Bæjarins besta


Bæjarins besta - 22.01.2009, Page 15

Bæjarins besta - 22.01.2009, Page 15
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009 15 Hraunlögum hallar inn að gosbelti landsins eins og glöggt má sjá í fjallshlíðum á svæðinu segir í greinargerð með aðalskipulagsdrögum fyrir Ísafjarðarbæ. Ný dönsk tekur upp í Tanknum „Við ætlum að taka upp þar en upptökurnar eru part- ur af lengra ferli sem við erum að byrja á,“ segir Björn Jörundur Friðbjörnsson, söng- vari og bassaleikari í hljóm- sveitinni Ný dönsk, aðspurð- ur um orðróm þess efnis að hljómsveitin ætli að taka upp í Tanknum í Önundarfirði í vetur. „Það er ekki alveg rétt að hljómsveitin ætli að taka upp plötu heldur er um að ræða nokkur lög. Við ætlum að koma vestur og dvelja þar og halda tónleika. Hvenær það verður nákvæmlega kemur í ljós síðar og verður auglýst vel,“ segir Björn Jör- undur. Setja Íslands- met í jógaiðkun Laugardaginn 24. janúar nk. er stefnt á Íslandsmet í jógaiðkun á Ísafirði. Það er Martha Ernstdóttir, jóga- kennari á Ísafirði sem stend- ur að atlögunni að Íslands- metinu, í tilefni af alsherja jógaástundunardeginum í Bandaríkjunum, sem er sama dag. „Ég starfa við að kenna jóga á Ísafirði og datt í hug að hafa jógaástundunardag á Ísafirði, sama dag og í Banda- ríkjunum. Ég er búin að fá íþróttahúsið á Torfnesi og ég ætla að reyna að fá sem flesta til að mæta og stunda jóga og setja Íslandsmet í jóga- iðkun,“ segir Martha. Frítt er í íþróttahúsið fyrir þá sem vilja stunda jóga með Mörthu á jógadeginum og vonast hún til að sjá sem flesta. Erfitt að fresta fram- kvæmdum sem vernda líf Verið er að vinna í athuga- semdum sem bárust vegna umhverfismatsskýrslu vegna fyrirhugaðra snjóflóðavarna ofan Holtahverfis á Ísafirði og að því loknu verður hún lögð fram fyrir Skipulags- stofnun. Engin athugasemd barst frá íbúum í Holtahverfi og að sögn Jóhanns Birkis Helgasonar, bæjartækni- fræðings Ísafjarðarbæjar, bárust ekki margar athuga- semdir frá stofnunum. Óvíst er hvenær verkið verði boðið út en samkvæmt tillögu að framkvæmdinni er ráðgert að hefjast handa árið 2009. Aðspurður segist Jóhann Birkir sér ekki vera kunnugt um að því verði frestað vegna efnahagsástandsins en um er að ræða samstarfsverkefni milli Ísafjarðarbæjar og Ofanflóðasjóðs. „Það yrði frekar erfitt að fresta fram- kvæmdinni þar sem verið er að vernda líf“, bætir hann við. Heildarkostnaður við snjóflóðavarnirnar er áætl- aður 810 milljónir króna miðað við verðlag í febrúar 2008. Ráðgert er að fram- kvæmdirnar standi yfir í 3-4 ár. Jarðvinnu við þvergarð ætti þó að geta verið lokið á einu ári. Framkvæmdirnar munu ekki hafa áhrif á íbúa- fjölda Holtahverfis, verði hins vegar ekki af byggingu snjóflóðavarna og þess í stað farið í að kaupa upp hús á hættusvæðum, mun íbúum fækka að því er fram kemur í frummatsskýrslunni. Atvinna mun aukast tímabundið með- an á uppbyggingu varnanna stendur. Ísafjarðarbær hefur nú auglýst eftir athugasemd- um við væntanlegar fram- kvæmdir við snjóflóðavarnir ofan Holtahverfis á Ísafirði. „Rýmingar hafa ekki verið algengar í Holtahverfi og íbúar gert lítið úr snjóflóða- hættu. Hættan er engu að síður til staðar við vissar að- stæður, með þeirri óvissu og ótta sem því fylgir. Skoðanir manna hafa ávallt verið skiptar, þegar snjóflóðavarn- ir hafa verið í undirbúningi. Eftir að uppbyggingu þeirra er lokið og einkum eftir að á þær hefur reynt hefur viðhorf til þeirra verið já- kvæðara og íbúar talið sig búa við meira öryggi en áð- ur“, segir í skýrslunni. Helstu þættir framkvæmd- arinnar sem valda neikvæð- um umhverfisáhrifum eru sjónræns eðlis. Breytt ásýnd landslags og raskað land- svæði, sem þó hefur að hluta verið raskað áður. Til mót- vægis þessu verður umhverfi varnargarðs skipulagt sem útivistar og leiksvæði og grætt upp með gróðri og trjám. Jákvæðu þættirnir við framkvæmdina er að hætta af snjóflóðum verður innan ásættanlegra marka og mun því öryggistilfinning íbúa í Holtahverfi gagnvart snjó- flóðum aukast. Holtahverfi.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.