Bæjarins besta - 26.01.2012, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012 15
Sælkeri vikunnar er Þorsteinn Másson á Ísafirði
Spænskur saltfiskréttur að hætti Steina
Sælkeri vikunnar býður upp
spænskan saltfiskrétt með
ljúffengri og bragðsterki sósu.
Spænskur saltfiskréttur
Fyrir 4
900 g af útvötnuðum, bein-
hreinsuðum saltfiski. (Má vera
ósaltur)
1 dós Taco sósa
1 laukur
10 ólífur
1msk capers
1 dl hveiti
Aromat
Salt
Sítrónusafi
Setjið hveitið í skál og kryddið
með aromati og salti. Setjið olíu
á pönnu og látið hitna vel. Veltið
fiskinum upp úr hveitinu og skell-
ið á pönnuna. Þegar fiskurinn er
orðin gullinbrúnn snúið þá við á
hina hliðina. Rétt áður en þið
takið hann af pönnuni hellið þá
smávegis af sítrónusafa (má vera
hvítvín) og leyfið honum að
malla í safanum í smá stund.
Sósa:
Saxið laukinn og setjið hann í
pott með smá olíu. Þegar laukur-
inn er orðin glær setjið þá ólífurn-
ar, tacosósuna og capersið út í og
leyfið að malla í 10 mín. Gott er
að setja smá safa af kapersinu út
í sósuna.
Berið fram með kartöflum og
fersku salati
Ég skora á Jóhann Sigurjóns-
son og Þorbjörgu Karlsdóttur
frá Ísafirði til að koma með
einhverja góða uppskrift í næsta
blaði.
„Alltaf skemmtileg-
asta blótið til þessa“
Ríflega 230 manns sóttu árlegt
þorrablót Bolvíkinga sem haldið
var í 67. sinn á laugardagskvöld.
„Þetta var gaman eins og alltaf.
Blótið er alltaf það skemmtileg-
asta til þessa þar sem enginn man
blótið frá því í fyrra,“ segir Hulda
M. Þorkelsdóttir sem sæti átti í
þorrablótsnefnd. Efnt er til blóts
í Bolungarvík á fyrsta laugardegi
í þorra ár hvert og bjóða þá bol-
vískar konur bónda sínum til
slíkrar skemmtunar. Þorrablótið
er ætlað hjónum, sambýlisfólki,
ekkjum og ekklum í Bolungar-
vík. Öllu var tjaldað til að gera
kvöldið sem veglegast og stigu
skemmtinefndarkonur á stokk í
hinum og þessum hlutverkum.
„Fluttur er bæjarbragur en við
semjum alltaf um ýmsar fréttir
úr bænum og er þá tekið svona
sitt lítið af hverju. Í þetta sinn komu
til dæmis álfarnir við sögu sem
leitað var sátta við í sumar og
svo ísbjörninn sem Reimar og
félagar rákust á,“ segir Hulda.
Blótsgestir mæta í sínu fínasta
pússi, konur í upphlut eða peysu-
fötum og karlmenn í hátíðarbún-
ingi eða dökkum jakkafötum
með hálstau, en líklegt er að
vandfundinn sé sá staður á Íslandi
þar sem er jafn hátt hlutfall íbúa
sem eiga þjóðbúning en í Bol-
ungarvík. Blótsgestir snæddu
hefðbundinn þorramatur, sem
borinn var fram í trogum líkt og
forðum. – thelma@bb.is