Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.01.2012, Side 2

Bæjarins besta - 26.01.2012, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012 Ekki sátt við vinnu- brögð Ísafjarðarbæjar „Ísafjarðarbær er búinn að láta meta húsið og hefur þar með sett verðmiða á það,“ segir Ásthildur Cesil Þórðardóttir íbúi að Selja- landsvegi 100 á Ísafirði en bæjar- ráð Ísafjarðarbæjar ákvað í febr- úar á síðasta ári að hefja viðræður um uppkaup á fasteign hennar sem og fasteigninni að Selja- landsvegi 102, vegna fyrirhug- aðra varnargarða sem reisa á neð- an Gleiðarhjalla í Skutulsfirði. Ásthildur segist hvorki sátt við vinnubrögð Ísafjarðarbæjar né að þurfa að flytja. „Ég er engan veginn sátt við þetta og mun nota allt mitt til að berjast gegn þessu. Þeir ætla að henda mér og fjölskyldu minni út úr húsinu og láta mig hafa pening sem dugar rétt til að kaupa blokkaríbúð. Þetta er þó ekki spurning um hvað ég fæ fyrir húsið, heldur að ég vil fá að vera þarna áfram,“ segir Ásthildur. „Það á að fara með varnar- garðinn inn fyrir Engi og þar með eyðileggja þrjátíu ára starf í ræktun. Ég vil ekki láta umturna mínu lífi og rústa öllu því sem ég hef unnið að síðan 1986 sem og að ég standi á götunni með fjög- urra manna fjölskyldu,“ segir Ást- hildur sem spyr hvaða almanna- hagsmunir séu í húfi því engin íbúðarbyggð sé fyrir neðan hana og aðeins einn íbúi fyrir innan. Þá er Ásthildur ósátt við vinnu- brögð Ísafjarðarbæjar í málinu. Hún segir að litlar sem engar upplýsingar hafi borist frá bæjar- yfirvöldum þar til henni barst bréf um mat á húsinu. Ekki hafi enn verið haft samband við íbú- ana og að hún hafi fyrst lesið um að til stæði að fara í uppkaup á fasteign hennar í BB í febrúar á síðasta ári. – asta@bb.is Fasteign Ásthildar við Seljalandsveg 100. Eiríkur Finnur til Arctic Odda Eiríkur Finnur Greipsson hefur verið ráðinn fjármála- stjóri Arctic Odda ehf., á Flat- eyri, sem keypti eignir þrota- bús Eyrarodda ehf., á síðasta ári. Þá kemur Eiríkur Finnur einnig til með að starfa fyrir fiskeldisfyrirtækiðDýrfisk ehf., sem er að hluta í eigu Arctic Odda. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa í hyggju að efla fiskvinnslu á Flateyri og auka silungseldi í Dýrafirði innan tveggja ára. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur fjallað um breyttar regl- ur vegna úthlutunar byggða- kvóta fyrir yfirstandandi fisk- veiðiár, en ný viðmið við út- hlutun kvótans munu breyta mestu fyrir Flateyri, þar sem miða skal við landaðan afla síðustu þrjú fiskveiðiár. Ljóst er að báturinn Stjáni Ebbi ÍS, sem er í eigu Arctic Odda, mun hagnast hvað mest við breytingarnar. Eiríkur Finnur er jafnframt formaður bæjar- ráðs Ísafjarðarbæjar. „Ég sagði mig frá málinu á föstudag í síðustu viku þegar það var ljóst að ég myndi þiggja starfið hjá Arctic Odda. Ég sá strax að þetta mál myndi valda titringi, en það er auðvitað alveg ljóst að fjármálastjóri svona fyrirtækis hefur mikla hagsmuni af því að fyrirtækið fái mikinn byggðakvóta,“ segir Eiríkur Finnur. „Byggðakvótinn hefur það víðtæk áhrif að við sjálfstæð- ismenn áttum í vandræðum með að finna aðila á okkar 18 manna lista sem ekki hafði hagsmuni að gæta til að af- greiða málið,“ segir Eiríkur Finnur en það var Hlynur Kristjánsson sem tók sæti í bæjarstjórn fyrir hönd sjálf- stæðismanna við afgreiðslu málsins. – asta@bb.is Tölvuþjónustun Snerpa á Ísa- firði hefur gengið frá kaupum á hýsingarreksti fyrirtækisins Net- heima. Rekstur Netheima var endurskipulagður fyrir nokkru og hefur hýsingarþjónustan í milli- tíðinni verið í umsjón Særafs sem tók við flestum þeim verkefnum sem Netheimar sinntu áður. „Einn af þeim þáttum í rekstri Netheima, þ.e. hýsingarrekstur- inn, var ljóst að var til sölu við þessar breytingar og eftir nánari skoðun varð úr að Snerpa keypti þennan hluta rekstursins. Í því felst að Snerpa kaupir m.a. af Netheimum allan vélbúnað sem notaður var til þjónustunnar og munu viðskiptavinir Netheima að þessu leyti því framvegis verða í viðskiptum við Snerpu,“ segir á vef tölvuþjónustunnar. Salan á sér nokkurn aðdrag- anda og var viðskiptavinum kynnt væntanleg breyting á frumstigi samningaviðræðna og áhersla lögð á að rask af breytingunum yrði sem minnst. Ýmsir nýir möguleikar opnast þó við yfir- færslu þjónustunnar og verða þær betur kynnntar viðkomandi við- skiptavinum í framhaldinu. Snerpa kaupir hýsingarrekstur Netheima Ferðaþjónustufyrirtækið Bor- ea Adventures á Ísafirði hefur aflýst ferðum til Jan Mayen sem skipulagðar höfðu verið í sumar. Eyjan var gerð að friðlandi fyrir um einu og hálfu ár og þar með var umferð um eyjuna takmörk- uð. Ekki fæst lendingarleyfi á tveimur afmörkuðu svæðum og þá eru allar tjaldbúðir á stærstum hluta eyjunnar bannaðar. Að sögn Sigurðar Jónsonar, annars eig- enda Borea Adventures, var fyrir- tækið á hálfgerðri undanþágu frá þessum reglum en sú undanþága fæst ekki framlengd. „Okkur er ekki beinlínis bannað að fara á eyjuna en þetta gerir okkur það erfitt fyrir að við verðum að hætta við,“ segir Sigurður. „Helsta ástæða þess að við höf- um farið til Jan Mayen eru ferðir á fjallið Beerenberg en miðað við núverandi reglur þá er nánast ómögulegt að komast að fjallinu. Við fáum t.d. ekki að fara í land nálægt því, heldur verðum að leggja að hinum megin á eyjunni. Við ákváðum af þeim sökum að aflýsa tveimur ferðum sem átti að fara í sumar,“ segir Sigurður, en áfram verður fylgst með þró- uninni og hvort að einhverjar breytingar verða á túlkun á regl- um Norðmanna um umgengni á eyjunni. „Þetta er auðvitað leiðinleg þróun og tekur svolitla sneið úr starfi okkar. Þetta var orðið að sérsviði hjá okkur þar sem við vorum eina fyrirtækið sem var með fastar ferðir til Jan Mayen. En það opnast einhver ný tæki- færi annars staðar. Við ætlum að leggja meiri áherslu á ferðirnar á Hornstrandir og Jökulfirði en bókanir eru fínar fyrir sumarið. Þá ætlum við að halda því opnu að fara í aðra ferðina til Jan May- en, ef fólk vill vera á eigin ábyrgð á eyjunni.“ – asta@bb.is Aflýsa Jan Mayen ferðum Sigurður Jónsson, annar eigandi Borea Adventures.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.