Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.01.2012, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 26.01.2012, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012 fjör. Það var líka mikið af krökk- um þarna á sumrin. Foreldrar mínir hættu svo að búa 1980 og þá var jörðin seld. Þau fluttu hing- að á Ísafjörð og við búum hér öll fjögur systkinin í dag,“ segir Arn- ar. „Ég álpaðist út á sjó 17 ára, í janúar 1968 á Guðbjörgina. Hún var á netum þessa vertíð og fór svo á síld um sumarið. Við fórum út um miðjan júní og komum ekki aftur til Íslands fyrr en um miðjan september. Vorum því í þrjá og hálfan mánuð á sjó og lönduðum í flutningaskip á Sval- barða. Ég veit ekki hvort menn létu bjóða sér svo langt úthald í dag,“ segir Arnar og brosir. „Ég var viðloðandi Gugguna í 14 ár, enda var best að vera þar. En ég hafði gengið í bændaskól- ann á Hólum og ætlaði mér aldrei að verða sjómaður. Ég átti alltaf Arnar Kristjánsson gekk í bænda- skólann á Hólum og ætlaði sér ekki að verða sjómaður þegar hann „álpaðist“ í túr með Gugg- unni í janúar 1968. Rúmum fjöru- tíu árum og þremur skipasköðum síðar er hann enn á sjó. Blaða- maður BB settist niður með hon- um og ræddi við hann um rækju- veiðar, kvótakerfið og útgerð á Vestfjörðum. Fjórtán ár á Guggunni „Ég er fæddur og uppalinn á bænum Ármúla við Kaldalón í Ísafjarðardjúpi. Það var tvíbýli á Ármúla og þar bjuggu pabbi minn og bróðir hans með bæði kýr og kindur. Við erum fjögur systkinin og á hinum bænum ól- ust líka upp fjögur börn. Það var náttúrlega alltaf mjög margt fólk á báðum bæjum og mikið líf og erfitt með að vera á sjó yfir sum- artímann, er sveitamaður í mér og vildi frekar vera úti í náttúr- unni. Ég vann því í vegagerð í fjögur sumur þegar verið var að opna Djúpið. Ég fór líka á önnur skip og svona prófaði hitt og þetta. En endaði alltaf aftur á Guðbjörginni.“ Rækjan í Djúpinu Arnar hóf eigin útgerð árið 1984. „Þá bauðst okkur Gísla bróður að kaupa bát. Ætli það hafi ekki verið þá sem ég ákvað að hætta að hugsa um eitthvað annað en sjómennskuna og ein- beita mér að henni. En ætlunin með því að kaupa bátinn og fara á rækju í Ísafjarðadjúpi var líka að geta verið meira heima, frekar en úti á sjó á togara. En ég hef nú sennilega sjaldan verið minna heima en fyrstu árin eftir að ég byrjaði í eigin útgerð. Þegar við keyptum bátinn og komumst inn í rækjuna í Ísafjarð- ardjúpi höfðu verið leyfð 3000 tonn á vertíðinni sem þá var að enda. Þegar við fórum á rækju um haustið voru bara leyfð 1000 tonn auk þess sem það var mikil fiskgengd í Djúpinu og því alltaf verið að fresta byrjuninni. Við gerðum þennan bát út í tvö ár en þá slitnaði upp úr samstarfinu við meðeiganda okkar að honum. Þá tókum við bræðurnir upp í hann annan minni bát og fórum á net suður í Breiðafjörð. Síðan tók við hitt og þetta hjá okkur til að halda okkur á floti.“ Sjóskaði á Breiðafirði „Einhverntíma vorum við beðnir að koma á skelveiðar á Breiðafirði og vorum þar í tvo vetur. En ég hef sennilega aldrei verið jafn nálægt því að fá maga- sár og þarna á Breiðafirðinum, hann er svo skerjóttur. Við vorum ekki með almennileg tæki og maður þekkti þetta ekki neitt. Það kom líka að því að ég strand- aði. Við vorum búnir að sigla þessa sömu leið í marga mánuði en hún var mjög skerjótt. Við vorum reyndar alltaf að reyna að finna betri leið en það gekk eitt- hvað illa og við þóttumst orðið þekkja þessa ágætlega. En síðan strandar báturinn bara allt í einu við Kirkjusker við Flatey. Við sigldum yfirleitt á 13-14 faðma dýpi en það voru grynningar útfrá þessu skeri. Þegar ég stranda bátnum stendur kjölbreiddin undan kjölnum en það er 14 faðma dýpi við hliðina á bátnum. Við lentum því uppi á skerinu og Ve standa

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.