Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.01.2012, Side 11

Bæjarins besta - 26.01.2012, Side 11
FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012 11 „Reglan hjá okkur er að setja ekki mannskap í hættu við að hreinsa upp bensínflekki á sjó. Það er því meginlínan að fylgjast vel með og meta hvort að það séu einhver svæði sem þurfi að verja sérstaklega þegar svona kemur upp. Við eigum eftir að funda með Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða og þá metum við stöð- una betur,“ segir Kristján Geirs- son, deildarstjóri umhverfis- verndar hjá Umhverfisstofnun, en óttast er að um 25 þúsund lítrar af bensíni hafi lekið út í jarðveg og sjó þegar tankbíll Skeljungs valt á veginum í Hest- firði í Ísafjarðardjúpi. Þar sem slysið varð á landi en ekki sjó, kemur Umhverfisstofnun ekki beint að slysinu. Það var slökkvi- lið Ísafjarðarbæjar sem brást fyrst við en síðan fylgist Heilbrigðis- eftirlit Vestfjarða með frágangi á svæðinu. „Núna er hávetur og lífríki í algeru lágmarki og því ekki mikil hætta fyrir það sem slíkt. Það eru ekki langtímaáhrif af bensín- mengun líkt og olíu. Bensín gufar mjög fljótt upp og blandast við sjóinn, þynnist og dreifist. Síðan tekur við náttúrlegt ferli sem eyð- ir því,“ segir Kristján og bætir við að ef hreyfing sé á sjó þá taki það aðeins nokkra klukkustundir fyrir lífríkið að losna við bensínið en ef það er stilla gæti það tekið nokkra daga. Að sögn Kristjáns drepast líf- verur sem verða fyrir umtals- verðri bensínmengun fljótt en það fer allt eftir magni hver áhrif- in verða. Fuglar verða fyrir bruna þegar þeir komast í snertingu við bensín og þá leysir bensínið upp fitulagið í fuglinum. „Hins vegar er bensínið fljótt að skolast í burtu þannig að ekki eru langtímaáhrif líkt og þegar um olíu er að ræða. Bensínið getur líka farið í fisk en að fer eftir því hve mengunin er mikil hver áhrifin verða, en ef mengunin er mikil þá drepst fisk- urinn. Það eru margir þættir sem hafa áhrif á það hvort hagkvæm- ara sé að hafa vöruflutninga á sjó eða landi. Sem dæmi má nefna álag á vegum, losun gróðurhúsa- lofttegunda og mengunarefna, hættur á umferð og mengunar- óhöpp, en þau geta auðvitað orðið á sjó líka. En af umhverfissjónar- miðum hefur stofnunin aðhyllst heldur sjóflutninga frekar en land- flutninga þegar kemur að flutn- ingum á bensíni og olíu.“ Langtímaáhrif af bensínmengun lítil Spyr hvort rétt sé að flytja hættu- lega farma við allskyns aðstæður „Þetta er vissulega svakalegt slys en það sem maður horfir mest í er að ekki urðu slys á fólki,“ segir Ómar Már Jónsson sveitar- stjóri Súðavíkurhrepps inntur eftir viðbrögðum við mengunar- slysinu í Hestfirði í síðustu viku. Ómar var sjálfur á leið vestur umrætt kvöld en þurfti frá að hverfa og gisti í Reykjanesi. Hann var í sambandi við lögreglu og aðra aðila á staðnum eftir slys- ið. „Allt verkferlið sem fór í gang frá því að ljóst var hvað hafði gerst, finnst mér hafa verið alveg til fyrirmyndar. Öllum vegfar- endum var meinaður aðgangur þar til búið var að fyrirbyggja frekari slys með því að sandbera, aftengja rafgeymana og úða froðu yfir bílinn. Allt ferlið lýsti mikilli fagmennsku. Við erum með gott kerfi sem sýndi þarna að það virkar.“ Ómar segist ekki vita hvað taki við næst en kanna þarf umfang umhverfistjónsins. Talið er að 25.000 lítrar af bensíni hafi lekið úr tank bílsins í jarðveg og jafnvel út í sjó. „Maður veit ekki hversu mikið tjón þetta er. Sérfræðingar munu fara í að meta það hvaða áhrif þetta hefur. Það er vitað að bensín er mjög rokgjarnt og gufar fljótt upp svo vonandi verða áhrifin minni en ætla mætti í upp- hafi.“ Ómar segir slysið vekja upp þá spurningu hvort rétt sé að flytja hættulega farma með bíl við hvaða aðstæður sem er. „Í kjölfar slyssins finnst mér rétt að skoða við hvaða aðstæður verið er að flytja svona farm. Umræddan dag var glerhált, myrkur og slæmt veður sem vissulega eykur hætt- una á að svona lagað gerist. Ég held því að það sé mjög mikil- vægt að það verði metið hvort ekki þurfi að koma á einhverjum reglum um að við vissar aðstæður séu ekki bílar á ferli á vegum landsins með hættulega farma.“ Ómar segir erfitt að meta að svo stöddu hvort slysið geti haft langtíma afleiðingar. „Maður veit ekkert með vissu núna og vonar auðvitað það besta. En það er þó aldrei að vita. Súðavíkur- hreppur er til dæmis um þessar mundir að taka fyrir erindi frá aðilum sem vilja stórauka fisk- eldi í Djúpinu og leggja mikið fjármagn í það. Það skiptir því mjög miklu máli að fundnar verða leiðir til að tryggja ekki skapist stórhætta á umhverfis- spjöllum. Ef þetta hefði nú verið olía sem var í bílnum stæðum við frammi fyrir allt öðrum vanda. Þó þetta hafi vissulega verið al- varlegt þá er mikil mildi að ekki verr.“ – thelma@bb.is Eins og sjá má var tankbíll Skeljungs mikið skemmdur eftir veltuna.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.