleg fjölgun og 3-
4 einstaklingar sem bætast við
vikulega.“
Finnbogi þakkar þó fyrir að
ekki hefur þurft að grípa til fjölda-
uppsagna vegna efnahagskrís-
unnar. „Við höfum verið það lán-
söm á Vestfjörðum að ekki hafi
komið til stóruppsagna í fjórð-
ungnum. Ein hópuppsögn hefur
verið vegna bankakrísunnar og
því munu um 12 einstaklingar úr
því fyrirtæki bætast við tölu at-
vinnulausra um næstu mánaða-
mót, þannig að við Vestfirðingar
sjáum brátt þriggja stafa tölu á
atvinnuleysisskránni sem hefur
ekki sést hér mjög lengi. Við
höfum staðið frammi fyrir því
að atvinnuleysið hefur flutt úr
fjórðungnum þangað sem þensl-
an hefur verið. Nú er fólk frekar
að flytja heim aftur en því miður
getum við ekki boðið þeim þau
störf sem við gjarnan hefðum
viljað.“
Finnbogi segir að Vestfirðing-
ar væru ef til vill að horfa á
annað landslag ef tillögur Vest-
fjarðaskýrslunnar hefðu gengið
betur eftir. „Unnið var mjög gott
starf við Vestfjarðaskýrsluna en
því miður hafa þeir sem áttu að
efna loforðin sem þar voru gefin
ekki staðið við sitt. Þar af leiðandi
höfum við ekki séð nema brot af
þeim 85 störfum sem lofað var
þrátt fyrir að komið sé vel á annað
ár síðan skýrslan var kynnt fyrir
Vestfirðingum.“
Þá vill Finnbogi benda fólki á
að kynna sér rétt sinn hjá stéttar-
félögum enda hafi sjaldan, eða
jafnvel aldrei, verið eins mikil
þörf á því að þekkja réttindi sín.
„Mikið magn af upplýsingum er
á vef stéttarfélaga“, bendir Finn-
bogi á. – thelma@bb.is
Atvinnuleysið á Vestfjörðum
hefur fimmfaldast á einu ári
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga.