Bæjarins besta - 22.01.2009, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2009
Einar Hreinsson, starfsmaður Hafrannsóknastofnunar á Ísafirði, byggir bát í
hjáverkum í bílskúrnum heima hjá sér á Ísafirði. Báturinn er tæpir sex metrar
á lengdina og faðmur á breiddina. Er báturinn aðallega byggður utan um
tæplega hundrað ára gamla Wachman-vél sem afi hans átti. Hann
notar vatnsheldan krossvið í bátinn og segir
hönnun bátsins vera hugarburð sinn. Hann
sveigir viðinn með þvingum og segir ekkert
mál að sveigja þær og taki ekki of
langan tíma. Hann segist hafa
lesið bréf frá norskum skip-
stjórum sem keyptu Wach-
man vélar á sínum
tíma og þá hafa
þær náð sex
til sjö
mílum.
Hann er annars ekki viss hvað hversu hratt báturinn á eftir
að ganga en var sagt að vélin kæmist á sama hraða og
þegar fjórir menn róa. Hann á eftir að byggja
vélarhús utan um vélina og sæti fyrir
fólkið. Aðspurður hvort það verði
góð aðstaða fyrir dömur í
bátnum segir hann þær
fara líklegast ekki með
í honum. Hann segist
gera ráð fyrir að
hægt verði að
róa bátnum
og hann ætl-
ar líka að
hafa segl á
honum til
öryggis. Vél-
in er töluvert
lengi í gang að
sögn Einars og
þarf að hita hana í
klukkutíma með gas-
lampa áður en hún er
keyrð. Hann segist vonast
til að sjósetja bátinn að vori
en það hafi verið takmark hjá
honum síðustu vor en hafi ekki
gengið eftir en hann hóf smíði bátsins
milli jóla og nýárs 2005. Hann ætlar sér
að sigla á bátnum til Aðalvíkur og verður sú
ferð hálfgerð pílagrímsför.
– birgir@bb.is
Ætlar í pílagrímsferð til Aðalvíkur
Einar Þarf að hita vélina með gaslampa
í klukkutíma áður en hún er keyrð.
Einar Hreinsson og báturinn. Wachman-vélin.