Bæjarins besta - 26.01.2012, Side 7
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012 7
22% fækkun á þrettán árum
Leikskólabörnum á Vestfjörð-
um fækkaði um 22% á árabilinu
frá 1998 til 2010 á meðan leik-
skólabörnum á höfuðborgar-
svæðinu, utan Reykjavíkur,
fjölgaði um 65%, að því er segir
í skólaskýrslu Sambands íslensk-
ra sveitarfélaga. Hlutfallslega
fækkaði leikskólabörnum mest
á Vestfjörðum á tímabilinu en
518 börn voru í leikskólum á Vest-
fjörðum árið 1998 samanborið
við 406 árið 2010. Leikskóla-
börnum fækkaði einnig á Norð-
urlandi vestra á framangreindu
tímabili eða um 10%. Annars
staðar á landinu fjölgaði leik-
skólabörnum en hlutfallslega
mesta fjölgunin var á höfuðborg-
arsvæðinu, að Reykjavík frátal-
inni, eða 13%.
Árið 2010 var lægst hlutfall
leikskólabarna miðað við íbúa-
fjölda á Vestfjörðum eða 5,5%.
Hæst var hlutfallið á höfuðborg-
arsvæðinu eða 6,6%. Nær 85%
barna á aldrinum eins til fimm
ára á Vestfjörðum voru skráð í
leikskóla árið 2010 sem er 8%
aukning frá árinu 1998 þegar þau
voru 76%. Um er að ræða svip-
aðan fjölda og annars staðar á
landinu.
Norðurland vestra og Austur-
land skera sig þó úr en þar eru
92% og 91% barna á aldrinum
eins til fimm ára með leikskóla-
pláss. Þau börn sem dvöldu að-
eins fjórar klukkustundir á leik-
skóla voru flest á Vestfjörðum
árið 2010 eða um 10%. Börn í
Reykjavík sem dveljast á leik-
skóla í fjóra tíma á dag voru svo
fá að þau ná ekki 1%. Barna-
hópurinn sem dvelur í 7–8 tíma á
dag var alls staðar hlutfallslega
stærsti hópurinn en um 55%
leikskólabarna á Vestfjörðum
dvelja 7-8 klukkustundir á leik-
skóla á dag. Þá dvöldu 19% leik-
skólabarna á Vestfjörðum 9
klukkustundir á dag í leikskóla.
Starfsfólki á leikskólum á
Vestfjörðum fjölgaði um átta á
tímabilinu 2006-2010. Um er að
ræða fjölda starfsfólks en ekki
stöðugildi. Ófaglærðu starfsfólki
fjölgaði um fjóra en svokölluðu
öðru uppeldismenntuðu starfs-
fólki fjölgaði um fimm. Þá fækk-
aði leikskólakennurum um einn
á tímabilinu, en árið 2010 var
hlutfall leikskólakennara lægst á
Vestfjörðum og í Reykjavík en
hæst á Norðurlandi.
Ekki er talið æskilegt að veita
fyrirtækjum leyfi fyrir fiskeldi í
Ísafjarðardjúpi til of langs tíma
meðan nýtingaráætlun sveitarfé-
laga eða ríkisins fyrir svæðið
liggur ekki fyrir, segir í umsögn
bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar til
Skipulagsstofnunar vegna fyrir-
hugaðs fiskeldis Hraðfrystihúss-
ins Gunnvarar hf., í Ísafjarðar-
djúpi. Bæjarstjórn telur einnig
mikilvægt að komið verði í veg
fyrir að hefðaréttur geti myndast
á fiskeldisleyfum. HG stefnir á
framleiðslu á 7000 tonnum af
eldisfiski í sjókvíum í Ísafjarðar-
djúpi en fyrirtækið hefur staðið
fyrir tilraunaeldi á þorski í Álfta-
firði og í Seyðisfirði og um nokk-
urra ára skeið.
HG hefur staðið fyrir rann-
sóknum á umhverfi eldisins og
umhverfisáhrifum. Þær rann-
sóknir benda til að ekki séu mikl-
ar líkur á að fyrirhugað eldi geti
valdið umtalsverðum eða óaftur-
kræfum umhverfisáhrifum í
Djúpinu. Það hefur verið skoðun
bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar að
sveitarstjórnir hafi ákvörðunar-
rétt í máli sem þessu en engin
lagaleg forsenda tryggir raun-
hæfa aðkomu sveitarstjórna.
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjartelur
sig ekki hafa forsendur til að
krefjast þess að fyrirhugað eldi
sæti mati á umhverfisáhrifum,
en í ljósi þess hve greiðlega hefur
gengið fyrir ýmis fyrirtæki að fá
leyfi fyrir sjókvíaeldi á Vestfjörð-
um undanfarin misseri gerir bæj-
arstjórn ekki ráð fyrir að farið
verði fram á umhverfismat vegna
núverandi fyrirætlana HG um
aukna framleiðslu á eldisfiski.
Bæjarstjórn telur þó mikilvægt
að gerð verði ítarleg grein fyrir
þeim áhrifum sem eldið kann að
hafa á hefðbundna nýtingu svæð-
isins s.s. fiskveiðar, rækjuveiðar
og ýmsa hlunnindanýtingu og að
haft verði samráð við nýtingar-
aðila um tilhögun eldisins. Bæj-
arstjórn vill tryggja að samráð
verði haft við sjómenn og útgerð-
armenn við Ísafjarðardjúp sem
hingað til hafa stundað þar fisk-
veiðar. „Ekki er sanngjarnt að
hefðbundnum fiskveiðum til nýt-
ingar svæðisins verði stuggað frá,
heldur verði að komast að sam-
komulagi strax um hvar eldískví-
ar verði staðsettar svo vonandi
allir geti vel við unað,“ segir í
umsögninni. Jafnframt telur bæj-
arstjórn nauðsynlegt að gerðar
verði viðbragðsáætlanir um við-
brögð við slysasleppingum lax-
fiska vegna laxveiðiánna við Ísa-
fjarðardjúp. – asta@bb.is
Vilja koma í veg fyrir hefðarrétt
Flestir fara um göngin á föstudögum
Umferð um Bolungarvíkur-
göng var nærri 3% meiri á síðasta
ári en umferð um Óshlíðina árið
áður. Umferð til og frá Bolungar-
vík jókst um 2,7% á síðasta ári
með tilkomu Bolungarvíkur-
ganga sem er vel umfram lands-
meðaltal hringvegarins. Um
göngin fóru að meðaltali 797 bíl-
ar á sólarhring en 776 bílar fóru
að meðaltali um Óshlíðina árið á
undan. Spá Vegagerðarinnar
hljóðaði upp á litlu fleiri bíla eða
810 bíla á sólarhring, en taka
verður með í reikninginn að um-
ferð um göngin eykst á meðan
hún dregst saman á landsvísu.
Umferðin á síðasta ári jafngildir
því að um 290 þúsund bílar hafi
ekið í gegnum göngin í báðar áttir.
Umferðin um Bolungarvíkur-
göng er jafnari yfir árið en t.d.
um Héðinsfjarðargöng. Í júlí fer
aðeins 13% umferðarinnar í
gegnum Bolungarvíkurgöng
samanborið við 17% í Héðins-
fjarðargöngum. Fyrsta og þriðja
ársfjórðung síðasta árs fór um
30% umferðarinnar fram og 40%
yfir sumarið, sem er mun jafnari
dreifing en um Héðinsfjarðar-
göng. Í samantekt Vegagerðar-
innar segir að erfitt sé að bera
tvö síðustu ár saman m.t.t. hvort
einhver breyting hafi orðið á ein-
kennum umferðar við göngin.
Umferð datt niður um Óshlíð
haustið 2010 í kjölfar opnun Bol-
ungarvíkurganga. Það virðist þó
hafa orðið hlutfallslega meiri
aukning í umferð virka daga sem
gefur tilefni til að álykta að at-
vinnutengd umferð hafi aukist
hlutfallslega meira en umferð
vegna einkaerinda.
Langmest umferð um göngin
mælist á föstudögum og minnst
á sunnudögum. Meðalumferð á
þriðjudögum er næst ársmeðal-
talinu. Sólarhringsumferð fyrir
innanbæjar umferð ber öll ein-
kenni sólarhrings dreifingar fyrir
innanbæjar umferð, séð t.d. mið-
að við höfuðborgarsvæðið.
Um helgar, er eins og vænta
mátti, meiri umferð á nóttunni
og hlutfallslega er meiri umferð
aðfaranótt laugardags en föstu-
dags.
– asta@bb.is
Frá Bolungarvíkurgöngum.